Vinnan


Vinnan - 01.05.1946, Page 16

Vinnan - 01.05.1946, Page 16
f' AF ALÞJÓÐAVETTVANGI V._________________________/ Frá Sovét-Lettlandi Fyrir rúmum fimm árum síðan varð Lettland, með valdatöku alþýðunnar, eitt af lýðveldunum í Sovétríkja- sambandinu. A þeim ellefu mánuðum er liðu fram að innrás naz- istanna jókst iðnaðarframleiðsla landsins um 21%. At- vinnuleysinu var að fullu útrýmt og þjóðin naut þeirra réttinda, er stjórnarskrá Sovétríkjanna veitir. Verka- lýðshreyfingin var endurskipulögð á lýðræðisgrund- velli og meðlimatalan komst yfir 250.000. Lettneska þjóðin svaraði innrás nazistanna með svip- aðri hetjubaráttu og aðrar þjóðir Sovétríkjasambands- ins. Bændur og verkamenn gerðu nazistunum allt það tjón, er þeir máttu, sprengdu brýr, settu lestir af spor- inu og unnu öll þau skemmdarverk er við varð komið. Um leið og innrásarherinn var rekinn úr landinu hófst endurreisn verkalýðsfélaganna og landssambands- ins. Mikil áherzla var lögð á sósíalistiska samkeppni milli verkamanna og nú taka yfir 90% þátt í henni og einbeita sér að endurreisnarstarfinu. Þegar er lokið við að endurbyggja meiri hluta verksmiðj anna, sem naz- istarnir lögðu í rústir, og hafa þær tekið til starfa á ný. Fremstir í samkeppninni eru starfsmenn járnbraut- anna. Þjóðverjarnir eyðilögðu járnbrautarkerfið á und- anhaldinu, rifu upp teinana og sprengdu brýrnar, en þrátt fyrir skemmdirnar eru járnbrautarsamgöngurnar að komast í lag, fyrir framúrskarandi dugnað og áhuga verkamannanna. Verkalýðsfélögin láta sig miklu skipta lífskjör verka- mannanna. Mikil áherzla er lögð á aukna ræktun mat- jurta til að bæta upp matarskammtinn og sjá verka- lýðsfélögin verkamönnum fyrir útsæði og áhöldum. — Fjölda hvíldarheimila, heilsuhæla og sumardvalarheim- ila fyrir börn, hefur verið komið upp, einnig klúbbum, leikhúsum og bókasöfnum. Starf verkalýðssamtakanna í Hollandi N. V. V., stærsta verkalýðssamband Hollands, telur nú 230.000 meðlimi og líkur benda til að skammt sé þess að bíða að meðlimatala þess komist yfir 300.000, og þegar þess er gætt að atvinnuleysissjóðir verkalýðs- félaganna, sem áður drógu ýmsa að þeim, eru ekki leng- ur til, og æskulýðurinn hafði lítil kynni af verkalýðs- hreyfingunni á hernámsárunum, sýnir þessi öri vöxtur glöggan skilning verkalýðsins á gildi samtakanna. Hin ýmsu verkalýðsfélög ræða nú framtíðarskipulag og verkefni heildarsamtakanna, samvinnuna við Kat- ólsku félögin og útrýmingu fasistanna. Þing N. V. V. kemur saman innan skamms og þar verður þessum málum endanlega ráðið til lykta. Baráttustefnuskrá N. V. V.: 1. I samráði við verkalýðssamtökin geri ríkisstjórn- in tafarlaust ráðstafanir til að a) launþegar sem neyddir voru til vinnu í Þýzka- landi, b) stríðsfangar, c) gislar og aðrir, sem sviftir voru frelsi af óvin- unum, d) fólk úr andstöðuhreyfingunni, fái aftur sína fyrri atvinnu. Ef það af einhverjum ástæðum er óframkvæmanlegt, fái þeir biðlaun. Einnig verði gerðar ráðstafanir til hjálpar þeim, er voru atvinnulausir. 2. Allir opinberir starfsmenn, sem sviftir voru störf- um vegna mótþróa við Þjóðverja, verði teknir í stöður sínar á ný án missis nokkurra réttinda. 3. Engar uppsagnir án samþykkis verkalýðssamtak- anna. 4. Vinnutími og hlunnindi eins og var fyrir stríð. 5. Ráðstafanir til að auka atvinnuna. 6. Aukin skammtur af nauðsynjavörum, fæði, skó- fatnaði og fötum. Vægðarlaus barátta gegn svarta markaðinum. 7. Launabætur til opinberra starfsmanna. Endur- skoðun allra launasamninga. •— Eftirlit með húsa- leigu. 8. Tafarlaus hækkun á ellilaunum. 9. Aukin heilsuvernd, sérstaklega sé lögð áherzla á baráttuna gegn berklaveikinni. 10. Fjárhagslegur stuðningur við stríðsöryrkja og aðstandendur þeirra sjómanna og annarra, er létu lífið í þágu föðurlandsins á styrjaldarárunum. 80 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.