Lögmannablaðið - 2018, Qupperneq 27

Lögmannablaðið - 2018, Qupperneq 27
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/18 27 endranær; þær yrðu ávallt að stefna að lögmætu markmiði og fullnægja meðalhófskröfum. Ljóst er að kröfur 6. gr. MSE eru ólíkar eftir því hvort um er að ræða málskot til æðri dóms sem hefur fullar endurskoðunarheimildir á málsatvikum og lagaatriðum eða æðri dóms sem hefur takmarkaðar heimildir til endurskoðunar. Grundvallardómar Það var áhugavert að heyra umfjöllun Róberts um dóma sem skipta máli við túlkun á 6. gr. MSE. Rakti hann sérstaklega dóm MDE í máli Hansen gegn Noregi frá árinu 2014, sem hann telur mikilvægan í norrænu samhengi um þau sjónarmið sem horfa ber til við mat á hvort gætt hafi verið réttlátrar málsmeðferðar á málskotsstigi. Málið varðaði deilur á milli fyrrum maka um fjárskipti við lok hjúskapar. Áfrýjunardómstóll hafnaði beiðni um áfrýjunarleyfi með þeirri athugasemd einni að vísa til viðeigandi lagaákvæða og taka fram að engar líkur væru á því að fallist yrði á kröfur aðila. Hæstiréttur hafnaði jafnframt beiðni hans um áfrýjunarleyfi. Kærandi hélt því fram fyrir MDE að skortur á rökstuðningi fyrir synjun á áfrýjunarleyfi af hálfu áfrýjunardómstólsins hefði brotið í bága við 6. gr. MSE. Þau sjónarmið sem MDE beitti við matið voru eðli málskotskerfis, áhrif málskots í heildarmati á málsmeðferð í einkamáli, eðli og umfang valdheimilda æðra dómsstigs og hvernig gætt var að hagsmunum kæranda fyrir æðri dómi. Þá telur Róbert mál Jussila gegn Finnandi frá árinu 2006 grundvallardóm hvað varðar kröfuna til munnlegrar málsmeðferðar á málskotsstigi en munnleg og opinber málsmeðferð er grundvallarregla skv. 6. gr. MSE og gildir bæði í einkamálum og sakamálum. Áréttaði Róbert að ef ágreiningur á málskotsstigi beindist að sönnunaratriðum eða atvik væru að öðru leyti umdeild yrði málsmeðferð að jafnaði að vera munnleg en við matið væri heimilt að líta til hagræðis- og kostnaðarsjónarmiða. Sönnun, gagnaöflun og jafnræði Róbert sagði að áfrýjun efnisdóms í sakamálum áskildi jafnan fulla endurskoðun á atvikum og lagaatriðum á (fyrsta) málskotsstigi. MDE færi jafnan afar varlega í að gagnrýna sönnunarmatið sjálft. Hins vegar væri það liður í réttlátri málsmeðferð að aðferðir við sönnunarmatið séu til þess fallnar að varpa ljósi á málsatvik og nefndi Róbert í því sambandi sérstaklega dóm MDE í máli Sigurþórs Arnarssonar gegn Íslandi frá árinu 2003. Tók hann fram að ekki væri útilokað að sambærilegar kröfur yrðu gerðar til Fundurinn hófst á því að Benedikt Bogason,hæstaréttardómari og formaður stjórnar dómstólasýslunnar, fór stuttlega yfir hina nýju dómstólaskipan og verkefni dómstólasýslunnar sem væri til þess fallin að efla sjálfstæði dómstólanna og samræma og bæta stjórnsýslu þeirra.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.