Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Page 43

Vinnan - 01.12.1947, Page 43
Fyrir óheilindi Dana gagnvart málstað frelsisins og andstæðinga Napoleons, var farið með Danmörku sem óvin, áður en hún lagði út í styrjöldina með Napoleon. Nú brást þeim sú listin. að vera „jafnan með þeirn er betur má“. Aður Napoleon væri sigraður, og áður Danir næðu að geta „söðlað um“, var Bernadotte ríkis- arfi Svía kominn með her sinn norður á Jótlandsskaga, og Friðrik VI. varð að kaupa Danmörku frið með því að afsala sér Noregi. En í Napoleonsstyrjöldunum voru Islendingar Breta megin, enda var farið með þá sem vina-þjóð. ísland var annað fullvalda landið í Noregskonungs veldi, og það orkar ekki tvímælis, að það hlaut að fá tiltölulega miklu ríkari rétt en Damörk til þess, sem Friðrik VI. fékk af Svíum fyrir afsal Noregs. Upp í afsal Noregs fékk Friðrik VI. strax útborg- aða 1 milljón ríkisdala í reiðupeningum. Var gerður um þetta leynisamningur og látið heita svo, að þetta væri greitt til þess að útbúa danska herinn á móti Napo- leon! Þarna sagði sáttmálstryggðin og trúnaðurinn við bandamann til sín sem oftar. Svíar gáfu upp 12 milljón króna herskatt og álíka upphæð fyrir hertöku skipa. Svíar unnu Friðriki VI. að halda öllum'Eyrarsunds- tollinum, sem Noregur þó átti hlutdeild í, því tolli þess- um var haldið uppi af sameiginlegu afli allra landa kon- ungs. Eftir að Danmörk hafði haft stórtekjur af tolli þessurn, var hann afleystur 1857 með 47 milljón króna greiðslu til Danmerkur frá nokkrum sæfarandi þjóðum. Enginn eyrir af öllu þessu fé hefur til íslands komið. Fyrir NoNreg afhentu Svíar Friðriki VI. eyna Riigen og Sænska Pommern. Var íbúatala þessara landa ca. þg af íbúatölu Noregs, en hlutfallslega við íbúatöluna voru þau miklu auðugri lönd. Urðu þetta sameignarlönd (condominia) Islands og Danmerkur. En árið eftir (1815) seldi Friðrik Vl. Prússum þessi lönd fyrir Her- togadæmið Lauenburg og 2.600.000 Thlr. milligjöf. í Lauenburg voru miklar landssjóðsjarðir, og mun það hafa valdið lystinni í hana. Árið 1864 lét Danmörk Lauenburg af hendi, til að kaupa Danmörku frið, þ. e. Danmörku einni til gagns. Með Islandi urðu þessi lönd Noregskonungsveldis eftir undir veldissprota Friðriks VI.: Grænland og Færeyjar. Grænland var nýlenda Islands og fullkomin séreign þess. Árið 1920 létu Danir einhvern frægasta og auðugasta hluta Grænlands, Svalbarð, af hendi við Noreg gegn því, að Noregur lofaði að viðurkenna lands- yfirráð Danmerkur yfir öllum öðrum hlutum Græn- lands. Var þetta auðvitað hið alversta verk, sem tæpast er rithæft að nefna sínu rétta nafni, því Danmörk fór þá með utanlandsmál íslands í urnboði þess! Færeyjar voru upphaflega sjálfstæðar, urðu svo hjá- lenda Noregs, en hafði um langt skeið verið stjórnað með íslandi, og sum íslenzk lög, t. d. Stóridómur, giltu þar. Lengi var litið svo á, að Færeyjar væru ekki hluti Danmerkur, og eru til skjöl fyrir því. En 1850 neyddu Danir Færeyinga til að senda fulltrúa á Ríkisþingið danska, og stendur svo enn. En ekki hafa Færeyjar verið formlega innlimaðar í Danmörku, þótt farið hafi verið með þær sem danskt amt, enda myndi löglaus innlimun sízt bæta rétt Dana þar. Hafi Færeyjar ekki að réttum lögum orðið íslenzkt land 1814—21, urðu þær og eru enn í dag íslenzkt- danskt sameignarland. Sem sameignarland eru þær hvorki hluti úr landsvæði Danmerkur né íslands, held- ur land, sem enn er óráðið hvar lendir. Sem sameign- arlandi ætti ísland að geta veitt Færeyjum fiskiréttindi, án þess að beztu kjaraþjóðir gætu krafizt hins sama. Síðan á 14. öld hafa konungar Islands setið í Dan- mörku, og síðan í byrjun 15. aldar hefur Kaupmanna- höfn verið aðsetursstaður konungs og sameiginlegur höfuðstaður allra landa og ríkja konungs. Síðan hefur stanslaus og stórfeldur fjárstraumur frá íslandi og Grænlandi gengið til Kaupmannahafnar og Danmerkur, bæði í hinn sameiginlega sjóð konungs þar og til einka- fyrirtækja, er konungur vildi efla og auðga á kostnað íslands, og efldi og auðgaði á kostnað þess. Einkanlega var það áhugamál konungs, að auðga og efla Kaup- mannahöfn, danskan iðnað og danska verzlun og sigl- ingar, og velferð og lífi íslenzku þjóðarinnar var misk- unarlaust fórnað á altari þessarar dönsku guða, unz íslenzka þjóðin var ekki aðeins öllu rúin, heldur og næstum með öllu útrýmt af hungri og allsleysi, eftir að allur arður af starfi hennar um margar aldir hafði runn- ið til þessa konungs og í sj óð hans sj álfs. Það er ekki aðeins augljóst mál, að ísland á kröfu um skaðabætur fyrir þessa þrælslegu meðferð, heldur ætti það og að vera öllum augljóst, að eignir þær, sem kostaðar höfðu verið úr konungssj óði, eða sjóðum þeirra borga, er vegna konungsboða sóttu auðæfi sín til Islands, eru sameign landanna en ekki séreign Dan- merkur. Hefur Danmörk líka sjálf viðurkennt þetta með uppgerðinni við Noreg 1814—21. Einkanlega er augljóst, að mennta- og menningarstofnanir þær, sem settar voru í Khöfn sem sameiginlegan höfuðstað, til afnota fyrir alla hina norrænu þegna konungs, t. d. há- skólinn og háskólar ýrnsra sérgreina, söfn o. s. frv. og kostaðar voru úr konungssjóði, eru ekki séreign Dan- merkur, heldur sameign. Það er og augljóst, að söfn Kaupmannahafnar eru að miklu leyti sameign, t. d. Þjóðminjasafnið, Tauhúsið, Rósinborgarsafn og Lista- safn ríkisins, er allt eru greinar úr hinu gamla Kunst- kammer konungs. Og Konunglega bókasafnið er hið gamla einkabókasafn konungs, sent opnað var almenn- ingi o. s. frv. Það er ekki ástæða til að rekja þetta frekar. Uppgerð VINNAN 265

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.