Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Page 11
hann segir báða málaflokkana hafa staðnað á kjörtímabilinu. „Síðan eru það hin málin sem eru ekki negld niður í stjórnarsáttmála heldur þurfa að byggja á trausti á samstarfið, því að flokkarnir geti náð saman ásættanlegri niðurstöðu. Það held ég að hafi oft verið erfiðustu málin og leitt til þessarar kyrrstöðu í til dæmis loftslagsmálum. Við erum með metnaðarfyllri áætlun í loftslagsmálum en nokkru sinni áður en hún hefur ekkert þróast á kjör- tímanum.“ Sagði skilið við VG Það var svo í nóvember 2019 sem Andrés Ingi ákvað að segja skilið við þingflokk VG og starfa frekar sem þing- maður utan flokka. Á þeim tíma skýrði Andrés ákvörðun sína sem svo að hann hafi frá upphafi haft efasemdir um samstarfið við Sjálfstæðis- flokk og Framsókn. Síðar hafi áhyggjur hans raungerst í því að stjórnarsamstarfið hafi leitt til þess að VG fjarlægðist þær áherslur sem flokkurinn ætti að standa fyrir. Í dag segir Andrés enga eina sérstaka ástæðu hafa leitt til þess að hann kvaddi félaga sína í VG. „Það var ekki einn atburður. Það er ekki hægt að grípa eitt- hvað ákveðið og benda á það sem ástæðuna. Það var bara þessi tilfinning að okkur hafi rekið í sundur og það byrjaði eiginlega strax og er ákveðið að fara í formlegar stjórnar- myndunarviðræður. Í þeim viðræðum lagði ég áherslu á að það mætti ekki hefja slíkt samstarf fyrr en það væru komin skýr flögg sem hægt væri að halda á lofti og segja: „Sjáið! Hér eru ákveðin atriði sem við náum í gegn í þessu samstarfi sem annars hefðu ekki náðst.“ Þau flögg voru aldrei lögð fram í því ferli og allt í einu þótti það í lagi því það væri eitthvað í þessu samtali sem væri gott í sjálfu sér – en ég tengdi aldrei við það. Frá þeim punkti fannst mér ég alltaf standa á sama staðnum og fyrir sömu hug- sjónirnar og áður, en ég upp- lifði að félagarnir væru farnir að gera auknar tilslakanir í þágu samstarfsins frekar en að stefna VG og gildin væru efst á baugi.“ Kusu gegn vantrausti Andrés segir eitt skýrasta dæmið um þetta hafi verið þegar þingið kaus um van- trauststillögu sem var lögð fram gegn Sigríði Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, í kjölfar hins alræmda Lands- réttarmáls. „Þar hafði flokkurinn verið í mjög harðri baráttu í því máli þegar við vorum í stjórnar- andstöðunni. En síðan í meiri- hlutanum þá kemur fólk úr Vinstri grænum og gerir grein fyrir atkvæðum sínum og seg- ir: Jú það sem hún gerði var rangt, en vegna þess að ég er í þessari ríkisstjórn þá greiði ég atkvæði gegn vantrausti.“ Þarna upplifði ég að það væri rof á milli hugmynda- fræðinnar og praktíkinnar. Praktíkin var farin að trompa hugmyndafræðina óþarflega mikið. Svo voru samskiptin í þingflokknum bara misgóð. Við vorum að takast á um ýmis konar mál og ég upplifði á köflum að það væri kannski ekkert hlustað þegar ég kom með sjónarmið í málum sem jafnvel síðar reyndust vera rétt. Þarna finnst mér að vegna þess að hlutirnir koma frá mér, þá fái þeir minna vægi. Og að vera í þannig stöðu að þurfa alltaf að vera brynjaður fyrir átök – innan þingflokks- ins – það er ekki skemmtilegt fyrir neinn. Þegar þingflokkurinn er hættur að taka mark á mér í þeim málum sem ég hélt að ég væri að koma með að borð- inu og gæti komið til fram- kvæmda í gegn um þennan flokk – þá er líklega betra að velja sér annan farveg til að vinna að þeim málum.“ Þingmaður utan flokka Að vera þingmaður utan flokka hljómar kannski ágæt- lega í eyrum sumra. Að vera frjáls og engum háður. Andr- és segir bæði kosti og galla fylgja þeirri stöðu. „Það er dálítið skrítið en alveg skemmtilegt líka. Það gerir meiri kröfu til manns sem starfskrafts að hafa ekki þingflokk til að leita í til að fá ólík sjónarmið. Og það er DV 19. FEBRÚAR 2021 Ég er alltaf úti þegar ég fer að sofa, en vakna svo inni. FRÉTTIR 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.