Heimilispósturinn - 15.06.1950, Side 34

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Side 34
HEIMILIS PósTuRINN KVIKMYNDAOPNAN TJARNARBIÓ : Kristofer Kolumbus, Aðalhlutverk: Predric March (Kol- umbus) og Florence Eldridge (ísa- bellu Spánardrottningu). Myndin gerð hjá J. Arthur Kank. Þessi brezka litmynd frá J. Arthur Rank um ævintýri, sigra og ósigra hins fræg- asta af öllum frægum ævintýramönnum, Kristóferusar Kolumbusar, hefur náð heimsfrægð og er talin ein stórkostleg- asta kvikmynd, sem gerð hefur verið. Söguna um Kolumbus þekkja allir og þó að tæpar 5 aldir séu liðnar síðan hann dó, er hann ennþá fyrirmynd allra ungra og framsækinna manna. Það var í dögun þann 3. ágúst 1492, sem Kolumbus sté um borð í skip sitt „Santa Maria" og sigldi í vestur í landa- leit, og hugðist á þennan hátt komast skemmstu ieið til Indlands. — Dagar og vikur liða og stöðugt er siglt yfir enda- laust hafið. — Matvælin ganga til þurrðar, sjómennirnir fá skyrbjúg og við uppreisn liggur á flota Kólumbusar. Þá er hrópað á flotanum „land fyrir stafni", — en það reyndist missýning. Þá lofar Kolumbus hinni örþreyttu skipshöfn að hann skuli snúa við ef land GAMLA BÍÓ Ástalíf Byrons lávaröar. (The Bad Lord Byron) Aðalhlutverkin leika: Dennis Price, Mai Zett- erling, Joan Greenwood, Linden Travers, Sonia Holm og Zena Marshall. Myndin er gerð hjá J. Arthur Rank. Gamla Bió ætlar að sýna á næstunni ensku kvikmyndina: „Ástalíf Byrons lá- varðar", sem J. Arthur Rank hefur látið gera. Þess má geta hér, að út hefur komið á íslenzku ævisaga Byrons eftir franska skáldið André Maurois, og er hún talin með þeim beztu, sem samdar hafa verið. Mörgum hér mun því áreiðanlega leika hugur á að fá kvikmynd um Byron lávarð, því ævi hans var að mörgu leyti óvenjuleg — og þá ekki hvað sizt sam- band hans við konur. Enda er það sú hlið hans, sem tekin er til meðferðar í mynd þessari. Ekkert hefur verið til spar- að til að gera kvikmyndina samboðna minningu skáldsins. Leikstjórn annaðist David Macdonald. Aðalhlutverkið leikur hinn ágæti leikari Dennis Price, og er þetta veigamesta hlútverk í kvikmynd, sem hann hefur haft með höndum til þessa. Sænska leikkonan Mai Zetterling (kunn úr myndunum „Prieda“ og „Quart- et“) leikur itölsku greifafrúna Teresu Guiccioli. Caroline Lamb er leikin af Joan Greenwood; kona Byrons Annabella Mi- banke er leikin af Sonia Holm. Linden Travers leikur Augustu Leigh, systur Byrons. AUSTURBÆ J ARBlÓ: „Rhapsody in blue". (Sjá mynd á næstu blaðsiðu). Aðalhlutverk: Robert Alda, Joan Les- lie, Alexis Smith, Charles Cobum og Julie Bishop. Hugur George Gershwin hneigðist snemma að tónlistinni. Þegar hann er átján ára, fær hann tilsögn hjá fram- úrskarandi kennara, er prófessor Frank heitir, en gerist síðan starfsmaður hjá sönglagaútgáfunni Remic. —George kynn- ist ungri söngkonu, Julie Adams að nafni. Hann stingur upp á þvi við hana, að hún syngi eitt af lögum hans í stað Remic- laganna. Þetta uppátæki verður til þess, að Gershwin missir stöðuna. — Hann fer sjáist ekki innan þriggja daga. — Að morgni hins þriðja dags er Kolumbus sjálfur á verði — þá sér hann allt í einu ljós á landi, og daginn eftir er akkerum varpað við land, — við eyju, er Kolumbus kallaði „San Salvador" — frelsarann. Á því andartaki, sem Kolumbus sté á land á þessari eyju, var brotiö blað í sögu heimsins og þjóðanna sem hann byggja. — Árin líða, þær vonir er menn byggðu á fundi hins nýja heims rættust ekki og var Kolumbusi kennt um — og 1499 er honum varpað í dýflissu, — og hann deyr skömmu siðar yfirgefinn og vinafár. — Það er löngum hlutskipti brautryðjend- anna, „Páir njóta eldanna, sem fyrstir kveikja þá." En á banabeði sínum sér Kolumbus sýn- ir, hann sér og skilur að hann hafði þrátt fyrir allt markað spor sin óafmáanlega í svip kynslóðanna, hann hafði lagt horn- stein að nýju mannfélagi, nýrri þjóð, frjó- samri og þrekmikilli, með hálfum huga til Max Dreyfus, for- stjóra útgáfunnar Harm og Co„ og sýnir honum lög, sem hann hefur samið. Dreyfus þykist sjá, að þarna sé mjög efnilegt tón- skáld á ferðinni, og lofar að hjálpa honum. — Gershwin verður frægur og dáður á skömmum ttftrfBÍIRíK finnur þörf hjá sér til þess að semja klassiska tónlist, og Frank prófessor lætur ekkert tækifæri ó- notað til þess að eggja hann til þess. Gershwin reynir að slita sig lausan frá Söngleikahúsunum, en finnur að hann er bundinn Broadway sterkum böndum. — Paul Whiteman hefur ákveðið að halda tónleika í Aeolian Hall, og er þar í fyrsta sinni leikið stærsta tónverk Gershwins, „Rhapsody in Blue". Gershwin er hylltur ákaft, og gagnrýnendur lofa verkið mjög. — Gershwin langar til að fara til Parisar og skrifa klassiska tónlist, og Júlía eggj- ar hann til fararinnar. 1 París skrifar Gershwin „An American in Paris", og hann lendir í ástarævintýri með töfrandi ameriskri stúlku, er Christine Gilbert heit- ir. Þau fara saman til Ameríku, en Chri- stine kemst fljótt að raun um, að tónlist- in er Gershwin eitt og allt, og hún yfir- gefur hann. Gershwin leitar þá til Julie, en hún vill ekkert hafa saman við hann að sælda. — Gershwin semur negraóper- una „Porgy og Bess" og hlýtur hún geysilegar vinsældir, og er Gershwin nú á hátindi frægðar sinnar. Hann leikur „Concerto in F“ á hljómleikum, en verð- ur þá skyndilega alvarlega veikur. Lækn- ar ráðleggja honum loftslagsbreytingu, og fer hann til Hollywood. Julie fær fregnir af veikindum Gershwins, og flýgur hún þá óðar til hans. — Gershwin liður nú mun betur. Hann sezt við píanóið og leik- ur eitt af sínum fegurstu lögum „Love Walked In“. Laginu lýkur skyndilega með ómstríðum hljómi. Gershwin hnígur fram á nótnaborðið. Myndin endar á hátíðlegum minningar- tónleikum um George Gershwin, seni haldnir, eru í New York,

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.