Fréttablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 4
DÓMSMÁL Fyrrverandi íbúar á
Bræðraborgarstíg 1 og aðstand-
endur þeirra sem létust í brun-
anum mikla í sumar, fara fram á að
ákvörðun sýslumanns um að hafna
kyrrsetningarkröfu gegn HD verki
verði snúið við. Var málið þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
„Fyrir hönd umbjóðenda minna
hef ég lagt fram kröfu til héraðs-
dóms Reykjavíkur um að felld verði
úr gildi ákvörðun sýslumanns þar
sem kyrrsetningu á eignum var
synjað,“ segir Guðbrandur Jóhann-
esson lögmaður fólksins, sem eru 17
manneskjur talsins.
HD verk seldi nýlega Bræðra-
borgarstíg 1 og 3 til vistfélagsins
Þorpsins sem hyggst rífa rústirnar
og reisa smáíbúðir í staðinn.
Þar sem ekki er hægt að kyrrsetja
húsin sem seld eru, er spjótunum
beint að öðrum eignum HD verks
sem eru þó skuldsett. „Umbjóðend-
ur mínir vilja með þessari aðgerð
tryggja að eignir séu tiltækar, er
endanlegur dómur í skaðabótamáli
þeirra liggur fyrir,“ segir hann.
Málið er komið í f lýtimeðferð og
vonast Guðbrandur til að niður-
staða fáist á næstu sex vikum. – khg
UMHVERFISMÁL Ábúandi á Laxa-
mýri í Norðurþingi óttast riðu smit
og ágang fugla vegna dreifingar
gors úr sláturhúsi í Ærvíkurhöfða.
Skipulags- og framkvæmdaráð
mælist til þess að dreifingunni, sem
hófst í fyrra, verði haldið áfram í ár
og smithætta eigi ekki að geta verið
til staðar, sé hún rétt framkvæmd.
„Við hörmum þetta og gerum
ráð fyrir að bærinn taki þá á sig
áhættuna og hugsanlegar skaða-
bætur verði af þessu tjón,“ segir Jón
Helgi Björnsson, bóndi á Laxamýri
og forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands.
Í ágúst heimilaði sveitarstjórn
kjötvinnslunni Norðlenska að
dreifa gori úr sláturtíðinni á Ærvík-
urhöfða í landi Saltvíkur sunnan
við Húsavík til uppgræðslu. Þar
hyggst Kolviður, verkefni Skógrækt-
arinnar og Landverndar, planta 270
þúsund trjám á fimm árum.
Jón Helgi sendi kvörtun til sveitar-
stjórnar vegna dreifingarinnar. Hún
færi fram í mikilli nálægð við túnin
á Laxamýri þar sem er mikið af fé
og er heyjað fyrir gripi. „Það er helst
riðan sem við erum hrædd við, en
líka aðra sjúkdóma,“ segir Jón Helgi.
Þá telur Jón Helgi að ásókn fugla,
bæði máva og hrafna, sé óheppileg
þar sem dreifingin fari fram nálægt
ósum Laxár í Aðaldal.
„Þessi staðsetning verður að telj-
ast furðuleg í ljósi þess hversu mikið
land sveitarfélagið á skammt frá
sem er ekki nálægt neinum búskap,“
segir Jón Helgi. „Landið sem verið er
að dreifa á núna er ekki mjög stórt
og getur ekki enst í mörg ár.“
Heimild Norðurþings til dreif-
ingarinnar var háð því að aðeins
gori yrði dreift en ekki blóði, byggt
á umsögn Matvælastofnunar frá því
í júlí. Gorinn sem slíkur er f lokk-
aður eins og annar úrgangur úr
sauðfé og ekki hætta á smiti eins og
með blóði. Silja Jóhannesdóttir, for-
maður skipulags- og framkvæmda-
ráðs Norðurþings, segir bæinn hafa
fengið ábendingu um að blóð hafi
sést á svæðinu og það hafi verið
kannað. „Það væri alvarlegt ef ekki
væri verið að fara eftir því sem lagt
var upp með, en við höfum enga
staðfestingu á því í myndaformi eða
slíku. Okkar starfsmaður gekk um
svæðið og sá ekkert blóð. Við næstu
dreifingu verður fylgst vel með
þessu,“ segir Silja. Til sé heimild til
að stöðva verkefnið ef upp kemur
að blóði sé dreift.
Náttúrustofa Norðausturlands
hefur fylgst með dreifingunni og
tekið eftir ásókn fugla, aðallega
máva. En hún sé þó tímabundin og
telur ráðið ásóknina ekki ástæðu til
að hætta við verkefnið. Fuglar sæki
nú þegar í Laxársvæðið.
