Málfríður - 15.05.1997, Side 30

Málfríður - 15.05.1997, Side 30
FRÉTTIR - FRÉTTIR - FRÉTTIR Fréttir af námskrárvinnu Eins og tungumálakennurum er kunnugt hófst vinna við end- urskoðun aðalnámsskráa grunn- og framhaldsskóla á síðasta ári. Síðastliðið haust voru faglegir umsjónarmenn ráðnir, einn á hvert námssvið. Undirrituð var ráðin sem fag- legur umsjónarmaður á sviði erlendra tungumála. Fagleg um- sjón felur í sér ábyrgð á fram- vindu vinnu við endurskoðun á hverju sviði. Sérstök stefnumótunarnefnd, skipuð fulltrúum frá stjórnmála- flokkunum, vinnur að stefnu- mótun á grundvelli nýrra laga um grunn- og framhaldsskóla. Stefnumótunarnefnd hefur ekki lokið störfum þannig að ekki er ennþá ljóst hvernig stefnumiðin verða. Sum hafa þó séð dagsins ljós og verður samkvæmt þeim lögð áhersla á vísindalæsi, tækni- menntun, fjarkennslu, símennt- un og endurskoðun kennslu- hátta svo eitthvað sé nefnt. Nefndin hefur ekki enn þá gert opinbera stefnu sína varðandi tungumálakennslu sérstaklega en spennandi verður að sjá hvernig hún kemur til með að líta út. í stefnumiðunum skila sér áherslur sem verið hafa í deiglunni undanfarin ár og margt er væntanlega kunnuglegt þeim sem hafa velt fyrir sér skólamálum og kennslu. Sérstök verkefnisstjórn, sem er skipuð ráðuneytismönnunum Herði Lárussyni, Hrólfi Kjartans- syni og Stefáni Baldurssyni, ber ábyrgð á verkefninu. Forvinnuhópar eru að komast á laggirnar. Þegar þetta er skrif- að, um miðjan mars, hefur ný- lega verið myndaður forvinnu- hópur fyrir erlendu tungumálin og hefur hann þegar haldið sína fyrstu fundi með faglegum um- sjónarmanni. í þeim hópi eru: Auður Hauksdóttir, tilnefnd af ráðherra, formaður. Erna Jessen, fulltrúi Félags dönskukennara. Guðrún Matthíasdóttir, full- trúi Félags þýskukennara Halla Thorlacius, fulltrúi Fé- lags enskukennara. Oddný Sverrisdóttir, tilnefnd af ráðherra. Petrína Rós Karlsdóttir, full- trúi Félags frönskukennara. Hlutverk þessa hóps er að setja fram stefnu á sviði tungu- málakennslu í grunn- og fram- haldsskóla. Þegar forvinnuhópur hefur lokið sínu starfi taka vinnuhópar til við að móta námsskrá fyrir hvert og eitt tungumál. Er gert ráð fyrir einum hóp fyrir grunn- skólastig og öðrum fyrir fram- haldsskólastig. Kennarafélögin gera ráð fyrir að bakhópar styðji við þá vinnu þegar hún fer af stað og hafa beðið fagfélögin að mynda slíka hópa. Varla er raun- hæft að vinnan við að móta námsskrár fyrir hverja grein hefjist fyrr en í haust í fyrsta lagi. Ef kennarar vilja koma á fram- færi athugasemdum og ábend- ingum, þá er það vel þegið. Vilji fólk skrifa mér, þá er þetta utan- áskriftin: Endurskoðun aðalnámsskráa grunn- og framhaldsskóla, fagleg- ur umsjónarmaður á sviði er- lendra tungumála Hallveigarstöðum v/Túngötu, 101 Reykjavík Eða senda mér tölvupóst. Netfangið mitt er: gerdur@ismennt. is Vonandi er að þetta verk vinnist vei og skili góðum ár- angri. Því hefur verið lýst yfir að ferlið eigi að vera opið og að allir, sem þess óski geti fylgst með vinnunni. í þeim tilgangi er verið að setja upp heimasíður. Slóðin er: http://www. ismennt. is/vefir/nam skra/ Gerður Guðmundsdóttir Frá félagi dönskukennara Aðalfundur var haldin í febrú- ar sl., núverandi stjórn skipa: Kirsten Friðriksdóttir, formað- ur. Hafdís Bára Kristmundsdóttir, varaformaður. Þórhildur Oddsdóttir, gjald- keri. Kristín Jóhannesdóttir, ritari. Þyrí Árnadóttir, meðstjórn- andi. Jette Dige Pedersen, með- stjórnandi. Ása Kristín Jóhannsdóttir, meðstjórnandi. 30

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.