Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Qupperneq 26

Vinnan - 01.12.1947, Qupperneq 26
r Alit 20. þingsins og ráðstefnu þingfulltrúa frá Suður- og Suðvesturlandi um stofnun Alþýðusambands Suðurlands. I síöasta hefti Vinnunnar er skýrt frá því, í grein- inni „Skemmdartilraun innan Alþýðusambandsins“, að svo kölluð Verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokksins og viss- ir menn innan sambandsins hafi á bak við Alþýðusam- bandsstjórn í nafni tveggja sambandsfélaga gengizt fyr- ir stofnun svokallaðs fjórðungssambands með hóp fé- laga úr suður- og suðvesturhluta landsins. Síðar upplýstist það, að þessi tvö sambandsfélög, Verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokksins og vissir menn innan sambandsins hafi á bak við Alþýðusambandsstjórn í nafni tveggjá sambandsfélaga gengizt fyrir stofnun svo- kallaðs fjórðungssambands með hóp félaga úr suður- og suðvesturhluta landsins. Loksins 26. okt. barst Alþýðusambandinu bréf frá Hálfdáni Sveinssyni Akranesi, dags. 24. sama mán. svo- hljóðandi: „Ragnar Guðleifsson í Keflavík, ég undirskrifaður og fleiri f. h. félaga okkar höfum haft samtök um að gangast fyrir undirbúningi að stofnað yrði samband verkalýðsfélaga á svæðinu frá og með Búðardal og Stykkishólmi að Vík í Mýrdal, utan Reykjavíkur og Hafnarfj arðar. Undirbúningi er nú það langt komið, að til stofnfund- ar er boðað á Akranesi 1. nóv. næstk., og er Alþýðu- samband fslands hér með boðið að senda fulltrúa, til þess að fylgjast með, að stofnun sambandsins fari fram í samræmi við lög Alþýðusambandsins. Virðingarfyllst f. h. undirbúningsmanna Hálfdán Sveinsson (sign l“. Bréfi þessu svaraði sambandið samdægurs, þar sem Hálfdáni og þeim félögum var skýrð afstaða sambands- stjórnar til málsins (sjá síðasta hefti, bls. 219—220) og mælst var til að umrætt „stofnþing“ á Akranesi yrði ekki haldið áður en hið auglýsta þing Alþýðusambands Islands rúmlega viku síðar hefði fjallað um málið. Tilmælum þessum var ekki sinnt og „stofnþing“ hald- ið á Akranesi 1. og 2. nóv. s.l. En stofnendur munu teljast þessi félög: Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verka- lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur (samþ. með 31 gegn 13), Verkalýðsfélag Akraness (samþ. með 10 gegn 5), Bílstj órafélag Rangæinga (samþ. með 4 gegn 1), Verka- lýðsfélag Vatnsleysustrandar, Verkalýðsfélagið Stjarn- an og Verkamannafélagið Báran, Eyrarbakka. — Verka- lýðsfélagið Jökull í Ólafsvík og Verkalýðs- og sjómanna- félag Miðneshrepps eru talin þarna með í stofnfundar- gerð, en hið fyrrnefnda hefur ekki enn samþykkt þátt- töku og hið síðarnefnda afturkallað þátttöku sína. A 20. þingi Alþýðusambandsins var mál þetta mikið rætt og samþykkt eftirfarandi ályktun: „Þingið lítur svo á, að stofnun svonefnds A.S.S. á Akranesi 1. og 2. þ. m. sé ekki í samræmi við lög Al- þýðusambands íslands né anda heilbrigðrar starfsemi í stéttarsamtökum alþýðunnar, m. a. af þeim ástæðum, að lög þessa sambands gera ekki ráð fyrir því, að öll sambandsfélög í þessum landsfj órðungi hafi rétt til þátttöku og forgöngumenn svokallaðs A.S.S. ekki haft neitt samráð við Alþýðusambandið um þetta mál, og staðfestir því ekki stofnun þessa sambands. Jafnframt samþykkir þingið að kalla saman strax að loknu þinginu, ráðstefnu með þingfulltrúum frá sam- bandsfélögum í umræddum landshluta öllum og segi hún álit sitt í málinu.“ 12. nóv. var haldin ráðstefna með fulltrúum sam- bandsfélaga á Suður- og Suðvesturlandi og samþykkt einróma svohljóðandi: ,Ráðstefnan staðfestir álit 20. þings Alþýðusambands Islands um það, að stofnun svokallaðs Alþýðusambands Suðurlands á Akranesi dagana 1. og 2. þ. m. sé hvorki að því er undirbúning snertir né skipulagsákvæði sam- rýmanleg lögum né anda Alþýðusambands Islands og mótmælir henni sem lögbrotum. Ráðstefnan lítur svo á, að samkvæmt gildandi lögum A.S.I. sé með öllu ólöglegt að stofna til fjórðungssam- banda án þess að öllum sambandsfélögum í viðkomandi landsfjórðungi sé heimill jafn réttur til þátttöku. Ráðstefnan telur ekki óeðlilegt að stofnað sé fjórð- ungssamband á Suður- og Suðvesturlandi innan A.S.Í., ef meirihluti skipulagðra launþega innan sambandsins óskar þess, en þó því aðeins: 1. Að öllum sambandsfélögum á viðkomandi lands- svæði sé gefinn jafn réttur til þátttöku og lög þess séu að öðru leyti í samræmi við lög A.S.Í. 2. Að undirbúningur allur fari fram í samráði við sambandsstjórn og í samræmi við samþykkt sam- bandsþings. 248 VINNAN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.