Vinnan


Vinnan - 01.05.1946, Blaðsíða 51

Vinnan - 01.05.1946, Blaðsíða 51
Þegar hann var loksins hættur að hlæja og búinn að þurrka tárin úr augunum, svaraði hann: — Vinnumiðlunarskrifstofan fyrir Aquila er í Aquila. En við höfðum sannarlega enga löngun til að takast á hendur hringferð um alla Italíu. — Nú erum við búnir að hringsóla nógu lengi í skrifstofunni, sagði Berardo ákveðinn. — Við erum komnir til Rómaborgar til að vinna atvinnubótavinnu, en ekki til að ganga neina þyrnigöngu. En við urðum að halda áfram þyrnigöngunni. I veitingahúsinu „Hinn iðrandi ræningi“, bjó mála- flutningsmaður einn að nafni Cavaliere Achill Pazienza. Við leituðum á náðir hans, og sjötta daginn, sem við vorum í Rómaborg, vorum við kallaðir á ráðstefnu inni í herbergi hans. Það var við hliðina á herbergi okkar og var álíka dimmt, þröngt og óvistlegt og herbergi okkar. Don Achill Pazienza lá í rúminu. Hann var gam- all og skinhoraður náungi með tíu daga skegg, í gulum fötum, með hvíta strigaskó, stráhatt á höfði, brons- medalíu á brjóstinu og tannstöngul úr tré í munninum, og í þessum skrúða hafði hann hallað sér út af í rúmið sitt til að taka á móti okkur. Undir rúminu stóð barma- fullur náttpottur til skrauts. — Viðtalið kostar tíu lírur. Þannig byrjaði Pazienza samtalið. — Sjálfsagt, sagði ég fljótmæltur. — Tíu lírur fyrirfram, sagði Cavalierinn. Við fengum honum tíu lírur. — Tíu lírur fyrir hvorn, sagði Cavalíerinn. Við fengum honum tíu lírur í viðbót. Því næst stóð Cavalíerinn á fætur og gekk steinþegj- andi út úr herberginu. Við heyrðum hann hósta frammi í ganginum. Hann gekk hóstandi niður stigann, út, þvert yfir götuna og inn í veitingahúsið andspænis okkur. Við urðum að bíða nærri því í klukkutíma, þangað til við heyrðum hóstann aftur. Cavalíerinn kom yfir götuna, klöngraðist með mestu erfiðismunum upp stig- ann og stanzaði stundarkorn fyrir framan dyrnar. Hann hafði meðferðis brauðbita, hálffulla flösku af rauðvíni og hálfa pylsu. — Málið er mjög erfitt viðfangs, sagði Cavalíere Pazienza, þegar hann var kominn í lárétta stellingu aftur, enda þótt við værum ekki búnir að bera upp erindið. — Hvað eigið þið mikla peninga? spurði hann að lokum eftir langa þögn. Við létum alla aurana okkar í hatt Berardos, kopar- skildingana líka. Það urðu um fjórtán lírur. — Málið er ekki sérstaklega merkilegt, sagði Cava- líerinn vonsvikinn. Eftir langa umhugsun spurði hann: — Getið þið útvegað meiri peninga frá Fontamara? / N PÉTUR GEORG: HUGSJÓNIR i Ég vildi vera blómiS sem blærinn ljúfi vaggar, sem brosir móti sólu úr morgunbaSi daggar og mælir sinn hreinleik við himinblámans veldi, — þá nyti ég þess kannske að vera riíinn upp með rótum, af rósfingraðri meyiarhönd og-----troðinn undir íótum og fleygt með öðrum afhroða á öskuhaug að kveldi. II Ég vildi að ég væri sem íuglinn frjáls, með fiður á skrokknum og álftaháls, með lyfrauðan hanakamb höfði á og hringbogna kló á hverri tá. — Þá skyldi ég fara yfir fold og sjá með flugvélarhraða um loftin blá, dirrindí syngja með dillandi hljóði (fyrir dálítinn styrk úr ríkissjóði), svífa um eterinn ofar vindum og eta mig saddan af skorkvikindum. V____________________________________________/ — Já, auðvitað, svaraði Berardo strax, enda þótt hann vissi, að því var ekki að heilsa. — Og fáein hænsni? Nokkra kjúklinga? Og ofurlítið af osti? Og dálítið af hunangi við hóstanum mínum? bætti Cavalíerinn við. — Áreiðanlega, sagði Berardo fljótmæltur, þó að hann hefði aldrei bragðað hunang á ævi sinni. — Þá fer að verða talsverð von um málið, sagði Cavalíere Pazienza og glotti svo að við sáum grænar tennurnar í munninum á honum. Og nú fyrst fékk Berardo færi á að segja honum, hvert erindið væri. Cavalíerinn stóð á fætur, tók stafinn sinn, pataði honum út í loftið og sagði: — Komið með mér. VINN AN 115
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.