Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Síða 42

Vinnan - 01.12.1947, Síða 42
Eftir sameininguna sem sjálfstætt land í málefna- sambandi við Svíþjóð gerði Noregur kröfu til Dan- merkur á uppgerð krónnýlendna og annarra sameigna svo sem víggirðinga, halla, skipa, jarðeigna o. s. frv. Var samið um þetta á árunum 1814 til 1821. Endaði málið þannig, að Noregur gaf upp tilkall sitt til þessara hluta gegn 12 millj. ríkisdala afslætti í ríkisskuldum sínum. Fordæmi er því fyrir því, að Danmörk geri slík- ar sameignir upp við rétta eigendur. Er danska grundvallarlagastjórnin hafði beitt þýzkt þjóðerni í hertogadæmunum Slésvík-Holstein óþolandi kúgun og brotið á þeim lög með því, að innlima Slésvík í Danmörku, hersettu þýzku stórveldin hertogadæmin 1863—64. Neyddist Kristján IX. til að láta þau af hendi ásamt Lauenburg, til að kaupa Danmörku frið. Þessi lönd voru um stund sameignarlönd Austurríkis og Prússlands. Þar sem Slésvík-Holstein misstu þannig hinn þjóðaréttarlega persónuleika sinn, kom engin krafa um uppgerð sameigna frá þeim. Eignauppgerð, og skipting landa, fasteigna og fjár- muna milli Islands og Danmerkur hefur enn engin farið fram umfram það, að Danmörk greiddi Islandi um skeið 60 þús. krónur á ári sem sárlítið brot af vöxtum stólsjarðanna. En er sambandslögin voru gerð, sömdu hinir ömurlegu fulltrúar íslands þá svo af landinu, að þeir breyttu þessu gjaldi og námsstyrkjum íslendinga í Danmörku, í tvo sjóði, eina milljón hvern, og fékk Khafnarháskóli annan sjóðinn en Háskóli Islands hinn. Þetta var gert með svohljóðandi athugasemd samninga- nefndar beggja landa: „Samkomulag er um það, að öll skuldaskipti milli Danmerkur og íslands, sem menn hefur greint á um, hvernig væru til komin, eiga að vera á enda kljáð... .“ — Félst íslenzka landstjórnin á þetta, og kann það að vera bindandi fyrir landið, en tæpast mun verða svo á litið, að Alþingi hafi samþykkt skýr- ingar samningamannanna, þótt það samþykkti sam- bandslögin. Annars kemur þetta samkomulag ekki því máli við, sem hér er um að ræða, því slík uppgerð sam- eigna landanna, sem hér er nefnd, hefur aldrei verið fram sett, og því síður valdið ágreiningi. Uppgerð sameigna íslands og Danmerkur er að einu leyti ekki flókið mál. Því þegar ísland byrjaði búskap sinn, var það gersamlega allslaust og meira að segja undir ánauðarfargi danskrar verzlunar, er féfletti það miskunarlaust fram á þessa öld, því verzlunin varð ekki frjáls fyrr en eftir stofnun Islandsbanka, komu vélbát- anna og lagning símans, og fram til 1855 var verzlunin einokuð við Danmörku eina, Danmörk sat með allar sameignirnar og situr enn. Aður ísland byrjaði búskap út af fyrir sig, hafði Danmörk selt sumar krónnýlendurnar og sum eignar- löndin, en víst er, að enginn eyrir þess fjár, er fékkst fyrir þessi lönd, hefur til íslands komið, og ekki mun salan heldur hafa sparað Islandi aukin útgjöld, því fjárpyndin á íslandi var þá eins hörð og landið gat með nokkru móti þolað. Eg nefni því öll sameignarlöndin og krónnýlendurnar, án tillits til þess, hvenær þau voru seld. Á gullströndinni í Vestur-Afríku átti krónan þrjár víggirtar smáborgir: Augustenborg, Fredensborg og Christiansborg við Akkara, sem nú er höfuðborg í The Colnoy of the Gold Coast. Þarna mun og hafa verið fjórða þorpið. Almenna verzlunarfélagið rak meðal annars þrælaverzlun frá þessum stöðvum, og margt var þar ófagurt og lítt til fyrirmyndar hjá þeim dönsku þrjótum, er þar voru. Að nýlendum þessum lágu geysi- stór áhrifasvæði, og þótt ekkert hefði verið gert til efl- ingar, mundi hald þessara stöðva hafa gefið rétt til geysi stórra og auðugrá landsvæða, er Afríku var skipt. En árið 1850 seldi danska grunnlagastjórnin Englandi þessar nýlendur. Tanquebar, austan á Dekan, var fyrsta krónnýlendan, sem hin norsk-danska króna eignaðist snemma á 17. öld. Þetta var víggirt hafnarborg, ekki stór, en að henni lá auðugt land. Síðar eignaðist krónan Serampur í Benegal. Einnig það var norsk-dönsk kastalaborg. Lá að henni mikið og stórauðugt áhrifasvæði. Græddi Ind- landsfélagið í Kaupmannahöfn ógrynni fjár á verzlun við þessar nýlendur, og við Kína. Árið 1845 seldi Dana- stjórn enska Indlandsfélaginu nýlendur þéssar fyrir 1 milljón ríkisdala. í Vesturheimseyjum náðu ríkin í 3 eyjar: St. Croix, St. Thomas og St. Jan. St. Croix var allstór ey; á St. Thomas var ágæt höfn á fjölfarinni verzlunar- og sigl- ingaleið. Eyjar þessar voru í alla staði ágæt eign. Lofts- lagið var heilnæmt og eins inndælt og á varð kosið. Um langt skeið græddu firmu í Khöfn of fjár á plantekru- rækt og einokaðri verzlun við þessar eyjar. En árið 1916 seldi Danastjórn Bandaríkjunum þær fyrir 100 milljónir króna. Ekki bað Danmörk heldur um leyfi ís- lands til þessarar sölu, og enginn eyrir andvirðisins hefur heldur runnið til vors lands. Það er haldið, að Bandaríkin hafi náð kaupverðinu inn á 3—4 árum í sköttum og tollum af eyjunum. Má af því ráða hversu viturleg þessi sala var. Eitt hinna „nærtækustu“ drengskaparbragða Dan- merkur í íslands garð var það, að rétt fýrir aldamótin 1800 stóðu yfir samningar milli Dana og Breta um sölu íslands til Bretlands fyrir £ 1.200.000 — og átti að nota fé þetta til útbúnings danska flotans, og átti að gefa hitabeltisey í ofanálag. En svo sáu Danir sig um hönd, og vildu ekki selja, nema þeir fengi Lauenborg í milligjöf. Svona stóðu sakir, er Danmörk, Svíþjóð og Rússland stofnuðu „Vopnaða hlutleysissambandið“ ár- ið 1800, og brezki flotinn gerði Dönum það til geðs, að láta vopnin tala. 264 / VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.