Vinnan


Vinnan - 01.12.1945, Page 45

Vinnan - 01.12.1945, Page 45
-— Fyrst íbúarnir í Fontamara eru ekki á eitt sáttir um þetta, notfæri ég mér réttindi mín sem málsvari og oddviti hreppsnefndarinnar og útnefni Cavaliere Pelino, höfuðsmann hersveitar fasistanna, og Don Circo- stanza að fulltrúum íbúanna í Fontamara. I sartía bili réðust á okkur fimm eða sex hermenn og hröktu okkur út á veginn, þar sem hinir íbúarnir úr Fontamara voru. En Don Circostanza kallaði á eftir okkur: — Treystið mér, og þá mun allt fara vel. Þegar við vorum komnir aftur fyrir hermennina, var ekki hægt að sjá það, sem fram fór við lækinn. En það varð ekki á betra kosið en að fela lærðum manni, eins og Don Circosta-'sza, málefni sín. Fyrst gekk skjalaritarinn burtu frá læknum, því næst verkfræðingur nokkur og loks fjórir vegavinnumenn með rekurnar sínar. Við sáum, að Don Pelino og Don Circostanza áttu margt vantalað við vegavinnumennina. Við sáum ekki fyrir hermönnunum, hvernig farið var að því að skipta vatninu í tvo þrjá fjórðu hluta. En í dálítilli fjarlægð, þar sem gamli farvegurinn lá í bugðu fram með ávaxtagarði Giaconta Barletto, sáum Fyrst sagði Raffaele Scarpone okkur, að vatnið hefði mikið þeir tóku frá okkur. Þess vegna störðum við allir þangað, til að vita, hvað fulltrúar okkar og yfirvöldin hefðu komið sér saman um. —■ Felli þeir eins mörg tár og vatnsdroparnir eru, minnkað í læknum. Og þó að okkur væri Ijóst fyrir fram, að eitthvað mundi sjatna í læknum, fórum við allir að æpa og formæla umboðsmanninum. Smám sam- an minnkaði vatnið um helming, en ekki var látið staðar numið við það. . . . — Þjófar. .. . Þorparar. ... Ræningjar! æptum við. Þá skeði það fyrirvaralaust, að Filomena Druaterna, la Reccciuta, dóttir Cannarozzos, Giuditta Scarpone, Lisabetta Limona og fleiri sannkristnar konur krupu á kné og tóku að biðjast fyrir af mikilli fjálgi. — Blæði þeim jafnmikið og vatnið er, sem þeir ræna okkur! — Felli þeir eins mör gtár og vatnsdroparnir eru, sem þeir stela frá okkur! „Verði þeir slegnir kaunum og kýlum Megi innýfli þeirra umhverfast! Fái þeir konu og börn aldrei augum litið! Jesús, Jósef, Anna og María, bænheyrið oss á örlagastundu.“ Meðan þetta gerðist, lækkaði vatnið stöðugt í gamla lækj arfarveginum, og að lokum var hann með öllu þornaður. — Consummatum est, heyrðunr við Don Abbacchio tuldra í barm sinn. — Allt vatnið! Allt vatnið! Þeir hafa tekið af okkur allt vatnið! æptum við. Með miklum erfiðismunum tókst Don Circostanza að koma á friði og spekt. — Kyrrð! Kyrrð! æpti hann. — Ég er kominn hing- að til að tala máli ykkar! Lofið mér að kippa þessu í lag. . . . látið mig sjá um þetta. Fremjið engin axar- sköft! Svo gekk hann upp á veginn og þuldi hina venjulegu ræðu sína: „Þið treystið mér ekki lengur. . . . Þess vegna gengur allt á tréfótum. . . . Haldið þið, að hægt sé að koma málum sínum frarn með ópum og ofbeldi?“ Því næst vék hann máli sínu að umboðsmanninum og sagði: „Oánægja þessa fólks er réttmæt. .. . Það verður að komast að samkomulagi.... Ég höfða til hins góða hjartalags þíns, mannúðar og ástar á alþýðunni. I Fontamara býr ágætisfólk, sem verðskuldar fyllstu virð- ingu. .. . sveitarstjórnin hefur látið grafa þennan nýja lækjarfarveg á kostnað sveitarinnar. Það, sem búið er að gera, verður ekki aftur tekið. Kristur hefur sagt: „quod factum est, factum est. . . .“ — Rétt segir þú, hinn frómi, skaut Don Abbacchio inn í. — Kannski við getum komið okkur saman um ein- hvern tíma, þegar íbúarnir í Fontamara fá vatnið aftur, sagði Don Circostanza. — Þeir geta ef til vill huggað sig við það, að vatnið sé þeim ekki að eilífu glatað. ... Svo voru bornar fram margar uppástungur. — Fimmtíu ár, sagði umboðsmaðurinn. Þessi blygðunarlausu uppástungu svöruðum við með ópum og óhljóðum. — Þá látum við heldur drepa okkur. Við látum held- ur hneppa okkur alla í þrældóm. Þjófar! Þorparar! Loks heppnaðist Don Circostanza að stilla til friðar á ný. Hann vék máli sínu að umboðsmanninum og sagði: — Fyrir hönd íbúanna í Fontamara lýsi ég því yfir, að þetta boð er óaðgengilegt. Þetta er oflangur tími. Alltof langur tími.... — Fjörutíu ár, sagði séra Don Abbacchio. — Þrjátíu og fimm ár, sagði Don Pelino. En kafóníarnir fussuðu og sveiuðu við öllum þessum uppástungum. Þá tók Don Circostanza til máls enn á ný. — Leyfið mér, fyrir hönd hinna prúðu og iðjusömu íbúa Fontamara, að koma með agnarlitla uppástungu. Hvernig væri að reyna að koma sér saman um tíu lustri?*.... Ég skírskota enn til mannúðar umboðs- mannsins og sárbæni hann um að færa þessa miklu fórn. * lustri: fleirtala af ítalska orðinu lustrum, sem þýðir meðal annars fimm ára skeið. Framhald VINNAN 269

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.