Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Qupperneq 32
Vilníusarráðstefnan
Alnæmi og hiv-smit í Evrópu
Hiv-smit í Evrópu hefur breyst mikið á undan-
förnum árum. Stærstu breytingarnar eru þær
að fjöldi smitaðra einstaklinga í álfunni allri
hefur vaxið, sérstaklega í yngsta aldurshópnum, 15-25
ára. Aðrir kynsjúkdómar, eins og klamýdía og lekandi,
hafa einnig aukist mikið í þeirra hópi. Sums staðar í
Evrópu hefur smitun meðal sprautufíkla aukist mikið.
Þessar breytingar benda til þess að óhreinar sprautur
og sprautunálar séu mikið notaðar og að óábyrgt kyn-
líf sé stundað. Slík hegðun getur verið undanfari
hiv/alnæmisfaraldurs. I sumum löndum Evrópu hefur
smitunartíðni margfaldast og er orðin ein sú hæsta í
öllum heiminum. Fjöldi hiv-jákvæðra í Evrópu er nú
um 580.000 manns og er fjöldi smitaðra um 0,3% af
fólksfjöldanum.
Staða hiv/alnæmis getur verið mjög breytileg milli
svæða í Evrópu.
I Mið- og Suður-Evrópu (Póllandi, Ungverjalandi,
Rúmeníu, Búlgaríu, fyrrum Júgóslavíu, Albaníu og
Tyrklandi) hefur tíðni hiv-smitunar verið lág í langan
tíma eða undir 0,1% í öllum löndunum.
I Vestur-Evrópu (Norðurlöndum, Bretlandseyjum,
Irlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Sviss, Italíu,
Portúgal og Austurríki) einkenndist níundi áratugur-
inn af miklum stöðugleika. Ný hiv-lyf sem komu á
markaðinn 1996 urðu til þess að sjúkrahúslegum
fækkaði verulega og dánartíðni snarlækkaði. Þrátt fyrir
þetta tvöfaldaðist tíðni nýrra tilvika hiv-smitunar frá
1995 til dagsins í dag. Algengasta smitleiðin er kynlíf,
en notkun óhreinna sprautna og sprautunála er al-
gengust í sumum löndum eins og í Frakklandi, Portú-
gal, á Spáni og Italíu.
Þegar Austur-Evrópa (Rússland, Ukraína, Eistland,
Lettland, Litháen og Moldavía) er skoðuð, kemur
fram að bæði kynsjúkdóma- og hiv-faraldrar geisa þar.
Fyrir um fimm árum var mjög fátítt að greina þar
hiv/alnæmi. Núna er smitunartíðni sjúkdómsins í
sumum löndum orðin sú hæsta í öllum heiminum.
Þetta á til dæmis við um lönd eins og Rússland, Ukra-
ínu og Eistland, en þar eru 1-2% fullorðinna smitaðir
af hiv/alnæmi. Þessi breyting hefur orðið á mjög
skömmum tíma. Þau sem greinast eru í 80% tilvika
ungt fólk á aldrinum 15-25 ára. Meginsmitleið sjúk-
dómsins hefur verið óhreinar sprautur og sprautunálar.
Nú er það að breytast og smitun með kynlífi er að
aukast, eins og sjá má á tölum frá Rússlandi. Arið
2000 voru til dæmis 96% þeirra sem greindust í Rúss-
landi með hiv-smit sprautufíklar og 3% gagnkyn-
hneigðir en tveimur árum síðar, eða árið 2002, voru
76% þeirra sprautufíklar og 12% gagnkynhneigðir.
Fjöldi hiv-jákvæðra barna hefur líka vaxið ört, eða yfir
144% frá árinu 2001 til 2002. Árið 2003 eignuðust
hiv-jákvæðar mæður í Rússlandi 3.111 börn. Þessi
aukning í smitun með kynlífi veldur áhyggjum þar
sem forvarnir verða viðameiri.
Landamæri þjóða Evrópu hafa á undanförnum árum
verið að opnast og heldur sú þróun vafalaust áfram.
Slíkt eykur samskipti og tengsl á milli landa. Þessi
breyting getur boðið hættunni heim ef smitsjúkdómar
eins og hiv fá að þróast óáreittir. Það hefur því kannski
aldrei verið mikilvægara en núna að horfa á þessi mál í
stóru samhengi út frá sjónarhóli Evrópu sem heildar
og í alþjóðlegu samhengi. Þegar um smitsjúkdóma er
að ræða þarf að vera hægt að bregðast fljótt við. Þörfin
fyrir aðstoð í þessum málaflokki er mikil í Austur-Evr-
ópu og þarf að taka hann föstum tökum sem fyrst.
Samtímis verður að halda áfram að leggja áherslu á
baráttuna gegn hiv/alnæmi í hverju Evrópulandi fyrir
sig.
Ráðstefnan í Vilníus
Á ráðherrafundi Evrópusambandins í Dublin í febrúar
á þessu ári kom fram áhugi Evrópuríkja á því að efla
verulega samvinnu í baráttunni gegn hiv/alnæmi, en
til þess þyrfti jafnframt sterka forystu. Þessa ábyrgð
ákvað Evrópusambandið að taka á sig, en það sam-
anstendur af 25 ríkjum. Eðlilegt þótti að sambandið
ætti frumkvæði að öflugri forystu á þessu sviði enda
hæfni til staðar í hópi aðildarríkjanna. Litið er svo á að
öll lönd í Evrópu eigi að bregðast sameiginlega við
þessum vanda. I Evrópu geisa alls kyns faraldrar, í
sumum löndum eru þeir nýir og í öðrum 20 ára gaml-
ir. Miðlun reynslu getur komið í veg fyrir að allir þurfi
að finna upp hjólið. Lögð er áhersla á að bæta sam-
vinnu á milli landa, að samræmi sé í aðgerðum og að
höfð sé samvinna með alþjóðlegum samtökum eins og
UNAIDS (Alþjóðleg barátta Sameinuðu þjóðanna
gegn alnæmi), Þróunarsamvinnuhjálp Sameinuðu
þjóðanna (UNDP) og Alþjóðheilbrigðisstofnuninni.
Stjórnvöld og aðrar viðeigandi stofnanir í hverju landi
fyrir sig þurfa jafnframt að láta til til sín taka og líka
lyfjaiðnaðurinn. Það verður að vinna á mörgum svið-
32 rauði borSinn