Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Page 33

Vinnan - 01.12.1947, Page 33
eining hans varð að veruleika með hinu nýja skipulagi Alþýðusambands íslands. Til að skapa jarðveg meðal alþýðu fyrir tillátsemi við fjárplógsöflin og veikja viðnámsþrótt stéttarsamtaka alþýðunnar eru allar horfur í þjóðarbúskapnum út- málaðar á svartasta hátt og öll áróðurstæki sameinaðra afturhaldsaflanna notuð í þágu bölsýninnar til að sætta verkalýðinn við fyrirhugaða skerðingu á lífskjörum hans í einni eða annarri mynd. — Jafnframt er stefnt að endurvakningu atvinnuleysisins sem fyrirhugaðs bandamanns gegn hagsmunum og samtökum alþýð- unnar. Hér hafa þó ekki verið talin öll vopn, sem beint er gegn einingu verkalýðsstéttarinnar. Reynsla síðustu mánaða hefur leitt það í ljós, að því sterkari sem stéttarsamtök verkalýðsins hafa sýnt sig andspænis beinum árásum, því áfjáðari er andstæðing- urinn í það að geta kveikt elda sundrungar innan verka- lýðssamtakanna. I þessu skyni notfærir hann sér hina pólitísku flokkaskiptingu í landinu í það ýtrasta. Þótt því beri að fagna, að sambandinu hefur með árvökulli baráttu tekizt að vernda eininguna, verður því ekki neitað, að innan sambandsins hafa sundrung- artilraunirnar orðið innan frá að sama skapi freklegri sem andstæðingurinn hefur aukið sóknina utan frá á hagsmuni verkalýðsins. í hinum miklu kaupdeilum s. 1. sumar var t. d. reynt á freklegan hátt að koma á skipulögðum samblæstri nokkurra sambandsfélaga gegn þeim sambandsfélögum, sem stóðu í baráttunni, og til að framkalla refsiað- gerðir, er gefið gætu átyllu til að kljúfa sambandið. Var svo langt gengið, að forystumenn eins af elztu verkalýðsfélögum landsins víluðu ekki fyrir sér að óvirða þetta félag sitt með marki verkfallsbrjótsins. Og dæmið um svokallað „stofnþing A. S. S.“ 1.—2. nóv. er nóg til að sýna öllum sönnum unnendum einingar og reglu innan verkalýðssamtakanna, að hér eru alvar- legir hlutir á ferðum. Um leið og þingið fagnar því, að sambandinu hefur tekizt að hnekkja árásum þessum í félagslegri einingu verkalýðsins lítur það svo á, að lífsskilyrði vinnandi fólks í landinu sé það, að óvinum verkalýðsins takist hvergi að rjúfa stéttareiningu hans á landsmælikvarða innan A. S. í. og komast að baki þeim. Þingið leggur því sérhverju sambandsfélagi og sér- hverjum félaga ríkt á hjarta: 1. að standa traustum fótum á grundvelli samheldn- innar um stéttarlega hagsmuni verkalýðsins og laga Al- þýðusambands Islands. 2. að vísa á bug leiðsögn þess, sem hvetur til lítils- virðingar fyrir lögum Alþýðusambands Islands, þeim lögum, sem verkalýðssamtökin hafa sett sér að starfa eftir. JÓN ÚR VÖR: KETILHREINSUN Skammar dagsstundir bíður skipið bundið landfestum og andar gufunni út. Saltklömbrurnar, sem festast á ketilleiðslurnar, verður að berja af. Gímald gufukatlanna opnast. Fljótir að skríða til botns. Það má enginn tími fara til spillis, þorskurinn vakir úti á miðum og hásetar í landi. Kertin, sem eiga að lýsa okkur um refilstigu undirdjúpanna, lyppast niður af hita og valda ekki þyngd sinni, að draga andann er éins og að drekka volgan sjó. Eftir stundarfjórðungs skorpu erum við dregnir upp, svo örmagna, að við getum tœplega valdið þrístrendum hamri og skröpu. Hvílík himnaríkissœla að fylla lungun með nýju tœru lofti, kasta blautri og óhreinni skýlunni, velta sér nakinn á köldum stálplötum lyftingarinnar, unz félagar okkar skjóta upp sótugum kolli og kámugum herðum, og við verðum að hverfa aftur niður í hitann og myrkrið. Við fáum þrefalt kaup og œtlum allir suður í haust til að menntast. 3. að framfylgja þessum grundvallarreglum hver sem í hlut á. 4. að hlíta hverju sinni þeirri félagsforystu, sem er löglega kjörin, án tillits til mismunandi stjórnmála- skoðana. 5. að ástunda sem bezt samstarf við stéttarfélaga úr öllum pólitískum flokkum um sameiginlega hagsmuni og sambandsfélög, án tillits til annars en stéttarlegra hag^muna. Flugvallarsamningurinn við Bandaríkin Tuttugasta þing Alþýðusambands íslands lýsir yfir því, að það er afdráttarlaus krafa íslenzkra verkalýðs- samtaka, að flugvallarsamningi þeim við Bandaríki Norður-Ameríku, er samþykktur var af Alþingi 5, okt. 1946, verði sagt upp eins fljótt og hægt er. Jafnframt skorar þingið á hlutaðeigandi íslenzk stjórnarvöld að sjá um, að ekki verði gengið á rétt íslands við framkvæmd nefnds samnings, meðan hann er í gildi. VINNAN 255

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.