„Þegar var búið að veita Kolviði
leyfi til skógræktar á Ærvíkurhöfða.
Við sáum samlegð í því að nota gor-
inn frá Norðlenska í því verkefni í
samstarfi við Kolvið,“ segir Silja,
aðspurð um hvers vegna afskekkt-
ari lönd sveitarfélagsins hafi ekki
verið valin.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Óttast riðu frá sláturhúsagori
Sveitarstjórn Norðurþings hefur heimilað að gori úr sláturhúsi Norðlenska verði dreift í Ærvíkurhöfða
til uppgræðslu. Bóndinn á Laxamýri lýsir sveitarfélagið ábyrgt, sýkist fé hans af riðu úr úrganginum.
Gori úr sláturtíðinni var dreift yfir Ærvíkurhöfða í haust í því skyni að græða upp skóg á svæðinu. MYND/KK
Það er helst riðan
sem við erum
hrædd við, en líka aðra
sjúkdóma.
Jón Helgi Björns-
son, bóndi á Laxa-
mýri
STJÓRNMÁL Líklegt er að stillt verði
upp á lista Viðreisnar í öllum kjör-
dæmum.
Í Suðvesturkjördæmi verður for-
maðurinn, Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, án efa áfram í forystu.
Fyrsti formaður f lokksins, Bene-
dikt Jóhannesson, hefur sagst vilja
vera í forystu á suðvesturhorninu.
Viðreisn hefur bætt töluvert við
sig fylgi í könnunum og gæti því
fjölgað þingmönnum. Allir fjórir
þingmennirnir eru af höfuðborgar-
svæðinu; tveir í Kraganum og einn
í hvoru Reykjavíkurkjördæminu,
þær Hanna Katrín Friðriksson og
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Varaformaðurinn Daði Már
Kristófersson sækist ef laust eftir
forystusæti í Reykjavík og því gæti
uppstillinganefnd látið aðra hvora
þingkonuna víkja fyrir honum.
Þess má geta að Þorbjörg var
í öðru sæti á eftir Þorsteini Víg-
lundssyni fyrir síðustu kosningar.
Regla um fléttulista er við upp-
stillingu hjá Viðreisn. Einnig er litið
til þess að hafa jafnvægi milli kynja
meðal oddvita í kjördæmunum sex.
Í Reykjavík eru María Rut
Kristinsdóttir, aðstoðarkona for-
mannsins, Dóra Sif Tynes og Diljá
Ámundadóttir orðaðar við fram-
boð. Nokkrir bæjarfulltrúar eru
líklegir til að vera á listum á höfuð-
borgarsvæðinu, þeirra á meðal Karl
Pétur Jónsson, Sara Dögg Svanhild-
ardóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir
og Einar Þorvarðarson.
Viðreisn náði aðeins tveggja
til þriggja prósenta fylgi á lands-
byggðinni í síðustu kosningum. Fáir
hafa verið nefndir til framboðs þar
en Guðmundur Gunnarsson, fyrr-
verandi bæjarstjóri á Ísafirði, hefur
lýst áhuga í Norðvesturkjördæmi.
Talið er að Viðreisn leiti á Suður-
nesin eftir forystu í Suðurkjör-
dæmi. Þar eru nefndir Guðbrandur
Einarsson, forseti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar, og Arnar Páll Guð-
mundsson formaður kjördæmis-
félags flokksins. – aá
Þingkona gæti þurft að víkja fyrir nýjum varaformanni Viðreisnar
Daði Már
Kristófersson,
hagfræðingur og
varaformaður
Viðreisnar.
Við viljum tryggja
það eigið fé sem
eftir er í félaginu fyrir
skaðabótamál sem á eftir að
höfða.
Guðbrandur Jóhannesson lögmaður
Reynt á höfnun
kyrrsetningar
Þrír létust í eldsvoðanum mikla á
Bræðraborgarstíg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TAKMARKAÐ MAGN
BÍLA Í BOÐI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP ® CHEROKEE
Helsti staðalbúnaður Jeep® Cherokee Longitude Luxury:
• 2.2 lítra 195 hestafla díselvél, 9 gíra sjálfskipting
• Jeep Active Drive I Select Terrain
með 4 drifstillingum,
• Rafdrifin snertilaus opnun á afturhlera
• Leðurinnrétting
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
• Íslenskt leiðsögukerfi
• Bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð
• Hágæða Alpine hljómflutningskerfi með
bassaboxi
• Apple & Android Car Play
• Bluetooth til að streyma tónlist og síma
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
FRÁBÆRT VERÐ: 7.990.000 KR.
ÖFLUG DÍSELVÉL - 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING
SPARNEYTINN - HLAÐINN LÚXUSBÚNAÐI
2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð