Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 11
hjá körlum en 43% hjá konum. Þegar skoðuð er sambærileg
skipting milli þeirra sem eru 50 ára og eldri kemur í ljós að
munurinn á milli kynja er almennt minni. Þannig er hlutfall
sjálfstætt starfandi lögmanna í þessum aldurhópi 60% hjá
körlum en 55% hjá konum. Hlutfall þeirra sem starfa sem
fulltrúar lögmanna í þessum aldurshópi er jafnt hjá bæði
kynjum eða 5%. Hins vegar er töluverður munur á hlutfalli
kynjanna þegar kemur að innanhússlögmönnum í þessum
aldurshópi, en 19% karlkyns lögmanna starfa sem slíkir á
móti 37% kvenna. Loks er hlutfall karla sem hættir eru
störfum sökum aldurs eða veikinda 16% á meðan hlutfall
kvenna er aðeins 3%.
Hlutfallslega flestir lögmenn á Íslandi
Eins og að líkum lætur er fjöldi lögmanna á Norður-
löndunum afar mismunandi eftir ríkjum enda töluverður
munur á íbúafjölda þeirra. Flestir eru lögmenn í Noregi
eða 8.981 talsins, en lögmenn í Danmörku koma þar á eftir,
en fjöldi þeirra er 6.309. Svíþjóð fylgir skammt á eftir, með
5.918 lögmenn og í Finnlandi eru þeir 2.124 talsins. Ísland
rekur svo lestina með 1.072 lögmenn.
Séu tölur um fjölda lögmanna á Norðuröndunum hins
vegar skoðaðar út frá fjölda íbúa, þá er hlutfallið hæst hér á
landi þar sem einn lögmaður er á hverja 314 íbúa. Í Noregi
er hlutfallið einn fyrir hverja 594 íbúa, í Danmörku einn
á hverja 911, í Svíþjóð er hlutfallið einn á móti hverjum
1.683 og í Finnlandi er einn lögmaður á hverja 2.606 íbúa.
Eins og glöggt má sjá af þessu tölum þá eru ríflega áttfalt
fleiri lögmenn hér á landi miðað við Finnland, sé miðað
við íbúafjölda.
Árgjald lægst á Íslandi
Töluvert bil er á milli fjárhæða hæsta og lægsta árgjalds
til lögmannafélaganna á Norðurlöndunum. Lægst gjald
greiða félagsmenn í Lögmannafélagi Íslands eða kr. 60.000,-
en til samanburðar greiða sænskir lögmenn rúmlega kr.
66.000,- norskir kr. 73.000,- finnskir kr. 130.000,- en danskir
lögmenn greiða hæst árgjald eða tæpar kr. 140.000,-.
Ingimar Ingason
www.hi.is
LAGADEILD
LAGADEILD
Metnaðarfullt nám í hæsta gæðaflokki
www.lagadeild.hi.is
Umsóknarfrestur um grunnnám
er til 5. júní
Næsta A-próf verður haldið 8. júní
Nánar á www.hi.is/a_prof