Vinnan - 01.06.1946, Page 14
Hurðiisksverhun
Nokkur smábátaútgerð er á Hofósi og nágrenni en
aðeins tveir dekkbátar. Frystihús er starfandi á vegum
Kaupfélags Austur-Skagfirðinga, en fremur þykja fiski-
mönnum stirð viðskiptin og er jafnvel rætt um að reisa
annað, hvað sem úr því kann að verða. Hafnarmálið
er jafnan ofarlega á dagskrá hjá Hofsósbúum, enda á
þorpið þróun sína og möguleika mjög undir lausn þess.
Nú í vetur var gerð áætlun að uppfyllingu sunnan báta-
bryggjunnar og auk þess að 10 metra lengingu hafn-
arbryggjunnar. Afráðið mun að uppfyllingin verði
framkvæmd í sumar, en óvíst hvort byrjað verður á
lengingu hafnarbryggjunnar að svo stöddu.
Lítið er um nýbyggingar á Hofsósi; þó stendur yfir
bygging læknisbústaðar og sjúkraskýlis. Auk þess er í
undirbúningi bygging barnaskóla, en gamli barnaskól-
inn var orðinn með öllu ónothæfur. Þá er ráðgert af
hálfu ungmennafélagsins, að reisa íþrótta- og leikfimis-
hús á næstunni.
Yerkalýðsfélögin á Hofsósi hafa bæði mikinn og vax-
andi áhuga fyrir vexti og viðgangi atvinnu- og fram-
faramála þorpsins. Þykir verkafólkinu lítið ganga í
framfaraátt undir núverandi forustu í hreppnum. —
Verkalýðsfélögin munu við hreppsnefndarkosningarn-
ar í vor bera fram sameiginlegan lista og gera með
því tilraun til þess að skapa hreppsfélaginu forustu,
sem líklegri er til félagslegra tilþrifa, en sú, sem ráðið
hefur lögum og lofum í þorpinu fram til þessa. Hversu
sú tilraun tekst, er vitanlega undir þroska og stéttvísi
vinnandi fólksins komið.
Sjúkdómsorsakir
Geðveikralœknir er að sýna aðkomumanni geðveikra-
hœlið.
Gesturinn: — Af hverju varð maðurinn í áttundu
stofu brjálaður?
Lœknirinn: — Af því, að stúlkan, sem hann elskaði,
vildi hann ekki.
Gesturinn: — En hvers vegna varð maðurinn í ní-
undu stofu geðveikur?
Lœknirinn: — Vegna þess, að hann kvœntist stúlk-
unni, sem vildi ekki manninn í áttundu stofu.
136
VIN N A N