Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 8

Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 8
UTANRÍKISMÁL Íslendingar taka þátt í sameiginlegum þvingunum Evrópusambandsins gegn stjórn- völdum í Hvíta-Rússlandi. Í því felst meðal annars að forseti landsins Alexander Lúkasjenkó megi ekki stíga fæti á íslenska grundu. „Forseti Hvíta-Rússlands er einn þeirra sem landgöngubann nær til og því skal Ísland koma í veg fyrir að hann komi inn í landið eða hafi hér viðkomu,“ segir í svari utan- ríkisráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Önnur ríki sem taka þátt í þving- unaraðgerðunum eru EES-ríkin Noregur og Liechtenstein sem og þrjú umsóknarríki, Norður Make- dónía, Svartfjallaland og Albanía. Samkvæmt utanríkisráðuneytinu felast aðgerðirnar í landgöngubanni tiltekinna einstaklinga, frystingu fjármuna, banni við vissum þjón- ustuviðskiptum, vopnasölubanni og sölubanni á búnaði til bælingar innanlands. Evrópusambandið setti þvingan- irnar á í þremur þrepum fyrir jól og ná þær nú til alls 84 háttsettra ein- staklinga í hvít-rússneska kerfinu. Meðal annars ráðherra, háttsettra löggæslumanna, herforingja, erind- reka, hæstaréttardómara og hátt settra yfirmanna stofnana á borð við ríkissjónvarpið. Evrópusambandið hefur þegar lýst því yfir að Lúkasjenkó sé ekki réttkjörinn forseti Hvíta-Rúss- lands, en hann á að hafa sigrað með rúmlega 80 prósentum atkvæða í ágúst síðastliðnum. Framkvæmd kosninganna hefur verið harðlega gagnrýnd víða um heim og mikil mótmæli brutust út í kjölfar þeirra. Flúði mótframbjóðandinn Svetl- ana Tsíkhanóskaja til Litháens en Lúkasjenkó var svarinn í embætti í kyrrþey. Hafa meira að segja Rússar, nánustu bandamenn Lúkasjenkós, viðurkennt að framkvæmd kosn- inganna hafi ekki verið eins og best verður á kosið. „Rétt eins og mörg önnur lýð- ræðisríki bera íslensk stjórnvöld brigður á framkvæmd forsetakosn- inganna sem fram fóru í Hvíta-Rúss- landi í ágúst síðastliðnum og telja þær hvorki hafa farið fram í sam- ræmi við alþjóðlegar skuldbind- ingar Hvíta-Rússlands né standast viðmið um lýðræði og réttarríki,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins. Einnig var vísað í sameiginlega y f irlýsing u utanr ík isráðher ra Norðurlandanna og Eystrasalts- ríkjanna frá því í ágúst um að fram- ganga stjórnvalda í Minsk yrði ekki látin óátalin. Sagði Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra að kúgunin og valdníðslan væru með ólíkindum. Hundruð mótmælenda voru handtekin og látin dúsa þröngt. Lýstu margir þeirra pyndingum og ómannúðlegri meðferð af hálfu lög- reglunnar og nokkrir létust. Meðal þeirra sem handteknir hafa verið eru um 50 blaðamenn sem voru ekki að taka þátt í mótmælunum. kristinnhaukur@frettabladid.is Forseti Hvíta-Rúss- lands er einn þeirra sem landgöngubann nær til og því skal Ísland koma í veg fyrir að hann komi inn í landið eða hafi hér við- komu. Svar utanríkisráðuneytisins Lúkasjenkó fær ekki að stíga fæti sínum á íslenska grundu Alexander Lúkasjenkó og 83 aðrir háttsettir Hvít-Rússar mega ekki stíga fæti á íslenska grundu. EES ríkin og þrjú umsóknarríki Evrópusambandsins hafa ákveðið að taka þátt í þvingunaraðgerðum sam- bandsins gegn Hvíta-Rússlandi eftir vafasamar kosningar og ofbeldi stjórnvalda gegn mótmælendum. Lúkasjenkó svarinn í embætti í kyrrþey eftir mótmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY JAPAN Japanski bílaframleiðandinn Nissan stefnir á að allir bílar hans verði rafvæddir snemma á næsta áratug. Nissan segist munu beita sér fyrir nýjungum í rafvæðingu til að ná kolefnishlutleysi fyrirtækisins fyrir árið 2050. Þá kveðst Toyota stefna á að selja að minnsta kosti 5,5 milljónir raf- magnsbíla, eða um helming af sölu sinni á heimsvísu, árlega eftir 2025. Honda hyggst rafvæða tvo þriðju bíla sinna árið 2030. – atv Framleiða sífellt fleiri rafbíla Rafbíllinn Nissan Ariya. BANDARÍKIN Bandaríkin hafa heit- ið að endurvekja aðstoð við Palest- ínu sem var lögð niður á valdatíma Donalds Trump. Richard Mills, sendiherra Banda- ríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, sagði fyrir Öryggisráðinu að Joe Biden Bandaríkjaforseti styddi tveggja ríkja lausn Ísraels og Palest- ínu. Mills tók fram að Bandaríkin myndu einnig halda áframhaldandi stuðningi sínum við Ísrael. Palestínumenn slitu samskiptum við stjórn Trumps árið 2017. – atv Aðstoð send til Palestínu á ný LAND ROVER Discovery 5 SE Nýskr. 5/2019, ekinn 32 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 10.890.000 kr. Rnr. 420562. RANGE ROVER VOGUE TDV6 Nýskr. 7/2015, ekinn 58 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 12.890.000 kr. Rnr. 420564. JAGUAR F-PACE 180D Nýskr. 9/2018, ekinn 21 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 8.190.000 kr. Rnr. 420565. JAGUAR - LAND ROVER Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík 525 6500 / jaguarlandrover.is Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla. Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag. NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR LAND ROVER Discovery Sport HSE R-dynamic Nýskr. 11/2019, ekinn 15 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 9.990.000 kr. Rnr. 147678. JAGUAR I-PACE S EV400 Nýskr. 1/2020, ekinn 11 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur. Verð 9.690.000 kr. Rnr. 147748. JAGUAR E-PACE SE 150D Nýskr. 11/2019, ekinn 11 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 7.890.000 kr. Rnr. 147607. E N N E M M / S ÍA / N M 0 0 4 1 9 1 J a g u a r n o ta ð ir 6 b íl a r 5 x 2 0 2 8 ja n SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6 2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.