Vinnan - 01.12.1945, Page 24
g) Að skipuleggja fræðslu fyrir meðlimi verkalýðsfé-
laganna um alþjóðlega samvinnu og vekja ábyrgð-
artilfinningu einstaklinganna fyrir hlutverki verka-
lýðshreyfingarinnar.
Til þess að ná þessu marki leggur Alþjóðasambandið
eftirfarandi meginatriði til grundvallar starfi sínu:
1. Fullkomið lýðræði innan verkalýðsfélaganna og
nána samvinnu þeirra,
2. stöðug tengsl við sambandsfélögin og bróðurlegan
stuðning við þau í starfi þeirra,
3. skipulagða dreifingu upplýsinga um reynslu verka-
lýðshreyfingarinnar í þeim tilgangi að styrkja sam-
starfið,
4. samræmingu baráttu þeirrar, sem verkalýðsfélögin
heyja til að tryggja sem bezt framgang alþjóðlegra
stefnumiða og ákvarðana verkalýðshreyfingarinnar,
5. verndun réttinda verkamanna er flytjast milli landa,
6. hagnýtingu hvers tækifæris til að kynna Alþjóða-
sambandið, takmark þess og tilganga og ákvarðanir
þess í einstökum atriðum.
Æðsta stofnun sambandsins er þingið, sem kemur
saman annaðhvert ár. Hvert landssamband í samband-
inu, hvað smátt sem er, upp að 250 þús. meðlimum,
má senda einn fulltrúa á þingið og einn fyrir hver 250
þús. upp að 5 milljónum. Sambönd með yfir 5 millj.
mezlima 1 fulltrúa fyrir hver 500 þús. Sambönd með
yfir 10 millj. meðlima upp að 15 millj. 1 fulltrúa fyrir
hverja 1 milljón meðlima. Sambönd með meira en 15
milljón meðlima hafa 1 fulltrúa fyrir hverjar 2 millj.
meðlima.
Atkvæðagreiðslur á þinginu fara að jafnaði fram
með handauppréttingu, en 2 landssambönd eða fleiri
geta krafist skriflegs nafnakalls og fer það þá fram á
þann hátt að 1 atkvæði er fyrir hver 50 þús. upp að
5 millj. samtök með meira en 5 millj. að 10 millj.
hafa auk þess 1 atkvæði fyrir hver 100 þús., og síðan
smálækkandi atkvæðisréttur, þannig að samtök með
yfir 15 millj. hafa 1 atkv. fyrir hver 400 þús. A þennan
hátt er réttur smáu sambandanna tryggður gagnvart
hinum stóru.
Þingið kýs miðstjórn Alþjóðasambandsins á þann
hátt, að hvert landssamband rseð 1 millj. meðlima eða
færri tilnefnir 1 fulltrúa og annan til vara, frá 1 millj.
upp að 4 millj. 2 fulltrúa og 2 til vara, frá 4 millj. upp
að 10 millj. 3 fulltrúa og 3 til vara, frá 10 millj. upp
að 15 millj. 4 fulltrúa og 3 til vara og 5 fulltrúa og 3
248
Þingið að störfum
VINNAN