Fréttablaðið - 28.01.2021, Síða 52

Fréttablaðið - 28.01.2021, Síða 52
Leikurinn Cyber punk 2077 frá framleiðand-anum CD Projekt RED kom út fyrir PlaySta-tion, Xbox og PC-tölvur þann 10. desember síð- astliðinn. Margir höfðu beðið eftir honum með mikilli eftirvæntingu, en útgáfan fór illa. Leikurinn reynd- ist mjög gallaður og virkaði svo illa á venjulegum PlayStation 4 vélum að hann var tekinn úr sölu í staf- rænni verslun PlayStation. Enn er samt von á uppfærslum fyrir leikinn sem gætu bætt virkni hans og breytt þessu og í síðustu viku kom viðgerð sem bætti margt, þó að hún hafi líka skapað ný vandamál. Ég spilaði leikinn á PlayStation 4 Pro, sem er öf lugri en venjuleg PlayStation 4 vél, þannig að hann virkaði betur hjá mér en á venju- legri PlayStation 4, en verr en á Play Station 5. Hann virkar svo mun betur á PC-tölvum, enda var hann upphaflega hannaður fyrir þær. Óheiðarleg viðskipti Eftir um 60 tíma spilun er ég búinn að klára leikinn og meirihlutann af stóru aukaverkefnunum, ásamt miklum fjölda af litlum verkefnum. Leikurinn er vissulega meingallað- ur, en mín reynsla var að næstum allir gallarnir séu útlitsgallar og smáatriði sem skemma ekki fyrir framvindu leiksins. Leikurinn hefur samt átt það til að drepa á sér, sem er leiðinlegt, en hann vistar mjög oft og er f ljótur aftur í gang. Það er ekki óalgengt að stórir leikir feli í sér alls kyns galla, en framleiðendur Cyberpunk leyfðu gagnrýnendum bara að spila hann á PC-vélum og enginn mátti sýna hvernig hann virkaði fyrir útgáfu. Það ber vott um óheiðarleika í við- skiptum sem hefur stuðað margra. Vonandi tekst CD Projekt RED að fínpússa leikinn svo hann fái að njóta sín eins og hann á skilið. Alltaf nóg að gera Cyberpunk 2077 gerist í dystóp- ískum hliðarveruleika árið 2077 og sögusviðið er borgin Night City á vesturströnd Bandaríkjanna. Við spilum sem málaliðinn V og brun- um um borgina á ýmsum ökutækj- um til að leysa fjölbreytt verkefni sem skiptast í aðalverkefni, auka- verkefni og alls kyns smærri verk- efni. Leikmaðurinn hefur mikið val um hvernig hann sérhæfir sig, leysir verkefnin og sagan þróast, eins og sönnum hlutverkaleik sæmir. Ég mæli með því að klára byrjun- ina þar til titilskjárinn kemur upp, áður en fólk hefst handa við að ráfa um borgina. Það er góð leið til að læra á leikinn og í raun er byrj- unin ein löng kynning á öllu sem leikurinn felur í sér og margt er nýtt. Svo opnast öll borgin og ævintýrið hefst af alvöru og leikmaðurinn fer að kynnast fólki sem hægt er að byggja upp náin sambönd við, en þau geta haft mikil áhrif á fram- vindu sögunnar. Sagan er skemmtileg, frumleg og spennandi og manni var ekki sama um persónurnar, sem fékk mig til að vilja halda áfram með aðalsöguna hraðar en borgar sig, því það er best að klára hliðarverkefnin á undan aðalverkefnunum. Leikmaðurinn er sífellt að fá ný verkefni og eftir því sem hann kemst lengra opnast fyrir fullt af nýjum, minni verkefnum og þau verða bæði arðbærari og fjölbreytt- ari. Cyberpunk er einstakur en minn- ir um leið á ýmsa aðra leiki. Hann byggir greinilega á grunni leikja eins og Fallout, Deus Ex, Watch Dogs, The Witcher 3 og Far Cry, en blandar ólíkum hlutum þess- ara leikja saman á frumlegan hátt, bætir ýmsu nýju við og hristir þetta saman í eitthvað sem er kunnuglegt en um leið alveg nýtt. Gullfalleg borg Cyberpunk er gullfallegur og Night City er margbrotið og þaulvandað meistaraverk sem er virkilega gaman að heimsækja. Það vantar stundum svolítið upp á mannfjöld- ann og umferðina og gervigreind almennra borgara er ansi takmörk- uð, en samt sem áður virkar borgin mjög lifandi, fyrst og fremst þökk sé frábærri hljóðhönnun. Hvarvetna heyrir maður auglýsingar, tilkynn- ingar, fréttir, tónlist og samræður sem láta allt lifna við. Falleg neon- lýsingin og alls kyns umhverfis- brellur gera líka gríðarlega mikið til að lífga hana við. Teikningar af