Vinnan - 01.12.1947, Qupperneq 48
Samningur Hlííar í HafnarfirSi
9. okt. s. 1. var framlengdur samningur Hlífar í Hafnarfirði
og atvinnurekenda þar, en atvinnurekendur höfðu sagt samn-,
ingnum upp og átti hann að ganga úr gildi 15. okt. s. 1. Samn-
ingurinn gildir nú um óákveðinn tíma með mánaðar upp-
sagnarfresti.
Dagsbrúnarsamningar
13. okt. s. 1. var samningur Dagsbrúnar og vinnuveitenda frá
5. júlí þ. á. framlengdur um óákveðinn tíma með mánaðar
uppsagnarfresti. Vinnuveitendur höfðu sagt samningnum upp
og átti hann að ganga úr gildi 15. okt. s. 1.
Samningar Verkamannafél. Akureyrarkaupstaðar
14. okt. s. 1. var framlengdur samningur frá 29. ágúst þ. á. um
kaup og kjör milli Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar og
atvinnurekenda þar, en atvinnurekendur höfðu sagt samningn-
um upp og var uppsagnarfrestur liðinn 15. okt. Samningurinn
gildir frá 15. okt. um óákveðinn tíma, með eins mánaðar upp-
sagnarfresti.
Samningur um kaup og kjör matsveina, búrmanna
og veitingaþjóna
Svo sem kunnugt er sagði Eimskipafélag Islands h. f. og
Skipaútgerð ríkisins upp samningi um kaup og kjör matsveina,
búrmanna og veitingaþjóna á viðkomandi skipum, dags. 24.
okt. 1946 við Matsveina- og veitingaþjónafélag íslands. 22. okt.
s. 1. var samningur þessi framlengdur um óákveðinn tíma, með
eins mánaðar uppsagnarfresti.
Nýr kauptaxti málarasveina
Málarasveinafélag Reykjavíkur samþykkti á fundi félagsins
19. sept. s. 1. að lágmarkskaup félagsmanna skyldi hækka úr
kr. 3,35 upp 1 kr. 3,50 á klst. í dagvinnu. Eftirvinna reiknast
með 60% álagi á dagvinnukaup og nætur- og helgidagavinna
með 100% álagi. — Taxti þessi gildir frá 1. okt. 1947 til 1. apríl
1948.
Nýr samningur um kjör nóta- og netamanna á Akureyri
í sept. s. 1. voru undirritaðir samningar milli Vinnuveitenda-
félags Akureyrar og Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar um
nóta- og netavinnu. Samkvæmt hinum nýja samningi hækkar
tímakaup úr kr. 2,92 í kr. 3,05 á klst. Kaup þeirra, sem öðlast
iðnréttindi, hækkar úr kr. 3,10 í kr. 3,15. Yfir sumartímann frá
1. júlí til 10. sept. greiðist nótamönnum Þróttartaxti (kr. 2,70)
með 60% álagi. Áður höfðu nótamenn það kaup aðeins yfir
þann tírna, sem þeir unnu á Siglufirði. — Veikindadagar greið-
ast allt að 12 á ári. Uppsagnarfrestur úr vinnu er 2 mánuðir
fyrir fastráðna menn. — Verkamannafélagið hafði ákveðið
vinnustöðvun frá og með 17. sept., ef samningar hefðu þá ekki
verið undirritaðir, en vinnuveitendur höfðu í fyrstu neitað með
öllu að hækka kaupið. — Samningurinn gildir frá 1. sept. þ. á.
til 15. okt. 1948.
