Lögmannablaðið - 2018, Side 24

Lögmannablaðið - 2018, Side 24
24 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/18 karlar. Á sama tíma skortir þær trúverðugleika vegna þess að þær hafa veikt tengslanet. Valdahlutfallið skiptir máli Viltu senda lögmönnum einhver skilaboð? Það er mikilvægt að átta sig á því að kynjamisrétti væri löngu úr sögunni ef vandamálið væru nokkrir leiðinlegir karlar með ekkert álit á konum. Gamaldags hugmyndir og viðhorf eru lífsseig, lúmsk og gegnsýrandi. Vandinn er því kerfislægur. Tungumál skiptir miklu máli og orð eru til alls fyrst. Tölum um fólk frekar en menn þegar átt er við bæði konur og karla. Til dæmis starfsfólk en ekki starfsmenn. Þótt orðið „maður“ eigi að vera regnhlífaheiti yfir bæði karla og konur er staðreyndin sú að venjulega talar fólk um konur og menn – því er augljóst að þegar talað er um „mann“ þá er átt við karl en ekki konu. Allt tal um „...menn þetta og menn hitt...“ er því útilokandi fyrir konur og stuðlar að óbreyttu ástandi frekar en að stuðla að jafnrétti. Haldið reglulega fundi á lögmannsstofunum ykkar. Þetta er enn mikilvægara á lögmannsstofum þar sem kynjahlutfallið/valdahlutfallið er mjög ójafnt. Upplifi starfsfólk að rödd þess og skoðanir heyrist, og það skipti máli, styrkir það stöðu þeirra, stuðlar að meiri ánægju í starfi og betra starfsumhverfi – betri vinnustaðamenningu. Reglulegir fundir skipta máli þar sem það er talsvert auðveldara að tjá skoðanir sínar, láta rödd sína heyrast, þegar fólki býðst vettvangur til þess. Athugið að það þarf meira en hausatalningu á vinnustað til ná raunverulegu kynjajafnvægi, valdið þarf að skiptast jafnt á konur og karla. Þetta virðist frekar algengt vandamál í lögmennsku á Íslandi, jafnvel þótt konum í lögmennsku hafi fjölgað gríðarlega þá fara karlar almennt frekar með valdið. Það er öllum til góðs, konum og körlum, að fullt jafnrétti náist í lögmennsku, sem og annars staðar. Anna Lilja Hallgrímsdóttir Andri Árnason, hrl. Edda Andradóttir, hrl., LL.M. Finnur Magnússon, hrl., LL.M. Halldór Jónsson, hrl. Lárus L. Blöndal, hrl. Sigurbjörn Magnússon, hrl. Simon David Knight, solicitor Stefán A. Svensson, hrl., LL.M. Vífill Harðarson, hrl., LL.M. Borgartúni 26 105 Reykjavík 580 4400 www.juris.is Efstaleiti 5 · 103 Reykjavík · Iceland · +354 540 0300 · logos.is · logos@logos.is Í fremstu röð í hundrað og ellefu ár. LOGOS sérhæfir sig í þjónustu við íslenskt og alþjóðlegt viðskiptalíf og er jafnframt sú lögmannsstofa á Íslandi sem á sér lengsta sögu. Heiðarleiki, fagmennska og metnaður er sá grunnur sem velgengni LOGOS byggir á.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.