Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 10

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 10
„Ó, ég heyri hvað þú ert að segja. En ég trúi þér ekki. Og ég er hrædd við að reyna það.“ Hún fór að gráta. Hann sagði með vaxandi gremju: „Hættu, segi ég!“ „Allt í lagi. Ég er hætt. Viltu það þá ekki ? Annars verður það of seint.“ „Nei, það veit sá sem allt veit. Ég er ekki vanur að giftast þeim.“ „Allt í lagi. Vertu þá sæll — að eilífu." „Og mér er sama. Ef ég hitti þig einhverntíma aftur, þá veiztu hvað það þýðir. En engin gifting. Og ég skal sjá svo um í næsta skipti, að við höfum enga áhorfendur." „Það verður ekkert næsta skipti," sagði Elly. Daginn eftir var hann farinn. Viku seinna birtist trúlofun hennar í Memphisblöðunum. Það var ungur maður, sem hún hafði þekkt frá barnæsku. Hann var aðstoðarféhirð- ir í bankanum, og fólk sagði að hann setti eftir að verða bankastjóri. Hann var alvarlegur og reglusamur piltur með ólastanlega framkomu, og hafði umgengizt hana í um það bil ár með hógværri kurteisi. Hann snæddi alltaf kvöldverð á sunnudagskvöldum með fjölskyldunni, og þegar sýninga- flokkar komu til borgarinnar, keypti hann alltaf aðgöngumiða handa sér, Elly og móður hennar. Þegar hann heimsótti hana, jafnvel eftir að trú- lofunin var gerð heyrin kunn, sátu þau ekki úti á dimmu veröndinni. Ef til vill var honum ókunnugt um, að nokkur hefði setið þar í myrkrinu. Nú sat enginn þar. Stundum grét hún dálítið á næturnar, en þó ekki oft; öðru hvoru skoðaði hún á sér munninn í speglinum og grét hljóð- lega, í þögulli örvæntingu og upp- gjöf. „Nú get ég að minnsta kosti lifað rólegu lífi,“ hugsaði hún með sér. „Ég get að minnsta kosti lifað það, sem ég á eftir af mínu dauða lífi eins og ég væri þegar dauð.“ Svo skeði það allt í einu einn dag, að amma hennar fór í heimsókn til sonar síns í Mills City, eins og hún hafði líka fallist á vopnahléð og upp- gjöfina. Þegar hún var farin, virtist húsið stærra og auðara en það hafði nokkurn tíma verið, alveg eins og amma hennar hefði verið eina lifandi manneskjan í því fyrir utan hana sjálfa. Nú voru daglega saumakonur í húsinu, til þess að útbúa brúðar- fötin, en samt fannst Elly sem hún reikaði um hljóðlega og tilgangs- laust, i tómi án umhugsunar eða vits, frá einu auðu herberginu til annars, sem öll voru of kunnugleg og frið- sæl til þess að geta valdið henni hryggð framar. Nú stóð hún lengi við svefnherbergisglugga móður sinn- ar og horfði á hægfara og örmjóa anga vafningsviðarins, þegar þeir klifu upp grindurnar og upp á þakið á veröndinni eftir því sem leið á sumarið. Þannig liðu tveir mánuðir; hún átti að giftast eftir þrjár vikur. Þá var það einn dag, að móðir henn- ar sagði við hana: „Amma þín vill koma heim á sunnudaginn. Hvers- vegna akið þið Philip ekki til Mills City og gistið hjá frænda þínum á sunnudagsnóttina, og komið svo með hana heim á sunnudaginn?" Fimm mínútum seinna horfði Elly á sig í speglinum eins og maður horfir á þann, sem er nýsloppinn úr ægilegri hættu. ,,Guð,“ hugsaði hún, „hvað ætlaði ég að fara að gera ? Hvað œtlaði ég að fara að gera?“ Áður en klukkustund var liðin hafði hún náð í Paul í síma, hún fór að heiman til þess, því að hún vildi gera þær varúðarráðstafanir, sem hún gat tímans vegna. „á laugardagsmorgunn ? “ sagði hann. „Já. Ég ætla að segja mömmu að 8 HEIMILJSPÓSTURINN ? $ $

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.