Málfríður - 15.05.1988, Síða 37

Málfríður - 15.05.1988, Síða 37
FRÉTTIR TUNGUMÁL - MENNING - ATVINNULÍF Ráðstefna tungumála kennara í Umeá Eins og skýrt var frá í síðasta blaði verður haldin norræn ráðstefna um tungumálakennslu, í Umeá í Svíþjóð dagana 19.-23. júní n.k. Væntanleg- um þátttakendum skal bent á að hægt er að sækja um ferðastyrk til BHM. (Svonefndur STRÍP styrkur). Far- gjald getur verið nokkuð mismunandi eftir því hvaða ferðamáta menn velja. Dagskrá ráðstefnunnar verður mjög fjölbreytt og mun stundum fleira en eitt verða í boði á sama tíma þannig að menn velja eftir greinum og áhugasviðum. Fyrirlestrar og um- ræður verða ýmist á norðurlanda- málum, ensku, frönsku eða þýsku. Ráðstefnan verður sett sunnudaginn 19. júní og hefjast síðan pallborðs- umræður um þörf atvinnulífsins fyrir tungumálakunnáttu. Einnig mun ráðstefnunni ljúka með pallborðs- umræðum og verður þar fjallað um tungumál og menningu. Fyrir hönd íslands taka þær Valgerður Bjarna- dóttir viðskiptafræðingur og Guð- rún Helgadóttir rithöfundur þátt í þessum umræðum. Mánudag, þriðjudag og miðviku- dag verður svo fjallað um ýmis hag- nýt atriði sem snerta tungumála- kennslu t.d. hvernig þjálfa megi skriflega færni og lesþjálfun (read- ing) svo eitthvað sé nefnt. Ennfrem- ur verður rætt um bókmenntir, t.d. þýskar nútímabókmenntir og nýja strauma í bandarískum bókmennt- um. Einn fyrirlesari lítur til framtíð- arinnar og ætlar að tala um menn- ingarsamskipti í Evrópu „sans front- BÆKUR ENSK MÁLFRÆÐI FYRIR FRAMHALDS- SKÓLA í haust kom út hjá Máli og menn- ingu Ensk málfræði fyrir fram- haldsskóla eftir Raymond Murphy. Elísabet Gunnarsdóttir, kennari við Ármúlaskóla, hefur séð um íslensku gerðina. Bókin er ætluð nemendum á framhaldsskólastigi. Hún skiptist í 130 greinar sem hver um sig fjallar um ákveðið málfræðiatriði. Á vinstri síðunni í hverri grein eru út- skýringar og æfingar á hægri síð- unni. Aftast í bókinni eru sex kaflar sem fjalla um tíðir sagna, reglulegar sagnir og óreglulegar, stafsetningu, styttingar, mun á bandarískri ensku og breskri og að lokum listi yfir landa- og þjóðaheiti. Fjölbreytni í uppbyggingu æfing- anna er töluverð. I sumum æfingun- um er aðeins beðið um að fylla út í eyður. Þetta á t.d. við um æfingar í tíðum sagna. I öðrum æfingum eru stöku orð gefin og nemendur beðnir að mynda t.d. spurnarsetningar. Ennfremur þurfa nemendur að skrifa heilu setningarnar t.d. þar sem verið er að æfa skilyrðissetning- ar og þolmynd. í þessari yfirgripsmiklu bók er ekki nauðsynlegt að taka greinarnar fyrir í réttri röð heldur velja þær sem henta best hverju sinni. Ennfremur er hægt að láta nemendur í sama bekk gera mismargar æfingar í hverjum málfræðiþætti allt eftir getu hvers og eins. Þetta er ekki aðeins mjög góð kennslubók í enskri málfræði, held- ur mjög góð handbók fyrir nemend- ur. Kristín Guðmundsdóttir. iére“, en þetta eru aðeins sýnishorn. Einnig munu verða kynnt menninga- og stjórnmálaviðhorf í ýmsum lönd- um utan Norðurlanda. Sænska skólaútvarpið verður með kynningu á starfsemi sinni. - I tengslum við ráðstefnuna verður bókasýning alla daga. Auk fyrirlestra og annars fróð- leiks verður séð fyrir ýmiss konar „tómstundargamni“. Á þriðjudags- kvöldið verður haldin hátíð á Sav- argárden. Boðið verður upp á ýms- ar skoðunarferðir. Tónlistarhátíð verður í bænum á sama tíma og þar mun Manuela Wiesler leika ásamt fleiri þekktum listamönnum og hafa verið tekin frá sæti fyrir ráðstefnu- gesti. Síðast en ekki síst gefst ráð- stefnugestum tækifæri til að halda upp á Jónsmessuna með þarlendum en hún er ein stærsta hátíð í Svíaríki og ávallt mikið um dýrðir. Nánari upplýsingar fást hjá for- manni STIL Hafdísi Ingvarsdóttur í síma 688400. DÖNSKUKENNAR- AR TAKIÐ EFTIR! Námskeið í „Dansk sprog, littera- tur og kultur“ í Danmörku. Um árabil hefur verið haldið nám- skeið í Danmörku á hverju sumri fyrir nemendur HÍ og KHÍ sem leggja stund á dönsku. Námskeiðið er haldið á vegum DE NORDISKE SPROG OG LITTERATUR- KURSER. Ákveðið hefur verið að gefa starfandi dönskukennurum kost á að taka þátt í námskeiðinu að þessu sinni, þar eð fyrirsjáanlegt er að nemendur HÍ og KHÍ muni ekki fylla námskeiðið (20). Námskeiðið verður haldið í Odense 2.-28. júní. Peir sem kunna að hafa áhuga á að slást í förina eru beðnir að hafa sam- band við annaðhvort Keld Gall Jör- gensen í síma 15719 eða Ásthildi Erl- ingsdóttur í síma 688700 eða 14457 sem ALLRA FYRST. 37

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.