Vinnan


Vinnan - 01.05.1946, Page 29

Vinnan - 01.05.1946, Page 29
í verkstæðinn slíkar plöntur hafi fyrir fundizt í gamla garðinum?- Ég segi nei. Gras, sem grær í skugga, er súrt og safalaust. Það er nú svo um gæsir, að þeim dettur aldrei í hug að lifa á lélegu fæði. Þær láta ekki bjóða sér slíkt. Það kom því að því, að gæsarsteggirnir, með augu eins og gleym-mér-ei, leiddu hópinn, án minnsta samvizkubits, út úr gamla garðinum. Það var nú fríð fylking; þrjátíu og sex mörvaðar gæsir gengu fylktu liði inn á umfeðm- ingsengi yfirforingja hestliðanna. Þetta var þeirra guðs- dýrðar-Kanaan, — fyrirheitna landið, þar sem akrar spruttu ósánir, hunang draup af hverju tré og smjör af hverju strái. Þetta var vel sprottið umfeðmingsengi, og þar ákváðu gæsirnar að láta fyrir berast. Það er ekki hægt að neita því, að þrjátíu og sex gæsir geta gert töluverðan usla, ef þær komast í um- feðming. Einnig tröðkuðu þær niður grasið. Umfeðm- ingsengið varð hörmulegt útlits. Eins og allar styrjaldir, hófst gæsastyrjöldin á smá- kvörtunum, mótmælum og að lokum hótunum. Yfirforingi hestliðanna sagði við mig: — Sjáið þér til, Fallada, þér ættuð að segja hænsnastelpunni, að þessi gæsafaraldur verði að leggjast niður. Ég áminnti stúlkuna. Aftur sagði yfirforinginn: — Herra Fallada, þessi andskotans gæsafaraldur verður að leggjast niður. Hvern skollann eruð þér að hoppinteglast í kringum hænsnastelpuna, ef þér getið ekki látið hana gera svona lítið fyrir yður? Ég áminnti stúlkuna. Dóra starði á mig fögrum, líflegum augum og kjökr- aði: — O, Hans! Hvað eigum við að gera? Oðalsfrúin segir, að gæsirnar megi éta þar sem þeim sýnist. Og hvað eruð þér alltaf að flangsast utan í ráðsmanninum? segir hún. Þér hafið komið í herbergið hans, segir hún. Dóra grét. Hún hafði komið inn til mín, og ég gat ekkert sagt. Yfirforinginn sagði . . . Jæja, hann sagði nú sitt af hverju. En svo kom að því, að hann sagði ekki meira. Ekillinn okkar, Kaspar, sagði mér, að yfirforinginn hefði komið eins og fjandinn úr sauðarleggnum þjót- andi út úr hundabyrginu með písk í hendinni og barið gæsirnar án nokkurrar tilfinningasemi. Þetta kvöld grét Dóra. Oðalsfrúin hafði orðið svo Ijót á brúnina. Ein gæsin var draghölt. Það er hægt að hýða gæsir einu sinni. Það er jafnvel hægt að hýða þær tvisvar. En í þriðja sinn láta þær ekki hýða sig, og það var árangurslaust að yfirforinginn elti þær á fæti. Hann náði þeim ekki. Þá elti hann þær ríð- andi með langa pískól í hendinni. Gæsagargið bergmál- aði ertandi í eyrum hans, en hann kom ekki höggi á neina þeirra. Þá brauzt stríðið út. Það var klukkan fimm um morg- uninn. Vinnumennirnir voru farnir að gefa gripunum stundarfjórðungi áður en hænurnar voru látnar út. Skyndilega kváðu við tvö skot. Síminn hringdi. Yfirforinginn stóð á öndinni af æs- ingu: — Fallada! Komið þér þegar í stað yfirum. — Já, herra, grenjaði ég. — Komið með léttadrenginn með yður, eða einhvern til þess að bera líkin af vígvellinum. — A stundinni, sagði ég. Nú er maðkur í mysunni, hugsaði ég og náði í létta- drenginn. Við hlupurn yfirum. A umfeðmingsengi yfir- foringjans steinlágu sjö ungar og yndislegar gæsir, látn- ar í blóma lífsins. — Bíddu hérna, Karl! sagði ég og þaut inn í húsið. Yfirforinginn sat í hægindastól og þambaði brenni- vín, svo að rauk af vitum hans. Sá hafði byrjað snemma, og það á fastandi maga. Skammbyssan lá í glugganum. Hann hafði skotið þær út um gluggann, sjö ungar og efnilegar gæsir. — Daginn, sagði hann. — Þér hafið verið viðstadd- ur messuna. Konan mín grætur. Haldið þér að nokkur ástæða sé til að gráta? Hún grét ekkert yfir enginu mínu. — Frú Pratz verður bandvitlaus. — Hún um það. Berið henni kveðju mína og segið henni, að mér þyki þetta mjög leitt, en þetta er henni að kenna. — Já, sagði ég. VINNAN 93

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.