fólki, andlitum og hreyfingum þess eru mjög góðar og fullar af smáatriðum. Fólk er fjölbreytt, hefur sterkan karakter og hægt er að lesa tilfinningar úr andlitum þess. Leikararnir standa Meingallað meistaraverk Leikurinn Cyberpunk 2077 kom út fyrir PlayStation, Xbox og PC-tölvur í desember og hefur vakið mikla athygli. Cyberpunk er gullfallegur og Night City er margbrotið og þaulvandað meistarverk sem er virkilega gaman að heim- sækja. Keanu Reeves er skemmtilegur í hlutverki Johnny Silverhand, sem er aðal- persónan á eftir V, sem leikmaðurinn stjórnar. MYNDIR/SKJÁSKOT Í Cyberpunk sér maður margt nýtt, eins og skrúðgöngu með heilmyndum. Hér er minn V að spóka sig í sólinni og aldrei þessu vant er hann ekki klæddur eins og alger trúður, en tískan í Cyberpunk er mjög sérstök. TÖLVULEIKIR Cyberpunk 2077 Framleiðandi: CD Projekt RED Fyrir: PlayStation, Xbox og PC- tölvur sig líka mjög vel og Keanu Reeves er skemmtilegur í stóru hlutverki sem Johnny Silverhand. En eftir að hafa séð hvernig leikurinn lítur út á öf lugri PC-vél er augljóst að Cyberpunk er næstu kynslóðar leikur, sem haltrar þegar hann er keyrður á gömlum leikja- tölvum. Magnaður hljóðheimur Hönnun hljóðsins er frábær. Hver einasta byssa hefur einstakan hljóm, talsetningin er góð og það er magnað að heyra borgina tifa. Tónlistin er líka virkilega góð. Hún hæfir aðstæðum vel og gerir alla bardaga meira spennandi. Þegar maður keyrir um borgina er svo hægt að hlusta á nokkrar ólíkar útvarpsstöðvar með mörgum frá- bærum lögum eftir vinsæla tónlist- armenn. Ég var sérstaklega ánægð- ur með að það er heil útvarpsstöð helguð öfgaþungarokki, Ritual FM. En það kemur fyrir að hljóðið virkar ekki sem skyldi og það koma stundum skrítnar þagnir. Persónur tala líka stundum hver yfir aðra eða byrja að segja eitthvað og hætta svo í miðri setningu. Þarna eru aftur margir litlir gallar. Get ekki hætt að spila Það er hægt að klára aðalsöguna í Cyberpunk á svona 20 tímum, en það er betra að eyða miklum tíma í aukaverkefni fyrir alla félaga V til að upplifa alla söguna og fá öðruvísi endi. Þar að auki eru ótal smærri verkefni, svo það er auðveldlega hægt að fá 60-80 tíma út úr einni ferð í gegnum hann, jafnvel meira. Þar að auki býður hann upp á þrjá valkosti um úr hvaða þjóðfélags- hópi V kemur, sem mótar upplifun- ina á ólíkan hátt. Þannig að það er hægt að spila hann í gegn þrisvar og fá ólíka útkomu í hvert skipti. Þó að ég sé búinn með söguna og leikurinn hafi ýmsa galla get ég ekki hætt að spila Cyberpunk. Borgin hefur svo mikið aðdráttarafl, bar- dagarnir eru svo skemmtilegir og það er svo gaman að safna dóti og farartækjum og prófa ólík vopn og tölvubúnað fyrir líkamann sinn. Verkefnin eru líka svo ólík að manni leiðist aldrei. Niðurstaðan Cyberpunk 2077 er að mörgu leyti magnaður og vandaður leikur. Það er stórskemmtilegt að týnast í Night City og upplifa allt það sem borgin hefur upp á að bjóða, verkefnin eru sérlega fjölbreytt, það er hægt að nálgast þau á ólíkan hátt og sagan er góð. En hann er líka augljóslega gall- aður og ókláraður. Metnaðurinn bar leikinn ofurliði. Hann átti aldrei að koma út fyrir gömlu leikjatölvurnar, heldur er þetta næstu kynslóðar leikur sem þarf næstu kynslóðar vélbúnað til að njóta sín. Ég mæli eindregið með því að spila Cyberpunk 2077. Mér finnst hann vera meistaraverk og ég myndi gefa honum hærri einkunn ef hann hefði ekki verið svona gallaður og vildi óska að hann hefði fengið meiri tíma en ekki verið gefinn út ókláraður. En ég mæli með því að ganga úr skugga um að tölvan þín sé nógu öf lug fyrir hann (a.m.k. PS4 Pro eða betra) eða bíða þar til uppfærslur hafa gert hann léttari í keyrslu á eldri leikjatölvum. Oddur Freyr Þorsteinsson NIÐURSTAÐA: Cyberpunk 2077 er að mörgu leyti magnaður og vandaður leikur, en hann er líka augljóslega gall- aður og ókláraður. 2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.