Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 32
Stjörnur sem þú vissir (líklega) ekki að eru skyldar Sumir telja að hæfileikar séu meðfæddir og gangi mögulega í erfðir. Hvort sem það er satt eða ekki þá kemur það fyrir að fleiri en einn í hverri fjölskyldu slær í gegn. Þar sem eftirfarandi stjörnur hafa slegið í gegn á sínum eigin forsendum þá vita ekki allir um fjölskyldutengsl þeirra. 32 FÓKUS JONAH HILL OG BEANIE FELDSTEIN Johan Hill sló í gegn eftir að hann lék í unglingagrín- myndinni Superbad árið 2007. Systir hans, Beanie Feldstein, er ekki eins þekkt en vakti mikla athygli fyrir hlutverk sitt í verðlaunakvikmyndinni Lady Bird sem kom út tíu árum á eftir Superbad. LEIKARAFEÐGAR Fyrrverandi íþróttamaðurinn John David Washington fékk Golden Globe verðlaunin fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni BlacKkKlansman sem kom út árið 2018. Hann á ekki langt að sækja hæfileikana en faðir hans er enginn annar en Denzel Washington sem hefur í þrígang fengið hin eftirsóknar- verðu Golden Globe verðlaun og var í fyrra valinn einn af bestu leikurum 21. aldarinnar af fjölmiðl- inum virta The New York Times. ÞRJÁR KYNSLÓÐIR AF LEIKKONUM Debbie Reynolds, heitin var hvað þekktust fyrir hlut- verk sín í kvikmyndunum klassísku Singin‘ in the Rain og The Unsinkable Molly Brown, en hún var tilnefnd til óskarsverðlaunanna fyrir aðahlutverkið í þeirri síðar- nefndu. Dóttir hennar Carrie Fisher þekkja flestir sem prinsessu Leiu í Star Wars myndunum. Billie Lourd fer með hlutverk í nýju Star Wars trílógíunni en hún er dóttir Carrie og barnabarn Debbie. Það eru því þrjár kynslóðir af leikkonum í þeirri fjölskyldu. MÆÐGUR OG STJÓRSTJÖRNUR Leikkonan Goldie Hawn hefur leikið í fjölda mynda á borð við Private Benjamin, Overboard og Death Beco- mes Her. Gullárin hennar voru frá um 1970 til 2000. En þá gat dóttir hennar tekið við keflinu. Dóttir Goldie er engin önnur en Kate Hudson sem sló í gegn árið 2000 í kvikmyndinni Almost Famous og hefur leikið í hverri stórmyndinni á eftir annari. Til dæmis í hinni sívinsælu gamanmynd How to Lose a Guy in 10 Days. FRÆKNAR FRÆNKUR Leikkonan Julia Rober ts er hvað þekktust fyrir leik sinn í gífurlega vinsælum rómantískum gamanmyndum á borð við Pretty Woman, Notting Hill og Runaway Bride. Bróðurdóttir hennar virðist hafa fengið leikaragenið en Emma Roberts er þekkt fyrir leik sinn í gamanmyndunm Wild Child, We are the Millers og hryllingsþátta- röðinni American Horror Story. RAPPARA-FJÖLSKYLDAN Snoop Dogg er einn þekktasti rappari heims með stóra slagara á bakinu á borð við „Gin&Juice“ og „California Gurls“. Hann er þó ekki sá eini í fjölskyldunni sem hefur slegið í gegn. Söng- og rapp- konan Brandy er frænka Snoops en Brandy gerði garðinn frægan um aldamótin með lögum á borð við „The Boys Is Mine“ og „What About Us?“. Þess má einnig geta að bróðir Brandy, Ray J, er einnig þekktur tónlistarmaður. SÖNGVARINN OG LEIKKONAN Leikkonan Lily Collins hefur heldur betur gert garðinn frægan undan- farin ár, nú síðast í þáttunum Emily in Paris sem voru nýlega sýndir á Netflix. Faðir hennar er enginn annar en goðsagnakenndi söngv- arinn Phil Collins sem á slagara á borð við In the Air Tonight og Ag- ainst all odds. Feðginin hafa öðlast frægð á sitt hvoru sviðinu og ekki margir átta sig á tengslum þeirra þrátt fyrir að þau deili eftirnafni. GRÍNISTINN OG TÓNLISTARKONAN Tónlistarkonan Elle King hefur notið mikilla vinsælda undan- farin ár og meðal annars verið á tónleikaferðalagi með íslensku hljómsveitinni Of Monsters and Men. Hún er dóttir grínleikarans Rob Schneiders sem er þekktur fyrir kjánalegar grínmyndir á borð við Deuce Bigalow: Male Gigolo, The Animal og The Hot Chick. MYNDIR/GETTY 19. FEBRÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.