Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 31
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/18 31
hins ýtrasta. Það gafst þó ekki nægilega vel enda stuttur
undirbúningur fyrir mótið. Þruman vann einn leik en aðrir
töpuðust með minnsta mun.
Hörkubarátta var um gullið. Stóð baráttan milli þeirra
Lex manna og KF Ungra og mátti vart á milli sjá hvorir
hefðu betur. Það var ekki ljóst fyrr en í síðustu umferðinni
að KF Ungir myndu standa uppi sem sigurvegarar. Voru
þeir vel að verðlaunum komnir og kampakátir í leikslok.
Reyndar hefði verið gaman að sjá silfur- og bronspeningum
úthlutað til þeirra, sem lentu í 2. og 3. sæti en úrslitin urðu
eftirfarandi:
KF Ungir 13 stig
Lex 10 stig
Land 6 stig, 8 mörk
Opus 6 stig, 7 mörk
KPMG 4 stig
KF Þruman 3 stig.
Fyrir þann, sem þetta ritar er knattspyrna afar skemmtileg
íþrótt, sem eflir félagsanda og samkennd. Þar geta farið
saman fótfimi, þol, áræðni, auga fyrir samspili, harka og
fleiri aðrir ótaldir eiginleikar. Í fótbolta má oft greina
lyndiseinkunn og skapferli leikmanna. Dagfarsprúðir
menn geta breyzt í berserki um leið og þeir stíga yfir
línuna. Fótboltinn er einnig góð leið til að losna við streitu,
sem fylgir lögmannsstarfinu. Að þessu sinni sýndu allir
prúðmannlega framkomu og engin óhöpp urðu nema
einn liðsmaður Lands lögmanna sleit hásin.
Segja má að framtíð knattspyrnunnar sé björt hjá
lögmannastéttinni, þar sem fjöldi eldri lögmanna stundar
knattspyrnu að staðaldri og stöðugt bætast yngri menn í
hópinn. Lögmannafélagið á þakkir skildar fyrir að standa
fyrir þessu móti og vonandi verður svo um ókomin ár.
Magnús Björn Brynjólfsson hrl.