Vinnan


Vinnan - 01.12.1945, Síða 22

Vinnan - 01.12.1945, Síða 22
' 1! - ’'1 : ■ : . . . ■ ' > -VAfV Mt > '!■ - > <’ Setning ráðstefnunnar unum, sem drógu enga dul á að með stofnun Alþjóða- sambandsins væntu þeir aukins styrks í frelsisbaráttu hinna kúguðu þjóða. Ein rödd kom þó fram, er taldi ýms tormerki á því að hægt væri nú þegar að ganga til stofnunar Alþjóða- sambandsins. Það var Sir Citrine frá P. U. C. Hann taldi þátttöku brezku verkalýðshreyfingarinnar vera undir því komna, að viðunandi samkomulag næðist við I. F. P. U. og fagsamböndin. Til þess þyrfti langan tíma og væri rétt að fresta stofnun Alþjóðasambands- ins fram á næsta ár einhverntíma. Vítti hann þá til- hneigingu nýlendufulltrúanna, einkum Dange frá Ind- landi, að tengja stofnun Alþjóðasambandsins við frels- isbaráttu nýlenduþjóðanna. Taldi það vera að draga pólitík inn í málið, sem óhjákvæmilega yrði til að sundra. Þá taldi hann hinn öra vöxt verkalýðshreyf- ingarinnar í löndunum sem nýlega voru laus undan oki fasismans grunsamlegan og gefa ástæðu til nánari at- hugunar. Einnig vildi hann, að framkvæmdanefndin fengi vald til að breyta lögum Alþjóðasambandsins á fyrsta starfsári sambandsins, ef henni þætti þörf. Einn- ig lagði hann á rnóti því, að aðsetur sambandsins yrði í París, því hún væri það dýr borg, að tekjur þess myndu rýrna að þarflausu vegna dýrtíðarinnar þar. Þessi hjáróma rödd vakti undrun ráðstefnunnar, sér- staklega vegna þess að Citrine hafði, sem aðrir meðlim- ir 13 manna nefndarinnar, staðið að því áliti hennar, að stofna bæri Alþjóðasambandið tafarlaust. Fyrstir til andsvara urðu þeir Hillman og Poledano og síðan hver af öðrum frá ýmsum löndum heims. Hillman bað ráðstefnuna að minnast þess, að 13 manna nefndinni hefði verið neitað um fulltrúaréttindi á San Fransisco-rástefnunni, vegna þess að á bak við hana stóðu ekki skipulögð samtök verkalýðsins og taldi tilgangslaust að koma aftur til stórveldanna með beiðni um fulltrúaréttindi á alþjóðlegum ráðstefnum, nema á bak við stæðu öflug alþjóðasamtök, en hinsvegar höf- uðnauðsyn að verkalýðurinn gerði sig gildandi á þeim vettvangi. Poledano hélt eina af sínum eldheitu hvatningarræð- um og taldi verkalýðinn lítið hafa lært af hinni dýr- keyptu reynslu styrjaldarinnar, ef hann ekki gengi taf- arlaust til stofnunar Alþjóðasambandsins. Aðeins Conrog frá Kanada og Lindberg frá Svíþjóð tóku undir frestunartillögu Citrine, en þær raddir hjöðnuðu algerlega fyrir einingarvilja alls þorra full- trúanna og ábyrgðartilfinningu gagnvart umbjóðend- um sínum, verkalýðnum. Eftir tveggja daga umræður 246 VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.