Fréttablaðið - 28.01.2021, Síða 31
Slippfélagið býður upp á fjölbreytt litaúrval sem er sérvalið af hæfileikaríkum
hönnuðum og fagurkerum.
Nýja litapallettan sem ber heitið
Ilmur hefur strax fengið mjög góð
viðbrögð. Enda fáguð mjúk palletta
sem heillar. Það sem er svo áhuga-
vert við þetta samstarf Slippfélags-
ins við hönnuði er að þetta sparar
mörg skrefin við val og ákvörðunar-
töku þegar á að fara í framkvæmdir
þar sem hönnuðurinn sem vinnur
við þetta allt árið er búinn að
leggja mikla vinnu í að auðvelda
viðskiptavinum Slippfélagsins að
velja liti sem passa saman í rýmum
þeirra. Þetta er snjöll hugsun hjá
Slippfélaginu og hefur verið vel
tekið af viðskiptavinum þeirra.
Saga Slippfélagsins spannar
meira en heila öld og hefur það
ávallt verið leiðandi í málningar-
efnum og litavali.
Vörurnar eru flestar umhverf-
isvænar og bera flestar merki
græna Svansins, sem er gæða-
vottun um að varan sé betri
fyrir umhverfið og heilsuna.
Svansmerktar vörur eru lausar
við leysiefni og skaðlega losun.
Svansmerkt málning Slippfélags-
ins uppfyllir því ströng heilsuvið-
mið og ná þeir staðlar til dæmis
yfir þær kröfur sem astma- og
ofnæmissjúklingar gera.
Slippfélagið er stolt af því að
geta boðið viðskiptavinum upp á
þennan umhverfisvæna valkost á
málningarefnum.
Litatónar innblásnir úr náttúrunni
Hjá Slippfélaginu er mikið úrval flestra gerða af málningu. Vörurnar eru umhverfisvænar og
lita úrvalið sérstaklega mikið. Slippfélagið býður mikið úrval af málningu utan- og innanhúss.
Liturinn Lakkrís. Afar fallegur liturinn minnir á lit lakkrísrótarinnar. Hör á veggjum og Dimmur í lofti.
Sæja innanhússhönnuður
„Línan Ilmur er innblásin af
jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Nöfnin á litunum tengjast ilmum
úr náttúrunni og gefa til kynna
hvernig þeir eru á litinn. Fallegt er
að blanda litunum saman inni á
heimilum, hvort sem er með fylgi-
hlutum sem vísa í aðra tóna úr
línunni eða með því að deila þeim
niður á rými.“
Hvernig hugsaðir þú þessa lita
pall ettu þegar þú varst að skapa
hana?
„Hún þróaðist soldið að sjálfu
sér út frá minni vinnu. Ég hef verið
að vinna með nokkra af litunum
úr línunni síðustu ár og svo þegar
við fórum að ræða nýja línu fyrir
Slippfélagið þá setti ég kraft í að
finna nýja liti sem mér fannst
passa við þá fyrri.
En jafnframt langaði mig til
að búa til heildstæða línu sem
harmónerar öll saman. Það er því
upplagt að velja liti úr línunni á
rýmin sjálf og nota svo aðra tóna
til að byggja upp rýmið eins og
með húsgögnum, efnum og fylgi-
hlutum.“
Hvernig myndir þú lýsa þessari
litapallettu?
„Hlýlegir litatónar innblásnir úr
náttúrunni.“
Liturinn Hör á veggjum og Dimmur frá Slippfélaginu eru hér í lofti og setja
fallegan og notalegan svip á umhverfið. Björt og hlýleg hönnun Sæju.
Þessi litur er bæði framandi, róandi og fallegur. Hann heitir Krydd.
Þessi litur kallast Leir en hann er úr nýju litakorti Sæju. MYNDIR/AÐSENDAR
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is
KYNNINGARBLAÐ 9 F I M MT U DAG U R 2 8 . JA N ÚA R 2 0 2 1 SIR ARNAR GAUTI - LÍFSSTÍLSBLAÐ