Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Blaðsíða 20
20 FÓKUS
Eftirsóttar
og æðislegar
á lausu
Konudagurinn er á sunnudaginn og því tilvalið
að birta hér myndir af stórkostlegum konum.
Þessar glæsilegu konur eiga það sameiginlegt
að vera á lausu. DV fékk ábendingar víða að
um hvaða konur væru á lausu og hér eru þær,
toppeintök sem vert er að fylgjast með.
19. FEBRÚAR 2021 DV
SÓLBORG GUÐBRANDS
Sólborg Guðbrandsdóttir tón-
listarkona, fyrirlesari og lög-
fræðinemi er óhrædd við að láta
til sín taka. Hún heldur úti síðunni
favitar.is og hefur enga þolin-
mæði fyrir fávitaskap. Sólborg er
frá Keflavík, er áhugaleikkona og
með töff fatastíl.
SARA JÓNS
Sara Jónsdóttir markaðs- og viðskiptafræðingur og
hönnuður er ákaflega skemmtileg kona. Hún starfaði
sem stjórnandi HönnunarMars um árabil og hefur
komið að hönnun ýmissa veitingastaða og hinna vin-
sælu bakaría Brauð & Co. Sara á hlut í Kaffi Vest og
þykir ákaflega skörp bæði þegar kemur að viðskiptum
og því að fegra umhverfið.
ERNA ÞRASTAR
Flugmaðurinn Erna María Þrastardóttir býr sem stendur í Portúgal þar sem
hún starfar sem flugkennari en hún starfaði áður fyrir Icelandair og SAS.
Erna er skörp, áreiðanleg og hrikalega skemmtileg. Erna kemur úr um-
hverfi sterkra kjarnakvenna en hún er dóttir Regínu Ástvalds sviðsstjóra
Velferðarsviðs hjá Reykjarvíkurborgar og eldri systir fatahönnuðarins Ýrar
Þrastardóttur.
MARÍA KLARA
María Klara Jónsdóttir lögmaður
er sjarmakempa. Hún er útivistar-
kona af guðs náð og stundar hjól-
reiðar af kappi. María Klara er
eldklár og hræðist ekki áskoranir.
Kona sem mun láta kveða að sér
í framtíðinni.
MYND/FACEBOOK
MYND/SAGA SIG
MYND/FACEBOOK
MYND/FACEBOOK