Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 18

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 18
myndi halda áfram að líta út fyrir að vera tuttuga og átta ára eftir að hún væri orðin fer- tug. Það væri betra heldur en að vera ungleg, og verða svo allt í einu ellileg, þegar maður væri orðin þrjátíu og cveggja. Það væri að minnsta kosti henn- ar skoðun. Þær mösuðu svona saman eins og gamlar vinkonur masa, sem sjaldan hittast. Þær luku við máltíðina og fóru að hugsa um að fá sér líkjör, en frú Walton var ekki viss um að það væri hollt ofan í hitt. Frú Flintridge sagði, að það væri úrelt viðvíkjandi vínblönd- un. Það væri allt komið undir því hvernig maginn væri fyrir- kallaður. En auðvitað viður- kenndi hún að hún væri ekki sem bezt í maganum í dag, enda engin furða eftir nóttina, og hún bætti við: „Ég þori að veðja að Bud —“ „Jæja, við skulum þá hafa það koníak. Koníak er ágætt. Þjónn, tvo Koníak. Ég meina Courvoisier.“ Svo: „Hvað ætl- aztu fyrir í dag? Heldurðu að það sé einn af þessum hljóm- leikum í dag ? Það er gallinn við þriðjudagana. Ég vildi að ég hefði munað eftir því, þegar ég hringdi til þín. Þá hefðum við getað hittst á miðvikudegi eða fimmtudegi. Eigum við að ná í blað og gá að því, hvort að það eru hljómleikar?" „Allt í lagi,“ sagði frú Flin- tridge. „En það varst ekki þú, sem hringdir til mín. Ég hringdi til þín. Þú hringdir aldrei til mín.“ „Ó, víst gerði ég það, Peggy, víst geri ég það líka. Ég hringdi til þín seinast.“ „Nei, ég hringdi til þín,“ sagði frú Flintridge. „Jæja, þar áður.“ „Næst á undan því sem þú hringdir til mín. Það var þegar við Biid hittum ykkur Harry í lestinni til New Haven.“ „Æ, hverju skiptir það, hver hringir til hvers?“ Þjónninn kom með blaðið, og það voru ekki einungis engir hljómleikar, heldur átti vinsæla kvikmyndin, sem sýnd var í hljómlistarsal útvarpshallarinn- ar, ekki að byrja fyrr en klukk- an f jögur, og annað langaði þær ekki til að sjá. Þá kom maður inn og stóð við barinn, þar sem þær gátu virt hann fyrir sér. Hann var allur rennvotur, hatt- urinn hans var rennvotur og þunni frakkinn hans var renn- votur. Og þegar hann talaði við veitingamanninn, sem hann þekkti auðsjáanlega, hló hann eins og fólk gerir, þegar það hefur lent í rigningardembu. „Líttu á manninn," sagði frú Walton. „Það hlýtur að vera úrhellisrigning. Og ég með nýj- an hatt, auðvitað. Við getum al- veg eins beðið hér eins og ann- arsstaðar.“ „Gott og vel, gerum það,“ sagði frú Flintridge. „Ég hefði ekkert á móti því að fá mér einn.“ „Ef ég drekk meira, verð ég fuíí. Jæja þá.“ „Við getum beðið þjóninn að láta okkur vita, þegar styttir upp,“ sagði frú Flintridge. „Ég held að ég fái mér viskí. Koníak dregur mig niður eins og rign- ingin.“ Hún fékk sér viskí, en frú Walton hélt áfram með kon- íak og sódavatn. Hún sagði: „Ég ætla að fá mér ofurlítið af 16 HEIMILISPÓSTURINN 9 9 9

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.