Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.01.2021, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 28.01.2021, Qupperneq 30
Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Með ilminum er hægt að þróa með sér vitneskju til að greina innihaldsefni í rauðvíni og hvítvíni. Le Nez du Vin“ , eða ilmur vínsins, lærist með að þroska og æfa sig í að lykta af númeruðum flöskum og á hver flaska sitt spjald í kassanum með greinargóðri lýsingu á innihaldinu. Þetta er notað til að þjálfa vínþjóna víðs vegar um heiminn, en ekki þarf neina sér- kunnáttu til að nýta sér þessa lausn, síður en svo, og þetta er frábært fyrir allt vínáhugafólk til að þroska sitt nef og geta lesið hver uppi- staðan í víninu er. Mér finnst einnig heimur ilmupplifunar mjög heillandi og hef notað lyktarhönnun mikið í ýmsum hönnunartengdum verk- efnum, en þar er verið að bæta við upplifun sem er meira en bara hljóð og sjón. Við erum ótrúlega fljót að skynja minningu eða hugsun þegar við finnum lykt og hefur lyktarhönnun verið að ryðja sér til rúms hjá fyrirtækjum í þeirri upplifun sem viðskiptavinurinn á að upplifa. Ilmur vínsins kemur í ýmsum stærðum og gerðum í fallegri bók sem inniheldur ilm- glösin, bók og spjöldin til að fræðast um ilm- tegundirnar. Þetta er allt handunnið og endist ilmurinn í glösunum í 5 ár eða lengur, ef hann eru geymdur við góðar aðstæður. Þetta er sannarlega áhugaverð viðbót til að breikka lífsstílstengd áhugamál flestra. Hægt er að fræðast nánar um ilminn á www. ilmurvinsins.is Þroskaðu þína ilmupplifun! Seinni hluta síðasta árs kom á markaðinn í fyrsta sinn á Íslandi hugarfóstur Frakkans Jean Lenoir, sem er ilmsett með 54 litlum flöskum sem hver inniheldur kjarnaolíu til að auka lyktarupplifun. Vínáhugamenn hafa gaman af því að þefa úr vínglösum og geta sér til um innihaldsefnin. Ilmflöskurnar eru 54 talsins. Þær henta einkar vel fyrir þá sem vilja fræðast um inni- hald víns með því að þefa úr glasinu. Arnar Gauti Sverrisson arnargauti@sirarnargauti.is 8 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U RSIR ARNAR GAUTI - LÍFSSTÍLSBLAÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.