Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Blaðsíða 29
Að bera Rauða borðann er ætlað að sýna samúö og
stuðning viö fólk sem er smitað eöa sjúkt af alnæmi.
Rauði borðinn eryfirlýsing um stuðning, krafa um
umræðu, ósk um framfarir í rannsóknum og von um
að lækning finnist við alnæmi.
Rauði borðinn er leið til að gera alnæmi sýnilegt í
þjóðfélaginu.
Upphafsmenn Rauða borðans eru listamanna-
hópurinn Visual Aids í Bandaríkjunum. Þetta eru
samtök myndlistarmanna, listfræðinga og forstöðu-
menn listasafna. Þau vilja vekja athygli ó því að
alnæmi kemur okkur öllum við.
X-ið styrkir
Alnæmissamtökin
Þann 17. janúar síðastliðinn afhenti Frosti
Logason, fráfarandi útvarpsstjóri X-sins 97,7
formanni Alnæmissamtakanna, Birnu Þórðar-
dóttur, ágóða sem safnaðist á X-mas, árlegum
jólarokktónleikum útvarpsstöðvarinnar.
Jólarokktónleikar X-sins voru haldnir þann 19.
desember síðastliðinn á Nasa og söfnuðust þar
242.000 krónur. A tónleikunum komu meðal
annars fram Botnleðja, Ensími og Brain
Police, gáfu allar hljómsveitirnar vinnu sína,
þannig að ágóðinn rann óskiptur til Alnæmis-
samtakanna.
Alnæmissamtökin þakka kærlega fyrir sig og
hefur féð komið að góðum notum í forvarnar-
starfi.
Rauðí borðinn
Merkjasala
Alnæmissamtökin hafa selt merki sitt Rauða
borðann til að afla fjár til starfseminnar. Nokkrir
aðilar hafa komið okkur til aðstoðar við þetta verk-
efni. Má þar til dæmis nefna Fjölbraut í Breiðholti
sem seldi merkið í forvarnarviku sinni nú í haust
eins og lesa má um í blaðinu.
Annar velunnari hefur einnig lagt samtökunum lið
í þessu efni en það er Margrét Pálmadóttir söng-
kona og kórstjóri með meiru. Margrét lætur aldrei
deigan síga í því sem hún tekur sér fyrir hendur og
hafa Alnæmissamtökin oft á tíðum notið krafta
hennar. Nú hefur hún hafist handa við að selja
konum í kórunum sínum Rauða borðann og kunna
Alnæmissamtökin henni bestu þakkir.
Einnig fást merkin í versluninni Ranimosk á
Klapparstíg.
Sjálfboðaliðar við sölu Rauða borðans eru vel
þegnir, sölumenn fá ákveðinn hluta söluandvirðis.
Hafið samband við skrifstofuna s. 552 8586.
LÝÐH E I LSUSTÖÐ
www.lydheiisustod.is
OSTA 0G
SMIÖRSALAN SF
rauði borðinn 29