Vinnan


Vinnan - 01.05.1946, Side 49

Vinnan - 01.05.1946, Side 49
ardo sat andspænis mér. en hann starði án afláts út um gluggann. Eg horfði á hann og mér varð allt í einu ljóst, að hann var til í allt. Hann vílaði ekkert fyrir sér lengur. Hann hefði ekki einu sinni hikað við að henda sér út um gluggann, ef hann hefði álitið, að það kæmi að nokkru liði. Það eitt, að horfa á kjálkana á honum, gat skotið manni skelk í bringu. Ef hann verður svang- ur, étur hann mig upp til agna, hugsaði ég. Þegar við komum til Rómaborgar, settumst við að í veitingahúsinu „Hinn iðrandi ræningi“, en hetjan frá Porta Pía hafði mælt með þessu gistihúsi. Yfir dyrun- um hékk spjald með mynd af krossunum þremur á Gol- gata. Menn skyldu ætla, að nafnið væri dregið af ræn- ingjanum fræga, sem hékk við hægri hlið Krists og fékk, rétt áður en hann dó, hið glæsilega fyrirheit: „í dag skaltu verða með mér í Paradís.“ En raunar stafaði nafnið af því, að veitingamaðurinn, sem hafði marg- sinnis setið í fangelsi fyrir þjófnað, ásamt hetjunni frá Porta Pía, hafði vent kvæði sínu í kross og lagði nú stund á stjórnmál. Hann hafði tekið þátt í mörgum her- ferðum gegn óvinum ríkisins. Og til þess að vinna verkalýðsfélögunum og kommúnistunum tjón, hafði hann lagt sérstaka stund á þjófnað, sem framinn var á nafni ættjarðarástar. Hann hafði grætt á þessu svo drjúgan skilding, að það var sjálfur lögreglustjórinn, sem hafði sæmt hann nafnbótinni „Hinn iðrandi ræn- ingi.“ Snemma morguns daginn eftir gengum við til skrif- stofu við Via Venti Settembri, og þar vonuðumst við eftir, að okkur yrði útveguð vinna. Dyravörðurinn vísaði okkur upp á fjórðu hæð. Við gengum upp stigann og komum inn í gang, sem var þétt- skipaður fólki. Við tókum okkur stöðu aftast í þyrping- unni. Þegar við komumst að um hádegisbilið, urðum við þess vísari, að við höfðum villzt upp á fimmtu hæð í stað fjórðu. Næsta dag höfnuðum við á fjórðu hæð, eins og okk- ur bar. Við biðum í þrjá klukkutíma á bekk og vorum tveir einir. Margir menn gengu hjá, en enginn gaf okk- ur minnsta gaum. Loks var okkur vísað upp á fimmtu hæð. Þar biðum við í tvo klukkutíma, unz okkur var fengið númer á húsi í Corso Vittorio. Þriðja daginn gerðist sem hér segir: í skrifstofunni í Corso Vittorio var eftirfarandi spurning lögð fyrir okkur: — Hafið þér kort? -— Hvers konar kort? spurðum við undrandi. Enn var verið að þvæla um þessi kort. Okkur var vísað að borði, þar sem skrifstofumaður útbjó handa okkur kort og límdi á það tólf merki, eitt fyrir hvern mánuð. — Þrjátíu og fimm lírur, sagði skrifstofumaðurinn. — Borga! Alltaf þarf maður að borga, sagði Ber- • ardo. Þrjátíu og fimrn hnífstungur hefðu ekki getað valdið okkur meiri sársauka. Við borguðum þessar þrjá- tíu og fimm lírur. Svo fórum við aftur til skrifstofunnar, sem við höfð- um komið fyrst inn í. — Hér eru kortin, sögðum við. — Það er ágætt, var svarað. -—- Á morgun getið þið farið til vinnumiðlunarskrifstofunnar og látið skrá ykk- ur í atvinnubótavinnu. Reyndar verð ég að geta þess, að Berardo lét þessa tímasóun ekki á sig fá. Honum virtist hún mjög eðlileg. —- Því meiri erfiðleikar, sem eru á því að fá vinnu, því hærra hlýtur kaupið að vera, var hið sífellda viðlag hans. Um kvöldið, þegar búið var að loka skrifstofunni, teymdi hann mig með sér um þvera og endilanga borg- ina. — Nei, líttu nú bara á, hrópaði hann uppveðraður, þegar við sáum í fyrsta skipti hús með nafninu „Banki“ á. Hann stóð kyrr í fáeinar mínútur og starði hrifinn á spjaldið, sem nafnið var letrað á. Svo hvíslaði hann að mér: Það er hér, sem umboðsmaðurinn fær peningana. En skömmu seinna rákumst við á annan banka, svo þann þriðja og fjórða, þangað til við hættum að telja. Hvaða banki var það nú, sem umboðsmaðurinn átti? Það var ekki gott að segja. í miðri Rómaborg, þar sem við álitum, að sankti Pétur væri grafinn, var yfirleitt ekki annað en bankar. —- Sjáðu, líttu bara á, sagði Berardo í hvert skipti, sem við sáum nýjan banka. Sumir bankarnir voru stór- ir, aðrir litlir og kringum þá var fjöldi fólks og bíla. Berardo þreyttist aldrei á að dást að því, sem fyrir augun bar. Eitt kvöldið rákumst við á stóra mannþyrpingu fyrir framan gistihúsið okkar. Vörubíll hafði rekizt á hús- vegg, og margir menn reyndu árangurslaust að reisa hann við. Það var meira umstang en erfiði, eins og títt er meðal borgarbúa. Berardo ruddi sér braut gegnum þyrpinguna, snaraði sér úr treyjunni, smeygði sér und- ir bílinn, kraup á kné og reisti bílinn við, án þess að fara sér óðslega, öllum viðstöddum til mikillar undr- unar. Þessi atburður olli því, að Berardo varð skrafhreyf- inn á ný. — Donna Zizzola lætur loga á tveimur kertum fyrir framan myndina af heilögum Antonio til verndar gegn bönkunum. Er það ekki skoplegt? sagði hann eitt kvöldið. Eg hafði enga löngun til að ræða það mál. —- Það er gaman að ævintýrum, meðan maður er ungur, sagði hann. — Það er vit í að hrista ávexti af trjánum, en er nokkurt vit í að kveikja í höll umboðs- mannsins? Ég lofaði honum að láta móðan mása. VINNAN 113

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.