Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Síða 25

Vinnan - 01.12.1947, Síða 25
eyrinum hafa verið keypt ný og vönduð framleiðslu- tæki, sem nú eru þegar farin að auka við gjaldeyris- framleiðsluna. En jafnframt hagnýtri ráðstöfun gjaldeyrisins hefur einnig farið fram bein eyðsla eða sóun gjaldeyris. Þann- ig gjaldeyrismeðferð á sér enn stað í stórum stíl og virðist harla lítill áhugi fyrir að stöðva slíkt. Utlitið um öflun gjaldeyris er mjög hagstætt. Útflutningsvör- urnar eru í háu verði og framleiðslutækin eru fleiri og betri. Allt bendir til þess að á næsta ári verði gjaldeyris- tekjurnar þó enn hærri. Verði þá meðalsíldarár, í stað lélegs í sumar, vaxa gjaldeyristekjurnar af síldarafurð- unum mjög mikið. Á næsta ári taka næstum allir ný- sköpunartogararnir þátt í veiðunum allt árið, en í ár hafa aðeins nokkrir þeirra verið að störfum og enginn allt árið. Annar aðalþátturinn í áróðrinum fyrir lækkuðum launum hefur verið sá, að illt útlit væri á afurðasölu- málunum og sj ávarútvegur okkar væri ekki samkeppnis- fær á erlendum mörkuðum. Hár er staðreyndum snúið öfugt og srnærri örðugleikar gerðir að aðalatriðum. Allar sjávarafurðir okkar hafa, selst á hœrra verði í ár en áður. Eftirspurnin hefur verið mjög mikil og sal- an í því efni auðveld. Nokkur hluti framleiðslunnar hefur óhjákvæmilega orðið að seljast þjóðurn, sem lítið eiga af frjálsum gjaldeyri, en verða að byggja viðskipti sín að verulegu leyti á vöruskiptaverzlun. Þetta hefur valdið örðugleikum vegna skammsýnnar fjármála- stefnu íslenzkra stjórnarvalda og viljaleysis heildsalanna á viðskiptum við þessar þjóðir. Keppinautar okkar erlendis hafa átt mikil viðskipti við þessar þjóðir á vöruskiptagrundvelli, og standa þeir þó verr að vígi en við með að eiga viðskipti við þær þjóðir sem búa við hátt verðlag. Hin skammsýna fj ármálastefna okkar hefur á þennan hátt spillt möguleikum á betra verði fyrir útflutnings- framleiðsluna. Pólitískir fordómar hafa hér einnig ráðið miklu um í ýmsum tilfellum. Þrátt fyrir lélega stjórn afurðasölumálanna hefur heildarútkoman þó orðið góð, eins og hér hefur verið bent á. Vissa er fyrir, að afurðaverðið fer enn hækkandi er- lendis og sölumöguleikar eru mjög góðir. Það er því hið mesta öfugmæli, að reynslan sýni að rétt sé að ganga á kjör vinnandi fólks í landinu vegna afurða- sölumálanna. Þær aðgerðir sem nauðsynlegt er að gera til þess að örfa framleiðsluna, bæta hag hennar og þeirra sem við hana vinna, eru á engan hátt bundnar við launalækkanir almennings. Rekstursútgj öld útgerðarinnar er hægt að lækka til mikilla rnuna og verðlag fiskframleiðslunnar innanlands getur áfram verið hátt. EINAR SVEINN FRÍMANNS: Ég drekk - Ég fann ég var smáður og fyrirlitinn mín föt vioru snjáð, jafnvel rifin og shitin, þó þehkti ég sjálfur mitt sanna mceti en samt var eins og ég ekki gæti lagt í að ryðja rnitt rúm. En í dag barst rnér flaska með fágœtum vökva, ég fullyrði þetta og er ekki að skrökva: Ég drakk rnér þar dirfsku og kjark og nú er mér horfinn hinn helvízki beygur, ég heimta mitt sæt.i. Ég er ekki deigur og óttast ei slagsrnál né slark. Þig grunar það ekki, hvað gefur mér kraftirm. Gerðu ekki á hlut minn, því þá færðu á kjaftinn. Jú, þú þykist rata. hið rétta strik — en ég ryð mér ti.l sætis. Ég fyrirlít hik — ég er kenndur og keikur í dag. Á morgun fæ ég mér aftur einn litinn, þú ert afar hneykslaður. Mér finnst þú skrítinn. Yfir angandi glasi ég yrki minn brag. Verkalýðssamtökin vita, að fyrirhugaðar eru árásir á launakjör almennings. Þau verða að standa vel á verði. Hver alþýðumaður á að vita, að áróður launa- lækkunarinnar er rangur. Hið nýafstaðna alþýðusam- bandsþing hefur bent á leiðir þær, sem nú á að fara til stuðnings atvinnulífi landsins. Verði farið að ráðum Alþýðusambandsins, þarf ekki að skerða lífskjör al- mennings, en með þessu yrði stefnt að batnandi lífs- kjörum. VINNAN 247

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.