Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Blaðsíða 13

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Blaðsíða 13
greinilegt að þau íþyngdu honum verulega, tókst honum þó að brosa í gegnum tárin vegna klappliðsins kurteisa sem var í meirihluta. Ráðstefnudagar Á mánudagsmorgni hófst hið eigin- lega starf hvers ráðstefnugests með fyrirlestrum og vinnuhópum ýmiss konar. Eg sá fólk þeysast um í leit að fundarstöðum. Ég hafði sjálfur skráð mig á fyrirlestur með yfir- skriftinni, Starfsmenn í NGO- starfi, það er í frjálsum félagasam- tökum (Non Governmental Org- anizations). Ég fann loks staðinn og var þar fyrir nokkuð stór hópur manna. Blandaðist þarna saman fólk alls staðar frá en þó var áber- andi mikið af fólki frá Afríkuríkj- unum. Þarna voru flutt mörg áhugaverð erindi. Áhrifamest fannst mér þó að skiptast á skoðun- um og reynslu augliti til auglitis eftir fyrirlestrana. Þarna hitti ég ungt fólk sem starfar við alnæmisfræðslu meðal ungmenna á Sri Lanka í skugga stríðsástands Tamíla og ríkisstjórn- arinnar þar. Við fórum síðan sam- an, lítill hópur, og snæddum dýr- indis taílenskan hádegisverð og spjölluðum um heima og geima, sögðum meðal annars sögur af heimslóðum okkar og aðstæðum þar. Ég ætla að láta það vera að telja upp allt sem fyrir bar næstu daga í smáatriðum, fremur að stikla á stóru því annars gæti grein þessi orðið að bók. I einum salnum voru um rúm- lega 500 kynningarbásar. Þetta framtak var til að kynna hina ólíku hópa sem koma að alnæmismálum. Það var ansi fróðlegt að ganga þar um og voru margir básarnir ansi skrautlegir. Þarna var kynnt hið ótrúlega fjölbreytta starf sem fram fer víða og snertir þennan alvarlega sjúkdóm. Auðvitað vökti minning- arbásarnir mismikinn áhuga og oft var fjölmenni þar sem verið var að útbýta ókeypis varningi ýmiss kon- ar, svo sem töskum og lyklakipp- um, af einhverjum ástæðum virtist ekki vera eins mikill áhugi þar sem verið var að dreifa smokkum! Forvarnarstarf í trássi við yfirvöld Ég kynnti mér starfsemi nokkurra félagasamtaka frá þremur af fátæk- ari nágrönnum Taílendinga, rná þar nefna bás Khmera frá Kambódíu og bás Búddamunka frá Laos sem sjá að miklu leyti um alnæmis- fræðslu í skólum heimalands síns og bás samtaka frá Myanmar (fyrr- verandi Burma) sem er gert nær ókleift að starfa heimafyrir vegna ógnarstjórnar hersins og eru því staðsett í Taílandi. Yfirvöld í Myan- mar viðurkenna ekki vandamál er snúa að alnæmi, frekar en mörg önnur er snerta mannréttindi. Þetta hugrakka fólk gaf mér myndabækling sem notaður er í forvarnarstarfi þeirra. Khmerarnir og munkarnir frá Laos notast einn- ig við svipaða myndabæklinga í for- varnarstarfi sínu í sveitum landa sinna en myndirnar koma að góðu gagni þar sem menntun er lítil í fá- tækum bændasamfélögum og lestr- arkunnátta dræm. Starfsemin í Myanmar þarf að fara fram með Mynd af veggspjaldi á ráðstefnunni ítrustu varkárni og að mestu undir yfirborði kerfisins. Engar áreiðan- legar tölur eru til um fjölda smit- aðra í Myanmar frekar en í Laos og Kambódíu. Viðmælendur mínir voru þrátt fyrir þetta bjartsýn á að forvarnarstarf væri að bera árangur í heimalöndum sínum en fólkið frá Myanmar vildi koma að þeirri ósk sem þau bera í brjósti sér að flokki Aung San Suu Kyi, Lýðræðisbanda- laginu, tækist að komast til valda einn góðan veðurdag. Þau kalla eft- ir meiri stuðningi frá alþjóðasamfé- laginu. Ég spyr: Erum við í alls- nægtunum á Vesturlöndum að gera eitthvað til að hjálpa þeim? Ég kynnti mér einnig áhugaverð- an bás samtaka starfandi vændis- kvenna frá Indlandi, en þær vildu vekja athygli á þessari gömlu starfs- grein hvort sem fólki líkaði það betur eða verr. Samtökin vilja sjá öruggara starfsumhverfi, meiri fræðslu um hiv-smit og almennari notkun smokksins. Einnig fannst mér áhugaverð yfirskriftin á nokkrum borðum þeirra, stóð þar meðal annars SEX WORK IS WORK og STOP DISCRIM- INATING OUR CUSTOMERS, þóttu mér þessar yfirlýsingar ekki alveg eiga samhljóm í sænska mód- elinu um vændi, án þess þó að ég ætli hér að taka afstöðu til þess. All- ar raddir þurfa jú að fá að heyrast og fengu svo sannarlega að heyrast þarna. Á öðrum stað voru samtök hiv-jákvæðra kynskiptinga frá Frakklandi að kynna sig, bás þeirra var afar skrautlegur og móttökurn- ar ansi skemmtilegar. Þar var ég upplýstur af mikilli innlifun um mál skjólstæðinga samtakanna sem oft á tíðum eiga í vök að verjast, en það má kannski segja að meðlimir samtakanna tilheyri minnihluta- hópi minnihlutahópa. Ég skoðaði einnig kynningarbás hjá samtökum hiv-jákvæðra múslima sem ég satt að segja hef lítið heyrt af hvorki í starfi mínu hjá Alnæmissamtökun- um né í fréttum af alnæmi úr þeirra heirni. Þetta eru regnhlífarsamtök sem starfrækt eru í nokkrum lönd- rauði borðinn 13

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.