Vinnan - 01.05.1946, Side 33
J ÓN RAFNSSON :
r
Alþýðusamband Islands 30 ára
(Rœða flutt í útvarp 12. marz 1946)
I kringum síSustu aldamót var að hefjast nýtt tíma-
bil í atvinnu- og framleiðsluháttum þjóðarinnar, — það
var dagrenning nýs aldaranda og rismál nýrra stéttar-
viðhorfa í lífi alþýðunnar.
Afar vorir og feður, sem áður höfðu skotizt úr sveit-
inni í verið, gerðust nú þaulsætnari við sjóinn, og sett-
ust þar að með skylduliði sínu, sem fiskimenn og erf-
iðisvinnukarlar á mölinni.
Islenzk borgarastétt var að komast á legg, — og
samtímis óx vísir að annarri stétt manna, er byggði
stöðugt meir lífsafkomu sína á aflahlut úr sjó eða því,
sem hún vann sér inn með launavinnu. Það höfðu þeg-
ar myndazt stéttaandstæður, sem áttu beinni og skemmri
leið að sækja hvor gegn annarri en áður var, ■— og með
aðstreymi vinnandi fólks til hinna rísandi smáþorpa við
sjóinn, mynduðust betri skilyrði til félagslegra sam-
skipta með alþýðufólki en áður voru.
Það fór líka þannig, að brátt urðu árekstrar og lítt
Þekkt hef ég ýmsa verkamenn, sem voru — þótt ótrú-
legt sé — óráðnir í, hvert halda skyldi, þegar lagt var
af stað í sumarleyfið. Slíkt er lítt viðunandi. Hending
ein ræður þá, hvert farið er, og oft sætt slæmum kjör-
um með farkost, ef menn verða þá ekki strandaglópar
vegna þess, að öll farartæki eru yfirfull.
Eru dæmi þess, að félitlir menn hafa leigt sér bíla
2—3 daga og farið eitthvað af handahófi. Slíkt er dýrt
gaman og ærið vafasamt, hversu skemmtilegt það
reynist.
Það, sem stefna þarf að, eru vel skipulagðar hóp-
ferðir, er gefi þátttakendunum kost á að auka þekk-
ingu sína á landinu og verði skemmtiferðir um leið,
við hóflegu verði.
Hinar vinnandi stéttir, og landsmenn allir, ættu að
setja sér það mark að auka nokkuð við forða þekk-
ingar sinnar á landinu á sumri hverju.
Verkalýðsfélögin verða að taka þetta mál til at-
hugunar og umræðu.
Er ekki ólíklegt, að áður en langt um líður, verði
ferðastarfsemin fastur liður í starfi verkalýðsfélaganna
á sviði menningarmálanna.
skipulagðar skærur milli skútukarla og reiðara út af
mataræði og fiskverði, milli eyrarvinnukarla og kaup-
manna, út af kaupi og kaupgreiðslum.
Þetta var undanfari hinna skipulegu stéttaátaka, er
síðar urðu, fyrstu viðbrögð alþýðunnar í áttina til
skipulagðra stéttarsamtaka.
Nú í dag, á merkum tímaskilum í sögu verkalýðssam-
takanna á Islandi, er oss holt, þó ekki væri nema með
tilliti til hinna ungu, að gera oss nokkra grein fyrir því,
að barátta frumherjanna var ekkert ævintýri, sem allir
sóttust eftir að komast í, — að verkið sem þeir unnu,
er þeir lögðu hornsteinana fyrstu að samtökum verka-
lýðsins, eins og þau eru nú í dag, var enginn barna-
leikur.
Á þeirn tíma hafði að vísu skapazt þörf fyrir stéttar-
leg samtök, — en þessa þörf sáu ekki þá nema tiltölu-
lega fáir af þeim, sem njóta áttu. — Enn voru fæstir
erfiðisvinnumanna vaknaðir sem stétt, — enn voru
leyfar átthagabands og auðmýkt hjúmennskunnar of
ríkir þættir í hugsanalífi þeirra, til þess að þeir fyndu
til stéttarköllunar sinnar.
Það voru því eigi aðeins atvinnurekendur þeirrar tíð-
ar, með valdiö til að reka úr vinnu og loka reikningi,
sein brautryðjendurnir fyrstu þurftu að horfast í augu
við, heldur áttu þeir einnig við að stríða fálæti, undir-
lægjuhátt og þverúð hins vanabundna manns, sem þeir
báru fyrir brjósti sér og boðuðu fagnaöarerindi stéttar-
legrar einingar.
Á fyrstu upphafs- og aðfangadögum verkalýðssam-
takanna, voru það beztu og djörfustu synir alþýðunnar,
sem hófust handa, og skeyttu þá hvorki um náð atvinnu-
rekandans né eigin stundarhag. — Hlutskipti þeirra var
oft og einatt útilokun frá vinnu og neitun um úttekt í
verzlunum, á sama tíma sem aðrir stéttarbræður þeirra
nutu — af takmörkuðum skilningi oft og tíöum —
ávaxtanna af fórnum þeirra. En bjargföst sannfæring
þessara manna og trú á vaxandi þroska fólksins og sig-
ur þess, þótt síðar yröi, gaf þeim þrótt til þess að halda
baráttunni áfram. Og þetta brást þeim ekki. — Það kom
sá dagur, að verkalýösfélag reis af grunni.
Árið 1894 eru stofnuö tvö verkalýðsfélög, annað á
Akureyri, hitt í Reykjavík. í júlí 1894 er taliÖ að Verka-
VINNAN
97