Lögmannablaðið - 2018, Síða 30

Lögmannablaðið - 2018, Síða 30
30 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/18 JÓLASNAPSMÓT LMFÍ NÝ KYNSLÓÐ KOMIN FRAM Á SJÓNARSVIÐIÐ Hið árlega jólasnapsmót LMFÍ var haldið í íþróttahúsi Fram í Safamýri þann 21. desember s.l. Sex lið mættu til leiks. Það voru KF Þruman, Opus, KPMG lögmenn, KF Ungir og LEX lögmenn og Land. Segja má að það séu að verða kynslóðaskipti í fótboltanum eins og annars staðar. Sá sem þetta ritar saknar þess reyndar að eldri leikmenn hafi dregið sig of snemma í hlé, menn á bezta aldri, sem hafa snúið sér að öðrum og litlausari íþróttum, t.d. golfi. Þrumumenn komu ekki með fullskipað lið en fengu einn skiptimann, Smára Hilmarsson, á síðustu stundu til að styrkja liðið. Máttarstólpar liðsins voru fjarverandi, þeir Guðni Á. Haraldsson og Grétar Jónasson sem tilkynnti sig veikan rétt fyrir leik. Engu að síður var mætt til leiks, bitið í skjaldarrendur og menn staðráðnir í að ná a.m.k. í silfrið eins og liðinu hefur tekist tvívegis áður. Lið Þrumunar var skipað reynsluboltum og yngri mönnum, sem eru afar efnilegir, þeim Þóri Júlíussyni, Einari Brynjarssyni og Ívari Þór Jóhannssyni. Uppistaðan í hinum liðunum voru ungir karlar og ein kona, öll ákveðin í að láta til sín taka. Nú þegar konur eru orðnar fjölmennar í lögmannastétt væri góð tilbreytni að sjá þær taka þátt í móti sem þessu eða þá að stofna til sér kvennamóts. Í liði KPMG lögmanna var einn leikmaður sem vakti sérstaka athygli fyrir lipra boltameðferð en lið hans hafði ekki erindi sem erfiði, þar sem það lenti í 5. sæti. Eins og endranær spilaði Þruman glæsilegan fótbolta og nýttu þeir eldri reynzlu sína og staðsetningar meðan yngri leikmennirnir notuðu hraða sinn, leikni og þol til

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.