Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 29

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 29
og var alltaf að hækka. Hann rak upp skelfingaróp, þegar hann fann hvað vatnið var orð- ið djúpt. Svo reikaði hann út eftir göngunum. „Steve —“ ópið brast fram milli samanbitinna vara Joes um leið og hann brá planka yfir opið, „Steve, sonur minn — farð út — farðu — ég get ekki ráðið við þetta lengur.“ „Ég — ég —get það ekki!“ hrópaði Steve. Steve stóð við hlið föður síns í hólfinu og var ekki undan- komu auðið. Gamli maðurinn hafði verið á stöðugri hreyf- ingu, þegar hann var að reyna að stífla opið, og hafði ósjálf- rátt fært sig ofar, eftir því sem meira rann inn af leðju. Steve hafði staðið kyrr í sömu spor- um, Undrunin og óttinn hafði lamað hann og nú náði leðjan honum í mjaðmir. Hann reyndi að losa sig, en án árangurs. Hann gat sig hvergi hrært. „Ég kemst ekki, pabbi!“ hrópaði hann. „Farðu út — farðu út —“ Þyturinn kæfði orð hans. Þokan blindaði hann. Hann hallaði sér upp að stoð og horfði á föður sinn, sem var eins og dökk þústa í þokunni. Hann heyrði rödd hans gegnum hinn djöfullega hávaða. „Planka, drengur minn. Réttu mér planka — síðasti möguleik- inn — það er að stíflast —“ Það hafði stíflast. Eitthvað hafði komist í opið og stíflað það í bili. Það varð að þétta það vel með plönkum og heypokum, áður en loftstraumurinn brytist aftur í gegn. Einn planki, einn poki myndi duga. Steve þreif- aði í blindni í kring um sig. Hann teygði sig eins og hann gat. En hann fann ekkert annað en leðjuna. „Planka — í guðs nafni — planka!“ Það var örvæntingar- hróp. Sekúndurnar voru dýr- mætar. Tíminn var lífið sjálft. Allt í einu sá hann fölt andlit fyrir framan sig. Hryllileg vit- nezkja skein úr augum föður hans. Það var hvorki poki né planki eftir. Hvinurinn fór vaxandi. Nú •— nú var rétta augnablikið til að stífla opið. Eftir andartak — þrjátíu sekúndur — yrði það of seint. Opið myndi stækka, og það litla loft, sem eftir væri í göngunum, myndi brjótast út. Þegar loftþrýstingurinn væri orðinn lágur, mynd fljótið fossa inn í göngin. Steve reyndi að brosa. Hann hafði unnið karlmannsstarf; hann vildi deyja eins og karl- menni sæmdi. „Einn möguleiki, drengur minn. Einn möguleiki — segðu henni það, ef það tekst.“ Steve þreif í æði í naktar herðar föður síns, þegar honum skildist, hvað hann ætlaðist fyr- ir. Hendur hans gripu um sveitta handleggina. „Guð minn góður! Gerðu það ekki —!“ Joe sleit sig lausan og kast- aði sér upp að opinu. Loftið greip hann — lyfti honum — þeytti honum inn í opið. Hrynj- andi sandurinn lagðist þétt að honum. Þyturinn í loftinu mink- aði — varð að lágu suði — hætti. A 9 9 9 HEIMILISPÓSTURINN 27

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.