Samningur Matsveina- og veitingaþjónafélags Islands
1. nóv. voru undirritaðir fyrstu kaup- og kjarasamningar
matreiðslu- og framreiðslumanna við veitingahúseigendur i
Reykjavík, en áður voru engar fastar reglur til um kaup og
kjör þessara iðngreina. — Samningar þessir eru tveir, en báðir
á milli Sambands veitingamanna- og gistihúseigenda og Mat-
sveina- og veitingaþjónafélags íslands. Samkv. samningum þéss-
urn eru grunnlaun matreiðslumanna kr. 650,00 á mánuði, en
yfirmatreiðslumenn fá 25% hærri grunnlaun. — Öll vinna mat-
reiðslumanna umfram 48 klst. á viku er kr. 2,50 fyrir byrjaða
i% klst. — Samningur matreiðslumanna gildir til 1. nóv. 1948
og framlengist um eitt ár sé honum ekki sagt upp með þriggja
mánaða fyrirvara, en samningur framreiðslumanna gildir til 1.
maí og framlengist um sex mánuði í senn miðað við 1. maí eða
1. nóv. ár hvert sé honum ekki sagt upp með þriggja mánaða
fyrirvara. — 1. nóv. s. 1. hættu framreiðslumenn öllum lánsvið-
skiptum til gesta.
Nýir samningar á Seyðisfirði
1, maí s. 1. var undirritaður nýr kjarasamningur milli Verka-
mannafélagsins Fram á Seyðisfirði og atvinnurekenda þar. Sam-
kvæmt hinum nýja samningi hækkaði grunnkaup verkamanna
í almennri dagvinnu úr kr. 2,50 í kr. 2,60 á klst. Grunnkaup í
skipavinnu hækkaði úr kr. 2,80 í kr. 2,90 á klst. Grtmnkaup í
kola-, salt- og sementsvinnu hækkaði úr kr. 3,20 í kr. 3,30 á
klst. Með þessum samningi eru verkamenn á Seyðisfirði komnir
i hin almennu Austfjarðakjör.
Nýr kjarasamningur á Borgarfirði eystra
Um miðjan nóv. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkalýðsfélags Borgarfjarðar eystra og atvinnurekenda. Sam-
kvæmt þessum nýja samningi hækkaði grunnkaup verkamanna
í almennri dagvinnu úr kr. 2,30 í kr. 2,60 á klst. Grunnkaup í
skipavinnu hækkaði úr kr. 2,30 í kr. 2,80 á klst. Eftirvinna
greiðist með 50% álagi og nætur- og helgidagavinna með 100%
álagi á dagvinnukaup. Með þessum samningi hafa verkamenn
á Borgarfirði samræmt kjör sín því, sem almennt gildir á Aust-
fjörðum.
TILNEFNINGAR í NEFNDIR
Nýbyggingarsjóðsnefnd
Á fundi miðstjórnar Alþýðusambandsins 29. ágúst s. 1. var
Lúðvík Jósefsson alþingismaður tilnefndur sem fulltrúi sam-
bandsins í Nýbyggingarsjóðsnefnd í stað Sigurðar heitins Ólafs-
sonar gjaldkera.
Skipulagsnefnd A. S. í.
Miðstjórn Alþýðusambandsins hefur skipað eftirtalda menn
í nefnd til að athuga og gera tillögur um skipulag sambands-
ins, samkv. ályktun 19. þingsins: Eðvarð Sigurðsson, Kjartan
Guðnason, Einar Ögmundsson, Þorstein Pétursson og Pál Ó.
Pálsson. Samkv. ályktun þingsins á nefndin að vera sambands-
stjórn til aðstoðar og ráðuneytis í skipulagsmálunum.
Félagsdómur
Miðstjórn Alþýðusambandsins skipaði á fundi sínum 3. okt.
s. 1. Ragnar Ólafsson, hrl. sem fulltrúa sambandsins 1 Félags-
dóm til næstu þriggja ára og til vara Þorstein Pétursson skrif-
stofumann.
Nefnd til að endurskoða lög um eftirlit
með verksmiðjum og vélum
Á fundi miðstjórnar Alþýðusambandsins 5. nóv. s. 1. var
samþykkt að tilnefna Kristinn Ág. Eiríksson í nefnd til að
endurskoða lög um eftirlit með verksmiðjum og vélum og
reglugerðir þar að lútandi, samkv. þingsályktunartillögu, sem
.samþykkt var á Alþingi 16. maí 1947.
270
VINNAN