Vinnan


Vinnan - 01.12.1945, Side 11

Vinnan - 01.12.1945, Side 11
PERSÓNUR: Líknarstofnimin „Hægt andlát h.f “ Einþáttungur eftir F. SLADEN-SMITH Ungfrú Parsley Páskupinn Einbeitt kona Dóttir hennar Harold Herra Pettigrew Bates Mortimer lœknir Olivia Allardyce Dolores Kona S V I Ð I Ð : Móttökusalur í höll líknarstofnunarinnar ,,Hœgt andlát h.f.“ — Fremst á sviðinu er eins konar búðarborð, sem myndar hálfhring. Á miðju baksviði eru stórar, fagurskreyttar dyr, en yfir dyrunum er högg- myiul. Hœgra megin á sviðinu er skrifborð, og við það situr ungfrú Parsley, ritari stofnunarinnar, sem tekur á móii vœntanlegum viðskiptavinum, fögur stúlka og vel vaxin. Á skrifborði hennar eru hlöð, bcekur, ölglas og vatnskanna. Yzt til hœgri eru dyr lítillar biðstofu. Andspœnis skrifborðinu eru Aðalinngöngudyrnar. ■—• Virðulegur blœr yfir sviðinu. Nokkrir þœgilegir stólar handa viðskiptavinum. Allt umhverfið samkvœmt nýj- ustu tízku. Biskupinn stendur við skrifborðið, virðulegur maður um sextugt. Hann er nýkominn inn. Ungfrú Parsley: Komið þér sælir. Og velkominn hingað, virðulegi biskup. Biskupinn: Komið þér sælar. Þér kunnið að titla fólk, heyri ég. Hvernig gátuð þér vitað, hver ég er? Ungfrú Parsley: Kona í minni stöðu verður að vera skarpskyggn, herra minn. Auk þess, ef ég má orða það svo, eruð þér mjög þekktur maður innan kirkjufélags- ins, og það greiðir okkur stórfé fyrir að fylgjast með öllu, sem gerist. ... Jæja, hvað um það, það var mjög fallega gert af yður að líta inn til okkar, herra biskup. Þér óskið vafalaust eftir fljótri afgreiðslu. . . . Biskupinn: Guð komi til! Hvernig dettur yður það í hug, kæra ungfrú? Kirkjan fordæmir þessa stofnun. Ungfrú Parsley (með töfrandi brosi): Hverju eigum við þá að þakka heiðurinn af heimsókn yðar? Biskupinn: Ég þarf að semja fáeinar prédikanir, fyrir upprisuhátíðina, gegn vantrú nútíðarinnar. Og þar eð ég get ekki hugsað mér annað, en að allir, sem standa að þessari stofnun, séu gersneyddir allri guðstrú og ég hef aldrei prédikað um annað en það, sem ég þekki út í æsar, kom ég hingað til að afla mér ofurlítilla upp- lýsinga. Með yðar leyfi langar mig til að sjá með eigin augum, hvernig þessi furðulega stofnun framkvæmir hina hryllilegu starfsemi sína — Þið bjóðið viðskipta- vini yðar velkomna. Ungfrú Parsley: Auðvitað gerum við það, herra minn, og ekki sízt, þegar þeir eru virðingarmenn, eins og þér. Sem stendur er meginstarf okkar fólgið í því að auglýsa stofnunina. Almenningur hefur ekki enn þá áttað sig á því, hvílík kostakjör við bjóðum. En auð- vitað breytist það bráðlega. Enginn þarf að láta sér til hugar koma, að almenningur gleypi strax við nýjum hugmyndum. Og nú eru blöðin loksins hætt að ónáða okkur, svo að við höfum tóm til að láta raunhæfar upp- lýsingar í té. Biskupinn: Voru blöðin að ónáða ykkur? Ungfrú Parsley: Fyrstu þrjá mánuðina komst eng- inn nálægt húsinu fyrir blaðamönnum. Allir ungu blaða- mennirnir gerðu þetta hús að heimili sínu og sváfu hér, til þess að vera viðstaddir, ef eitthvað nýstárlegt kynni að bera að höndum. Það hafa birzt fjögur þúsund við- töl við mig og átta hundruð ljósmyndir af mér. Biskupinn: Ja, nú er ég hissa: Þér hafið sennilega verið farin að venjast þessu. Ungfrú Parsley: Enginn, sem starfar hér, má láta sér koma neitt á óvart. Biskupinn: Ja, er það satt? Ungfrú Parsley: Það er eitt af frumskilyrðunum. Jæja, herra minn, hvers óskið þér. Langar yður til að skoða biðstofurnar og dánarklefana, eða glugga í bæk- lingana, sem við höfum gefið út um starfsemi okkar? Biskupinn: Helzt vildi ég fá að hvíla mig hérna snöggvast og rabba ofurlítið við yður. Það gæti ein- hver komið, sem fróðlegt væri að kynnast. Ungfrú Parsley: Það er guðvelkomið. Fimmtudagur er einmitt mesti annadagur hjá okkur, hvernig sem í því liggur. Gerið svo vel að fá yður sæti. Það verður yndislegt að njóta félagsskapar yðar. Þér skiljið, að ég fæ mjög sjaldan færi á að tala við siðfágaða mennta- menn. Og ef til vill fer það svo, þegar þér hafið kynnzt allri starfstilhögun hér, að þér farið ekki aftur, heldur kjósið hægt andlát. VINNAN 235

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.