Fréttablaðið - 28.01.2021, Síða 32
Að hanna húsgögn
var ávallt í okkar
plönum.
Heimili þeirra er fágað og hlýlegt þar sem þessir fagur-kerar hafa vandað vel til
verka í björtu fallegu húsi hönn-
uðu af Sigvalda Thordarsyni.
Nú eruð þið bæði arkitektar sem
er mjög heillandi, hvernig kom það
til og hvar lærðuð þið?
Bæði áttum við okkur þann
draum að verða arkitektar þegar
við vorum yngri, vorum bæði með
fyrirmyndir sem kynntu fagið
fyrir okkur. Fórum síðan saman í
nám í arkitektúr til Bandaríkjanna
í listaháskóla sem heitir Savannah
College of Art and Design (SCAD)
og lukum mastersnáminu árið
2012.
Hvernig mynduð þið lýsa
heimilinu ykkar?
Mikill hraði er á öllu í nútíma-
samfélagi, við leitumst eftir því að
heimilið búi yfir vissri ró ásamt
því að vera persónulegt. Við náum
því fram með náttúrulegu efnis-
vali og að ofhlaða ekki hlutum inn
á heimilið, hver hlutur hefur sína
sögu og fær að njóta sín.
Eigið þið uppáhalds hlut eða
húsgagn á heimilinu?
Listaverk eftir vini okkar,
keramik eftir fjölskyldumeðlimi
og hlutir sem við höfum safnað
okkur á ferðalögum koma fyrst
upp í hugann.
Nú stofnuðuð þið hönnunarfyr-
irtækið Former, hafði það blundað
lengi í ykkur ?
Að hanna húsgögn var ávallt í
okkar plönum. Að stofna fyrirtæki
í kringum það var rökrétt skref
eftir að við höfðum verið að hanna
vörulínuna og vera í vöruþróun í
dágóðan tíma.
Allt ferlið í kringum Former
hefur því verið frekar lífrænt í
okkar huga.
Hvar er hægt að nálgast vörur frá
Former?
Vörurnar fást hjá Epal, Nomad
og í netverslun okkar, former.is.
Hver er eftirlætis arkitektinn
ykkar og af hverju heillar hann
ykkur?
Högna Sigurðardóttir, Tadao
Ando, Peter Zumthor og Norm
arkitektar eru þeir sem koma upp
í hugann í f ljótu bragði. Þessir
arkitektar eiga það sameiginlegt
að vinna skemmtilega með nátt-
úrulega lýsingu og efni í verkum
sínum. Einnig eru oft á tíðum ekki
dregin nein mörk á milli inni- og
útirýma, heldur fá þau oft að fljóta
saman.
10 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R
Hver hlutur hefur sína sögu
Rebekka og Ellert eiga fallegt heimili í Kópavogi. Þau eru með master í arkitektúr og starfa hvort
á sinni stofunni. Þau stofnuðu hönnunarfyritækið Former sem hefur vakið verðskuldaða athygli.
Vera, hillan
sem þau hjónin
hanna og selja í
þekktum hönn-
unarverslunum
og á Former.is.
Hillan er hluti af
innréttingunni
og geymir glös.
Rebekka og Ellert eru mikið fyrir lif-
andi blóm eins og sjá má hjá þeim.
Rebekka og Ellert hafa gert heimilið sitt notalegt og hvert smáatriði er vel úthugsað enda starfa þau bæði sem arki-
tektar og vilja hafa fallegt í kringum sig. Litirnir á veggjum eru mildir og koma vel út í blómlegu umhverfinu.
Kósí horn í stofunni þar sem arininn
lýsir upp á köldum kvöldum.
Horft er yfir stofuna frá eldhúsinu. Hægt að sitja við gluggann og lesa.
Fallegt horn þar sem hægt er að
setjast niður með kaffibollann.
Rebekka Pétursdóttir og Ellert Hreinsson arkitektar á fallegu heimili sínu í
Suðurhlíðum Kópavogs. Þau kjósa ró á heimilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SIR ARNAR GAUTI - LÍFSSTÍLSBLAÐ