Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Síða 20
20 FÓKUS Eftirsóttar og æðislegar á lausu Konudagurinn er á sunnudaginn og því tilvalið að birta hér myndir af stórkostlegum konum. Þessar glæsilegu konur eiga það sameiginlegt að vera á lausu. DV fékk ábendingar víða að um hvaða konur væru á lausu og hér eru þær, toppeintök sem vert er að fylgjast með. 19. FEBRÚAR 2021 DV SÓLBORG GUÐBRANDS Sólborg Guðbrandsdóttir tón- listarkona, fyrirlesari og lög- fræðinemi er óhrædd við að láta til sín taka. Hún heldur úti síðunni favitar.is og hefur enga þolin- mæði fyrir fávitaskap. Sólborg er frá Keflavík, er áhugaleikkona og með töff fatastíl. SARA JÓNS Sara Jónsdóttir markaðs- og viðskiptafræðingur og hönnuður er ákaflega skemmtileg kona. Hún starfaði sem stjórnandi HönnunarMars um árabil og hefur komið að hönnun ýmissa veitingastaða og hinna vin- sælu bakaría Brauð & Co. Sara á hlut í Kaffi Vest og þykir ákaflega skörp bæði þegar kemur að viðskiptum og því að fegra umhverfið. ERNA ÞRASTAR Flugmaðurinn Erna María Þrastardóttir býr sem stendur í Portúgal þar sem hún starfar sem flugkennari en hún starfaði áður fyrir Icelandair og SAS. Erna er skörp, áreiðanleg og hrikalega skemmtileg. Erna kemur úr um- hverfi sterkra kjarnakvenna en hún er dóttir Regínu Ástvalds sviðsstjóra Velferðarsviðs hjá Reykjarvíkurborgar og eldri systir fatahönnuðarins Ýrar Þrastardóttur. MARÍA KLARA María Klara Jónsdóttir lögmaður er sjarmakempa. Hún er útivistar- kona af guðs náð og stundar hjól- reiðar af kappi. María Klara er eldklár og hræðist ekki áskoranir. Kona sem mun láta kveða að sér í framtíðinni. MYND/FACEBOOK MYND/SAGA SIG MYND/FACEBOOK MYND/FACEBOOK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.