Vinnan - 01.12.1945, Síða 49
SAMBANDS-
tíðindi
v _________________________________j
Nýr kjarasamningur
Fyrir skömmu var undirritaður samningur um kaup og kjör
milli Verkakvennafél. „Brynju“ á Seyðisfirði og vinnuveitenda.
Samkvæmt honum hefur tímavinnukaup kvenna hækkað úr kr.
1.40 í kr. 1.70 á klst. Eftirvinna greiðist með 50% álagi, en
nætur- og helgidagavinna með 100% álagi á dagvinnukaup.
Skipavinna kvenna er nú í dagvinnu kr. 2.60 á klst. Eftir-, nætur-
og helgidagavinna er greidd með sama álagi á dagvinnukaup
og hin almenna vinna.
Breyting á orlofslögunum
Steingrímur ASalsteinsson og Guðmundur I. Guðmundsson
alþingismenn flytja nú frumvarp til laga um breytingu á núgild-
andi orlofslögum fyrir hönd AlþýSusambandsins. Með frum-
varpi þessu er til þess ætlazt, að um fyrning orlofskrafna á hend-
ur atvinnurekendum fari samkvæmt lögum um fyrning kaup-
krafna yfirleitt, en samkvæmt lögunum, eins og þau eru nú,
fyrnast kröfur þessar, ef þær hafa eigi verið viðurkenndar eða
lögsókn hafin áður en næsta.orlofsár er liðið frá því kröfurnar
stofnuðust.
Ennfremur skulu, samkvæmt þessu frumvarpi, allir sjómenn
hafa rétt til fulls orlofs að öllu leyti á kostnað útgerðarinnar. En
svo sem kunnugt er, verða hlutasjómenn, ef þeir teljast taka þátt
í útgerðarkostnaði að kosta orlof sitt til hálfs á móti útgerðar-
manni eða verða án þess.
Nýir farmannasamningar
Þann 23. nóv s.l. voru undirritaðir samningar um Icaup og kjör
farmanna. Samningsaðiljar voru Sjómannafélag Reykjavíkur
annars vegar, en Skipaútgerð ríkisins og Eimskipafélag Islands
hins vegar. Vinnustöðvun hafði staðið yfir frá 1. okt. eða hátt
á annan mánuð.
Samkvæmt þessum nýju samningum er mánaðar-grunnkaup
farmanna sem hér segir:
SKÁIC
OMSK 1944 FRONSK VORN
Hvítt: I. Boleslavsky — Svart: A. Ufimtsev
1. e2—e4 e7—e6
2. d2—d4 d7—d5
3. Rbl—c3 d5xe4
4. Rc3xe4 Rg8—f6
5. Re4xf6 g7xf6?!
Hið venjulega áframhald af þessu afbrigði
er 5. Dxf6, 6. R—f3, h7—h6; 7. Bfl—d3,
Bf8—d6; 8. o—o, o—o; 9. D—e2, R—c6
með svipuðum möguleikum. — Svart kýs
fremur að etfla á tvísýnuna þegar í stað.
6. Rgl—f3
Þar sem búast má við að svart muni vilja
byggja upp stöðu sína með B á b7 virðist
eðlilegra áframhald: 6. Bcl—e3, Rb8—d7;
7. Ddl—d2, b7—b6; 8. Bfl—e2, Bc8 -b7;
9. Be2—f3 og ef nú 9...Dd8—c8, þá
d4—d5 með sókn fyrir hvítt, samanber
skákina Tartakower — Brinkmann, Kecs-
kemet 1927.
6... b7—b6
7. Bfl—b5+ c7—c6
8. Bb5—c4 Bc8—a6
9. Bc4—b3?
Tímatap. Betra er 9. Bxa6 en bezt er þó að
líkindum 9. Ddl—e2.
9... Dd8—c7
10. c2—c4 Rb8—d7
11. O—O 0—o—o
12. Ddl—e2 Bf8—d6
13. a2—a4
í svona stöðum, þar sem um sókn og gagn-
sókn er að ræða, verður oftast nær og hér-
umbil ævinlega að tefla hárnákvæmt, ef
ekki á illa að fara. Betra var 13. B—e3 og
næst ef til vill Hal—cl.
13 Hd8—g8
14. a4—a5 c6—c5!
15. a5xb6 Dc7xb6
16. Bcl—e3 Ba6—b7
17. d4xc5 Rd7xc5
18. Bb3—dl Hg8—g4
19. De2—d2
Vegna ónákvæmrar uppbyggingar hefur
hvítur að því er bezt verður séð verri stöðu
Menn hans eru illa staðsettir, hinsvegar
standa menn svarts vel til samleiks og árás-
ar kóngsstöðu hvíts. Betra var ef til vill
fyrir hvítan að leika 19. Rf3—el. Þó ekki
sýnist það glæsilegt.
19...... Rc5—e4!
Þar reið fyrsta skotið af. — Ef 20. Be3xb6
þá Re4xd2 og vinnur (21. Rxd2, Hxg2-|-
og mát í tveim leikjum).
20. Dd2—a5 Hh8—g8!!
Og annað strax á eftir. — Fallegur og
djúphugsaður leikur. — Ef nú 21. Be3xb6
þá Hxg2-|-; 22. K—hl, Re4xf2-)-! og ef nú
23. Bxf2, þá Hxh2-|- mát, eða 23. IIxf2,
H—gl-|- mát.
21. Rf3—el
Eini hugsanlegi vonarneistinn. — Ef 21.
g2—g3 þá Re4xg3! (22. Bxb6, R—e2+;
23. K—hl, Hg4—gl+ og mát í næsta leik)
22. h2xg3, Hxg3+; 23. Í2xg3, Db6xe3+
með pstöðvandi sókn.
21....... Hg4x2+!!
Þar fór þriðja skotið.
22. Relxg2 Re4—d2!!!
Og það fjórða í röð og síðasta. — Eftir
þennan leik er hvítur helsærður, ef nú 23.
Bxb6 þá Hxg2+; 24. Khl, Hxh2+; 25.
K—gl, H—hl+ og mát. Sama máli gegnir
með 23. f2—f3, því þá er Db6xe3; 24. Khl,
Hxg2! 25. Kxg2, Bd6—c5! afgerandi. —
Samt sem áður væri þessi leið þó sú bezta,
sem völ er á og betur í stíl við skákina en
sú, sem valin er.
23. Da5—d5 Bb7xd5
24. c4xd5 Db6xb2
25. Be3xd2 Da2xbl
26. Bdl—f3 Bd6xh2+
Hvítt gaf. — Ein af skemmtilegustu skák-
um, sem ég minnist að hafa séð.
Öli Valdimarsson.
VINNAN
273