Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Blaðsíða 17

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Blaðsíða 17
þeir iðulega smitast af lyfjaþolnum berklum og lifrar- bólgu sem eykur enn á alnæmisvandann. Það hefur sést í könnunum að kynmök og vímuefnanotkun við- gengst í stórum stíl í fangelsum en læknisaðstoð er mjög takmörkuð nema á fáeinum stöðum þar sem er- lendar hjálparstofnanir koma að verki. Nýlega hafa aðvaranir rússneskra yfirvalda farið að nálgast þau viðhorf sem alnæmisfélög hafa haldið fram, að alnæmisfaraldurinn sé að fara úr böndunum . Opinberlega eru 240.000 sagðir hiv-smitaðir í Rúss- landi og 800 greindir með alnæmi, þar af 191 barn. Sex hundruð hafi dáið fram til þessa. Nýlega áætlaði Vadim Pokrovsky læknir, helsti alnæmissérfræðingur Rússa og yfirmaður alnæmismeðferðarstofnunarinnar í Moskvu, að hiv-smitaðir væru 1,5 milljónir og að á móti hverju staðfestu smiti væru 4,5 ógreind. Tölur þessar byggjast á næstum 25 milljónum hiv- prófum meðal almennings undanfarinn áratug. Fyrir árið 1996 höfðu 600 próf reynst jákvæð. Menn hafa áhyggjur af því að áætlanir yfirvalda séu alvarlega gallaðar. Pedro Chequer er yfirmaður Moskvuskrifstofu Alnæmisstofnunar Sameinuðu þjóð- anna og stjórnaði uppbyggingu alnæmisvarna í heima- landi sínu, Brasilíu, sem þykja til fyrirmyndar. Hann segir: „Það er sagt að 240.000 séu smitaðir af hiv- veirunni og að alnæmissjúkir séu innan við 1.000. Þetta getur ekki staðist. I Brasilíu eru 700.000 hiv- smitaðir og alnæmissjúkir eru orðnir 230.000. Það er eitthvað bogið við tölurnar hér.“ En dr. Pokrovsky heldur því fram að alnæmistilfellin séu svona fá vegna þess hve stutt er síðan sjúkdómurinn barst til landsins. Eftir hrunið Alnæmisvandi Rússa er afleiðing af falli kommúnism- ans. Rússar tóku ekki einungis upp kapítalisma og hrossalækningar í efnahagsmálum, heldur einnig það sem þar er kallað frelsi og syndir Vesturlanda, svo sem sterk fíkniefni og vændi. Einkavæðing atvinnuveganna, þar á meðal úttútn- aðra og spilltra heilbrigðisstofnana, olli skjótu hruni á heilbrigðisþjónustunni og útbreiðslu sjúkdóma. Arið 1996 var áfengissýki orðin landlæg og berklar, sárasótt, lekandi og lifrarbólga B og C. Þriðjungur landsmanna var atvinnulaus en tala eiturlyfjafíkla hafði hundrað- faldast svo að fangelsin eru yfirfull. Miðað við gang sjúkdómsins annars staðar leggst hann afar þungt á ungt fólk í löndum fyrrum Sovét- ríkja. Af hiv-smituðum eru 80% innan við þrítugt og í Mið-Asíulöndunum er helmingur smitaðra innan við tvítugt. I byrjun var faraldurinn bundinn við Moskvu og St. Pétursborg en hefur nú borist til fjarlægra og fátækra landsvæða svo sem Síberíu. Þetta veldur því að banda- rískir stjórnmálasérfræðingar telja líklegt að ef ekkert verður að gert komi að því að faraldurinn verði út- breiddari en nú er í Afríku sunnan Sahara. Nú greinast 500-800 hiv-smit á viku og kynmök gagnkynhneigðra eru vaxandi smitleið umfram kyn- mök samkynhneigðra og fíkniefnanotkun. Árið 2001 áttu kynmök gagnkynhneigðra 10% hlut í nýsmiti en árið 2003 25%. I alnæmisbílnum í Krasnoselski-hverfi er talan 50%. Meðalaldur nýsmitaðra stúlkna hefur jafnframt lækkað og eru þær nú að meðaltali tveimur og hálfu ári yngri en nýsmitaðir karlar. Stúlkur verða illa úti Að baki þessum tölum er kynslóð rússneskra stúlkna sem verða heróínfíklar, hefja vændi og smitast af hiv- veirunni og lifrarbólgu. Um allt land fjölgar korna- börnum sem hiv-smitaðar mæður háðar fíkniefnum hafa yfirgefið. Þessi börn verða á sjúkrahúsum til fram- búðar vegna þess að engin munaðarleysingjahæli vilja taka við þeim. Hiv-smit eykst líka meðal götubarna. Níu eða tíu ára byrja þau að þefa af lími og fyrr en varir orðin í hættu á að smitast við nauðgun eða, hjá eldri börnum, vændi. Fjórtán ára eru þau komin í óformlegar klíkur, sprauta sig með fiíkniefnum og eiga kynmök sín á milli og smitast og dreifa hiv-smiti. „Manni finnst þetta eig- inlega óhugsandi, jafnvel okkur hér,“ segir Alexander Tsekhanovitch, forstöðumaður alnæmisbílsins. „Við þorum ekki alveg ennþá að meta stöðuna.“ Þögn Pútíns Mótmælendur fyrir utan hús heilbrigðisráðuneytis Rússland halda því fram að alnæmismál hafi engan forgang. Vladimir Pútín forseti hefur enn ekki haldið ræðu opinberlega um málefnið. Rússar hafa enn ekki neina landsáætlun um meðferð alnæmis og forvarnir. Héraðsstjórnir og frjáls félaga- samtök hafa haft forystuna. Ráðaleysið birtist í skorti á fíkniefnameðferð og banni við notkun meþadons. Ríkisstjórnin hefur ekki varið einni rúblu í fíkniefna- meðferð svo að hjálp við fíkniefnaneytendur byggist eingöngu á framlögum frá útlöndum. Arsútgjöld rússneska ríkisins til alnæmismála eru 250 milljónir króna, innan við tvær krónur á mann. Meðalkostnaður við hiv- og alnæmismeðferð með lyfjablöndu kostar um 475 þúsund krónur á ári. „Þetta er verulegt vandamál þegar smitaðir eru 240.000,“ seg- ir Vadim Pokrovsky, en hann hefur vakið athygli yfir- valda á nauðsyn þess að auka fjárframlög. „Af þessum 250 milljónum eru um 140 milljónir ætlaðar til þess að veita læknismeðferð og það dugar aðeins fyrir nokk- ur hundruð manns. Ég býst við því að eftir ár hafi sjúklingunum fjölgað verulega en fjárhæðin ekki hækkað.“ Hann áætlar að 4,5 milljarða króna þurfi til forvarnastarfa einna og sér. rauði borðinn 17

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.