Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2012, Blaðsíða 20
Samstarfshópur
sóttvarnaráðs um
málefni sprautufíkla
Tíðni smitunar
Hér á landi hefur að meðaltali
greinst einn sprautufíkill með hiv
á ári frá upphafi hiv-greininga
árið 1983 til ársins 2007. Síðan
þá og þar til í októberlok 2012
hafa 37 sprautufíklar greinst með
sjúkdóminn. Þetta er gífurleg fjölgun
á stuttum tíma, en hiv-greiningum
innan þessa hóps hefur þó fækkað á
undanförnum mánuðum. Samkvæmt
nýlegum upplýsingum frá SÁÁ
er talið að virkir sprautufíklar á
Íslandi séu um 500–700 talsins,
sem er svipaður fjöldi og í öðrum
stórborgum sé miðað við höfðatölu.
Í byrjun árs 2010 sýndi könnun
hérlendis að þrír af hverjum fimm
sprautufíklum notuðu rítalín mest
eða næstmest allra efna. Rítalín
hefur þá sérstöðu að vera sprautað
mun oftar í æð en nokkurt annað
vímuefni sökum þeirrar miklu
fíknar sem myndast, eða um 10–15
sinnum á dag, allt upp í 30 skipti.
Því oftar sem efnum er sprautað í
æð því meiri líkur eru á sýkingum.
Deili fíklar menguðum sprautum
og búnaði sín á milli margfaldast
líkurnar á smiti. Misnotkun rítalíns
hér á landi er nánast einsdæmi á
heimsvísu.
Skipun samstarfshóps
Sóttvarnalæknir hélt tvo stóra
fundi árið 2011 með ýmsum
sérfræðingum í málefnum
sprautufíkla frá LSH, SÁÁ, RKÍ, HIV-
Íslandi og Velferðarráðuneytinu
til að ræða stöðu mála og hvað
gera skyldi. Tekin var ákvörðun
um skipan samstarfshóps um
málefni sprautufíkla á fundi
sóttvarnaráðs 22. september
2011. Samanstendur hópurinn af
Sigurlaugu Hauksdóttur frá Embætti
landlæknis, Einari Þór Jónssyni frá
HIV-Íslands, Bergþóru Karlsdóttur
frá göngudeild smitsjúkdóma á LSH,
Þóru Björnsdóttur frá Vogi og Helgu
Sif Friðjónsdóttur frá fíknigeðdeild
LSH og heilsubílnum Frú Ragnheiði-
skaðaminnkun. Meginmarkmið
hópsins er að koma með tillögur að
aðgerðum fyrir ráðið til að stemma
stigu við áframhaldandi útbreiðslu
hiv meðal sprautufíkla á Íslandi.