Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Side 19

Vinnan - 01.12.1947, Side 19
að detta ýmislegt í hug. Þegar hann hafði gengið úr skugga um að íbúarnir voru ekki lifandi, heldur bara klséddar vaxmyndir -— en um það sannfœrðist hann er hann hafði nokkrum sinnum, í allri vinsemd, reynt að heilsa þeim og brjóta upp á samræðum við þá — þá datt honum nokkuð í hug og það snjallt. Mannna gamla var 'ætíð efst í huga hans. Hann fann, að hér yrði hann að reisa móður sinni minnisvarða, mestu merkiskon- unni, sem hann hafði nokkurn tíma komizt í kynni við. Eftir alhnikla leit hitti hann þjónustusystur og spurði hana vegar til forstjóra stofnunarinnar. Honum var vís- að inn í herbergi og þar sat alvarlegur og fyrirferðar- mikill maður við skrifborð. Eins og sænskum embættis- rnanni ber leit hann ónotalega og gikkslega út. — Afsakið, sagði Osterlund, — mundi vera hægt að koma manneskju hérna inn í safnið — það er að segja — ekki lifandi, heldur mynd — og hvað mundi það kosta? — Hver er maðurinn? spurði embættismaðurinn þungbrýnn. — Ég heiti Osterlund, vitavörður við Snoppuskers- vitann í Eystrasalti. Mundi ekki vera hægt að koma mömmu hérna inn? Embættismáðurinn virti Österlund fyrir sér og hnykl- aði höfðinglegur augabrúnirnar. — Ja, það er undir því komið, hvernig kona það hefur verið og hvert æfistarf hennar var. Hafr t. d. ein- hver unnið mikil og sérstæð góðverk .... — Já, það hefur hún gert, forstjóri. Eg þekki engan, sem hefur gert mér eins mikið gott á æfinni. . . . — Þér misskiljið mig, herra Österlund! Eg á við hvort hún hafi gefið miklar fjárupphæðir í góðgerða- skyni.... -— Nei, það hefur hún ekki gert, forstjóri, því hún hefur aldrei átt neina peninga. . . . — Eða hún hafi skarað fram úr á öðrum sviðum . . . — Já, hún hefur alla æfi verið glöð og skemmtileg og hún hefur strítt og stritað. . . . — Já, en skiljið þér ekki, Osterlund, að hér geta að- eins komið myndir af mönnum, sem á einn eða annan hátt hafa stungið mjög í stúf við aðra í lífi sínu eða verkum. Til dæmis konungar, herforingjar, stjórn- málamenn, — ja, jafnvel líka niiklir afbrotamenn. rnorð- ingjar, þjófar. . . . — Herra forstjóri, mamma hefur aldrei stolið! — Jæja, jæja. En hvað er þá sérkennilegt við hana? Hafi hún ekki gefið stórar fjárhæðir til góðgerða eða verið sérstakur afbrotamaður, þá skil ég. ekki hvaða verðleika hún hefur til þess, að mynd hennar komist hér inn. —Jú, sjáið þér til, hún er svo fjarska gömul! Österlund svitnaði. Síldarsöltun á Siglufirði VI N N A N 241

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.