Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Side 13
greinast með svona arfgengar ástæður í tékk. Því svona er oft hægt að halda auðveldlega niðri með lyfjum svo fólk lendi ekki í hjartaáfalli. Ég var á lyfjum í tíu ár áður en það varð vesen. En ég fékk ekki hjartaáfall heldur tók læknirinn eftir þessu í línu­ riti, þrengda æðin hafði lokast alveg en af því að ég var á lyfjum þá hafði hjartað náð að vinna fram hjá þrengingunni.“ Svo fyrirbyggjandi með­ ferðin sem Andrés var á, bjargaði honum mögulega frá hjartaáfalli. Heimavinnandi húsfaðir Glöggir lesendur tóku kannski eftir því að tvö ár liðu frá því að Andrés lauk störfum sem aðstoðarmaður umhverfisráð­ herra þar til hann tók sæti á þingi. Eftir að Andrés kynntist Rúnu, konu sinni, fluttu þau til útlanda. „Fluttum til Berlínar, Bright­ on og bjuggum svo í Brussel í nokkur ár. B­borgir eru svona þema hjá okkur. Svo fluttum við til Íslands þegar ég var kosinn.“ Þegar þau fluttu út árið 2013 var dóttir þeirra fimm mánaða og þá fékk Andrés tækifærið til að verða heimavinnandi húsfaðir um hríð. „Ég gat verið með henni þar til hún varð eins og hálfs árs og komst í leikskóla. Það var ótrúlega gott að eiga þennan tíma með börnunum. Þau klár­ uðu skólann snemma og við áttum gæða tíma. Dóttir mín var samt alveg tilbúin að losna við mig þarna í lokin.“ Aðspurður segist Andrés al­ veg vera rómantískur maður. Hann og kona hans hafi þó ekki haldið upp á Valentínusar­ daginn síðustu helgi. „Jú, við fórum í afmælis­ veislu til bróður míns sem á afmæli 14. febrúar.“ Andrés vill þó ekkert gefa upp um áformin fyrir konu­ daginn sem er núna á sunnu­ daginn. Aðspurður hvort hann ætli að koma konunni á óvart svarar hann sposkur: „Kannski.“ En það er líklega erfitt að koma einhverjum á óvart á sunnudegi ef maður opinberar það fyrst í helgarviðtali sem birtist á föstudegi. Metnaður í stað kyrrstöðu Andrés segir næsta kjörtíma­ bil geta skipt miklu máli. Það sé kominn tími fyrir metn­ aðarfulla ríkisstjórn í staðinn fyrir ríkisstjórn sem stendur fyrir kyrrstöðu og lægsta samnefnara. „Það þarf að fá almenni­ lega ríkisstjórn sem er laus við Sjálfstæðisflokkinn. Ég held að það sé lykilatriði til að ná fram ákveðnum grund­ vallarbreytingum í þágu lofts­ lagsmála og ýmissa aukinna mannréttinda. Við erum til dæmis búin að upplifa núna algjöra kyrr­ stöðu í úrbótum á útlendinga­ málum allt kjörtímabilið og það er eitthvað sem við þurf­ um að laga og verða betri í og það skiptir mjög miklu máli. Það verður að vera metn­ aðarfull ríkisstjórn með al­ vöru aðgerðir eftir kosningar en ekki einhver ríkisstjórn um lægsta samnefnara. Það væri alveg rosalega glötuð staða.“ n DV 19. FEBRÚAR 2021 FRÉTTIR 13 glufu og banna alveg barna­ hjónabönd.“ Ekki lengur fyrir elítu Það sem gæti komið lesendum mest á óvart við þingstörfin er, að mati Andrésar, það að starfið henti í raun hverjum sem er. Þingstörf séu ekki lengur fyrir afmarkaða elítu. „Ég held að fólk mikli starfið stundum fyrir sér, fólk sem ekki hefur reynslu heldur stundum að þetta sé ekki fyrir hvern sem er. Þetta er jú krefjandi starf en fyrir fólk sem kann að setja sig inn í mál, mynda sér skoðanir og vinna undir smá álagi þá er þetta starf sem hentar hverj­ um sem er. Þetta er eitthvað sem mér hefur þótt breytast undanfarin ár, en þetta má alveg breytast meira.“ Lækkun kosningaaldurs Á þingferli sínum er Andrés hvað stoltastur af baráttu sinni fyrir lækkun kosningaaldurs. „Það hafa margir borið þessa baráttu uppi. Fyrst kom þetta fram árið 2007, löngu fyrir minn tíma, og þá hafði eitt land tekið þetta skref. En nú eru þau nær tuttugu. Ég held að fólk sé bæði að vanmeta ungt fólk sem mögu­ lega kjósendur og vanmeta getu 16­17 ára einstaklinga til að mynda sér skoðun og vera góðir kjósendur. Svo held ég að fólk sé líka að vanmeta já­ kvæðu áhrifin sem það myndi hafa á þingið. Ég held að það myndi þrýsta á stjórnmálaflokkana til að taka raunverulegri afstöðu í málefnum ungs fólks heldur en er gert í dag. Og jafnvel að raða því þannig á lista að við lendum ekki aftur í því að að við erum ekki með neinn undir þrítugu á þingi eins og er núna.“ Andrés telur mikilvægt að hafa ungt fólk á þingi. „Það væri kannski minna vandamál ef þinginu gengi betur að taka tillit til þessara sjónarmiða án þess að vera með ungt fólk á staðnum. En eins og Stúdentaráð hefur fengið að upplifa núna, bara síðasta árið, varðandi rétt til atvinnuleysisbóta, hækkun grunnframfærslu og alls konar í tengslum við COVID og ekki í tengslum við COVID. Það er eitthvað sambandsleysi þarna á milli.“ Hjartaþræðing fyrir fertugt Andrés Ingi hefur lagt fram þingsályktunartillögu um skipulagt hjartaeftirlit ungs fólks. Málaflokkurinn er hon­ um mikilvægur vegna eigin reynslu. „Ættingi minn fékk hjarta­ áfall ungur og í framhaldinu af því fórum við nokkrir frændurnir í skoðun og þar kom í ljós að ég var með svaka mikla þrengingu í æðum og var settur á lyf. Þarna var ég um þrítugt. Fólk sem fær hjartaáfall fyrir fimmtugt eða fertugt, það er líklegt að þar séu arf­ gengar ástæður að baki. Þess vegna getur verið skynsamlegt að senda fólk í kringum þá sem Kom í ljós að ég var með svaka mikla þrengingu í æðum og var settur á lyf. Þarna var ég um þrítugt. Andrés Ingi fann sér nýtt heimili hjá Pí- rötum á þingi. MYND/ SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.