Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Blaðsíða 32
Stjörnur sem þú vissir
(líklega) ekki að eru skyldar
Sumir telja að hæfileikar séu meðfæddir og gangi mögulega í erfðir. Hvort sem það er satt
eða ekki þá kemur það fyrir að fleiri en einn í hverri fjölskyldu slær í gegn. Þar sem eftirfarandi
stjörnur hafa slegið í gegn á sínum eigin forsendum þá vita ekki allir um fjölskyldutengsl þeirra.
32 FÓKUS
JONAH HILL OG BEANIE FELDSTEIN
Johan Hill sló í gegn eftir að hann lék í unglingagrín-
myndinni Superbad árið 2007. Systir hans, Beanie
Feldstein, er ekki eins þekkt en vakti mikla athygli fyrir
hlutverk sitt í verðlaunakvikmyndinni Lady Bird sem
kom út tíu árum á eftir Superbad.
LEIKARAFEÐGAR
Fyrrverandi íþróttamaðurinn John
David Washington fékk Golden
Globe verðlaunin fyrir hlutverk sitt
í kvikmyndinni BlacKkKlansman
sem kom út árið 2018. Hann á
ekki langt að sækja hæfileikana
en faðir hans er enginn annar en
Denzel Washington sem hefur í
þrígang fengið hin eftirsóknar-
verðu Golden Globe verðlaun og
var í fyrra valinn einn af bestu
leikurum 21. aldarinnar af fjölmiðl-
inum virta The New York Times.
ÞRJÁR KYNSLÓÐIR AF LEIKKONUM
Debbie Reynolds, heitin var hvað þekktust fyrir hlut-
verk sín í kvikmyndunum klassísku Singin‘ in the Rain
og The Unsinkable Molly Brown, en hún var tilnefnd til
óskarsverðlaunanna fyrir aðahlutverkið í þeirri síðar-
nefndu. Dóttir hennar Carrie Fisher þekkja flestir sem
prinsessu Leiu í Star Wars myndunum. Billie Lourd fer
með hlutverk í nýju Star Wars trílógíunni en hún er
dóttir Carrie og barnabarn Debbie. Það eru því þrjár
kynslóðir af leikkonum í þeirri fjölskyldu.
MÆÐGUR OG STJÓRSTJÖRNUR
Leikkonan Goldie Hawn hefur leikið í fjölda mynda á
borð við Private Benjamin, Overboard og Death Beco-
mes Her. Gullárin hennar voru frá um 1970 til 2000. En
þá gat dóttir hennar tekið við keflinu. Dóttir Goldie er
engin önnur en Kate Hudson sem sló í gegn árið 2000
í kvikmyndinni Almost Famous og hefur leikið í hverri
stórmyndinni á eftir annari. Til dæmis í hinni sívinsælu
gamanmynd How to Lose a Guy in 10 Days.
FRÆKNAR FRÆNKUR
Leikkonan Julia Rober ts er
hvað þekktust fyrir leik sinn í
gífurlega vinsælum rómantískum
gamanmyndum á borð við Pretty
Woman, Notting Hill og Runaway
Bride. Bróðurdóttir hennar virðist
hafa fengið leikaragenið en Emma
Roberts er þekkt fyrir leik sinn í
gamanmyndunm Wild Child, We
are the Millers og hryllingsþátta-
röðinni American Horror Story.
RAPPARA-FJÖLSKYLDAN
Snoop Dogg er einn þekktasti
rappari heims með stóra slagara
á bakinu á borð við „Gin&Juice“
og „California Gurls“. Hann er þó
ekki sá eini í fjölskyldunni sem
hefur slegið í gegn. Söng- og rapp-
konan Brandy er frænka Snoops
en Brandy gerði garðinn frægan
um aldamótin með lögum á borð
við „The Boys Is Mine“ og „What
About Us?“. Þess má einnig geta
að bróðir Brandy, Ray J, er einnig
þekktur tónlistarmaður.
SÖNGVARINN OG LEIKKONAN
Leikkonan Lily Collins hefur heldur
betur gert garðinn frægan undan-
farin ár, nú síðast í þáttunum Emily
in Paris sem voru nýlega sýndir á
Netflix. Faðir hennar er enginn
annar en goðsagnakenndi söngv-
arinn Phil Collins sem á slagara á
borð við In the Air Tonight og Ag-
ainst all odds. Feðginin hafa öðlast
frægð á sitt hvoru sviðinu og ekki
margir átta sig á tengslum þeirra
þrátt fyrir að þau deili eftirnafni.
GRÍNISTINN OG
TÓNLISTARKONAN
Tónlistarkonan Elle King hefur
notið mikilla vinsælda undan-
farin ár og meðal annars verið á
tónleikaferðalagi með íslensku
hljómsveitinni Of Monsters and
Men. Hún er dóttir grínleikarans
Rob Schneiders sem er þekktur
fyrir kjánalegar grínmyndir á borð
við Deuce Bigalow: Male Gigolo,
The Animal og The Hot Chick.
MYNDIR/GETTY
19. FEBRÚAR 2021 DV