Morgunblaðið - 10.12.2020, Side 23
1 meðalstór rauðkálshaus
2 græn epli
1 klementína
1⁄4 bolli eplaedik
½ bolli gervisykur (frá GG)
½ l sykurskertur epladjús
1 tsk. kanilduft
2 stk. stjörnuanís
50 g smjör
Miðjan tekin úr rauðkálshausnum og hann skorinn í bita.
Epli flysjuð og miðjan tekin úr og skorin í teninga.
Allt sett í pott nema klementínan.
Soðið við vægan hita í 1½-2 klukkutíma og hrært inn á milli.
Smakkað eftir klukkutíma og ef ekki nógu sætt þá að bæta aðeins gervisætu eða ef það
er of sætt þá bæta við smá eplaediki.
Síðan er þetta kælt og klementínubátunum bætt varlega við.
Þetta rauðkál hentar með öllum mat nema kannski hefðbundnu hangikjöti.
Heimagert rauðkál
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 23
1 stk. lítil sellerírót (1 kg +)
1 peli til ½ l rjómi
2 tsk. dijonsinnep
2-3 tsk. andarkraftur
vatn
mulinn svartur pipar
Sellerírótin er snyrt og skorin í teninga, sett í pott m/vatni og helmingnum af rjóma, and-
arkrafti og pipar og soðið í um 45 mínútur við vægan hita.
Síðan stappað þannig að þetta verði eins og gamaldags kartöflumús.
Meðan á suðunni stendur er afganginum af rjómanum bætt við.
Salt og pipar eftir smekk. Sellerírótarstappan kemur í staðinn fyrir kartöflur með öndinni.
Sellerírótarstappa
2 græn epli
2 perur
20 stk. af steinlausum grænum vínberjum
1 dós sýrður rjómi
1 peli þeyttur rjómi
½ bolli valhnetur
Flysjið eplin og takið kjarnann úr og skerið í litla bita. Eins með perurnar.
Skerið vínberin til helminga.
Öllu blandað saman í skál nema valhnetunum.
Ef ykkur finnst þetta súrt þá er hægt að bæta við 1 tsk. af hunangi út í.
Hrært varlega.
Síðan er gott að léttrista valhneturnar á pönnu með GG-gervisykri og smjörklípu, sykurinn
settur á pönnu og þegar hann er að byrja bráðna er smjörinu bætt út í og síðan hnetunum velt
upp úr í 1-2 mínútur, teknar af pönnunni með gaffli.
Látnar kólna og settar ofan á til skrauts. Hægt er að gera þetta daginn áður.
Klassíkt Waldorfsalat
1 poki (um 330 g) af ferskum trönuberjum
1½ bolli gervisykur (Sweet like sugar frá GG)
1 stk. appelsína
1 bolli saxaðar þurrar fíkjur
½ rauðlaukur
1½ msk. ferskur engifer
1 tsk. kanill
½ tsk. salt
½ bolli fersk bláber
Appelsína er flysjuð og skorin í litla bita.
Engiferinn flysjaður og rifinn niður.
Rauðlaukurinn saxaður smátt.
Allt innihaldið nema bláberin sett í pott, hrært og látið sjóða við vægan hita í 8-10 mínútur.
Hrærið í annað slagið meðan verið er að sjóða.
Eftir u.þ.b. 8 mínútur er þetta eins og gróf sulta, þá er það tekið af og kælt í u.þ.b. hálftíma og
bláberjunum blandað saman við þannig að þau séu heil með.
Trönufíkju-chutney
Allt hráefni fæst í