Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Síða 32

Vinnan - 01.12.1947, Síða 32
Frá 20. þingi Alþýðusambands Islands Verkalýðsmál A þeim helming, sem liðinn er af starfstímabilinu milli reglulegra sgmbandsþinga, hafa viðhorfin í málum verkalýðsins tekiS miklum breytingum. Nýsköpun atvinnuveganna hefur veriS stöSvuS. Inn- flutningur byggingarvara og annarra efnisvara til fram- leiSslunnar hefur veriS skorinn svo mjög niSur, aS at- vinnuleysiS, hinn gamli vágestur verkamannaheimil- anna, er nú á ný aS skjóta upp kollinum. Nýjar og miklar tollabyrSar hafa veriS lagSar á herSar vinnandi fólks í landinu og verkalýSurinn þar meS knúinn af stjórnarvöldunum til hinna lengstu og víStækustu vinnudeilna, þar sem lagt var ofurkapp á aS knésetja verkfallsmenn og sundra samtökunum. Eigi aS síSur stóSust samtök verkalýSsins raunina. Vmf. Dagsbrún vann einn hinn þýSingarmesta sigur fyrir verkalýSinn í heild meS mánaSar verkfalli. MeS hálfs mánaSar verkfalli fékkst því framgengt á NorSurlandi, aS í öllum síldarverksmiðjunum þar gilda nú SiglufjarSarkjör og þar meS takmarki margra ára baráttu verkalýðsins á NorSurlandi náS. MeS nær hálfs mánaSar verkfalli í þremur lands- fjórSungum fengu síldveiSisjómenn verulega hækkaSa kauptryggingu. Allar tilraunir til þess að sundra heildarsamtökunum og larna þau misheppnuðust og AlþýðusambandiS kom sterkara út úr átökunum en áður. Framlenging samn- inganna nú viS þau félög, sem náði fram launahækkun í deilunum s.l. sumar, staðfestir m. a. þaS, aS andstæS- ingunum er ljós þessi styrkur verkalýðssamtakanna. En þar með eru hagsmunir verkalýðsins ekki úr allri hættu, nema síður sé. Gífurlegur áróður hefur veriS hafinn af hálfu ríkis- stjórnar og atvinnurekenda til þess aS fá verkalýðinn til að fallast á beina eða óbeina kauplækkun, enda þótt vit- að sé, að aldrei fyrr hefur jafn mikill auður verið sam- an kominn í höndum fárra landsmanna og nú er. VerkalýSssamtökin verða því að vera við því búin hvenær sem er, að ráðist verði að þeim af hálfu ríkis- valdsins með gengislækkun, vísitölustýfingu, banni með lögum við kauphækkunum, þ. e. nýjum þrælalögum, og að jafnframt verði neytt allra bragða til þess að ala á innbyrðis sundurlyndi meðal verkalýðsins til þess að hindra einingu hans og samheldni gegn þessum hættum. Þingið lýsir sig andvígt hverskonar skerðingu á lífs- kjörum verkalýðsins í landinu. ÞaS leggur ríka áherzlu á, að staðinn sé vörður um stéttarlega einingu verkalýðsins innan AlþýSusambands íslands. Telur þingiS, að gæfa og gengi vinnandi fólks í landinu sé nú jafnvel meira en nokkru sinni fyrr tengd því, að hvert einstakt sambandsfélag inni af hendi varn- arskyldu sína við hagsmuni meðlima sinna, hina félags- legu einingu verkalýðsins og þau lög, sem stéttarsam- tök hans hafa sjálf sett sér. ÞingiS telur, að gagnvart árásum á lífskjör vinnandi manna sé nauðsynlegt að mynda samstarf allra laun- þegasamtaka í landinu. Um leiS og þingið heitir á verkalýð Islands að sam- einast til varnar þeim kjarabótum, er hann hefur náS á undanförnum árum, telur það næst og brýnust verk- efni sambandsins á þessu sviði eftirfarandi: 1. Skapa fullkomna einingu allra verkalýðsfélaga innan AlþýSusambandsins gegn hvers konar árásum á lífskjör vinnandi fólks, svo sem gengislækkun, stýf- ingu kaupgjaldsvísitölu, grunnkaupslækkunum, lögum gegn samningafrelsi verkalýðssamtakanna o. s. frv. 2. Koma á samstarfi allra launþegasamtaka í landinu til varnar lífskjörum launþeganna. 3. AS verkalýðssamtökin beiti sér fyrir því, að vinn- andi stéttirnar fái beint íhlutunarvald um rekstur þjóS- arbúsins og aS stjórn landsins sé reist á samstarfi við þessar stéttir, um áframhaldandi nýsköpun atvinnuveg- anna og framfarir í landinu. Eining verkalýðsins ÞingiS telur nauðsynlegt, aS verkalýður landsins gferi sér Ijóst, að einmitt nú er lífsafkoma hans og vel- ferð meir en nokkru sinni fyrr tengd því, að hann standi sameinaður og einhuga um hagsmuni sína í stéttafé- lögum sínum og A. S. í. * í dag stendur verkalýður landsins andspænis því að verjast hinum hatrömmu og margþættu tilraunum afturhaldsaflanna til að ræna öllu því, sem áunnizt hefur verkalýðnum til handa síðan hin sterka stéttar- 254 VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.