Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 17
Holtasmári 1 · Kópavogur www.ledtec.is EINFALT LÉTT OG ÓDÝRT!LÉTTLÍNULJÓS VERLSLUNARHÚSNÆÐIÐ · BÍLSKÚRINN · VERKSTÆÐIÐ · LAGERINN · HESTHÚSIÐ MARGAR STÆRÐIR · EINFALT AÐ SETJA UPP · LÆGRI REKSTARKOSTNAÐUR Matthías: Það hefur verið talað um að Vinstri græn séu komin lengra til hægri eftir ríkisstjórnarsamstarfið. Margir hafa farið úr VG og yfir í Pírata eða Samfylking­ una. Mér finnst því líklegt að fólk vilji kjósa Pírata eða Sam­ fylkinguna. Arnmundur: Ríkisstjórnin er svolítið umdeild. Ég held að Vinstri græn muni missa svolítið mikið fylgi. Þau hafa kannski ekki verið að fara nógu mikið eftir stefnumál­ um flokksins og frekar verið að passa upp á stjórnarsam­ starfið. Magnús: Það er auðvitað val sem stjórnmálamenn hafa. Mér finnst ríkisstjórnar­ samstarfið hafa dregið þessa flokka alla nær miðjunni. Framtíðarplönin Langar ykkur að fara út í pólitík þegar þið verðið full­ orðnir? Matthías: Ég myndi kannski bjóða mig fram í borgarstjórn. Ég held að ég myndi samt ekki sitja nema eitt eða tvö kjör­ tímabil. Ég er oft ósammála áherslum í borgarskipulagi. Ég hef mikinn áhuga á arki­ tektúr og mér finnst að það megi gera betur. Á Hverfis­ götunni er núna verið að troða inn litlum blokkum í staðinn fyrir að byggja stærri blokkir á betri stað. Það er líka örugg­ lega ódýrara. Úlfur: Nei, ég er með önnur og stærri áhugamál. Ég ætla að verða kartúnisti – skop­ myndateiknari – eða leikari. Snorri: Mig langar að verða teiknimyndasöguhöfundur. Mér finnst skemmtilegt að teikna og búa til sögur. Arnmundur: Mig langar svolítið að verða leikstjóri en ég ætla ekki að útiloka að ég setjist einhvern tímann á þing. Matthías: Arnmundur er leikstjórinn í hópnum og ég held að hann fái að starfa við það sem hann vill. Hlutleysið mikilvægt Eigið þið einhverja upp­ áhalds stjórnmálamenn? Magnús: Guðmundur Frank­ lín var pínu fyndinn. Matthías: Ég vil ekki svara þessu út frá stefnumálum heldur út frá því hvernig fólkið sjálft er. Það er mikilvægt að við séum hlutlausir. Það var gaman að taka viðtal við Katr­ ínu Jakobsdóttur í Stjórnarráð­ inu. Mér fannst líka gaman að koma þangað inn út af þessum gamla arkitektúr. Úlfur: Mér finnst margir stjórnmálamenn vera frekar næs. Ég veit ekki hver er í uppáhaldi hjá mér. Matthías: Stundum heldur maður að einhver sé kannski leiðinlegur og ekki fyndinn, en síðan er fólk allt öðruvísi en maður hélt. Úlfur: Við erum líka bara tólf ára og vorum níu ára þegar við byrjuðum. Þau eru auðvitað aðeins skemmtilegri við okkur en þau eru venju­ lega í stjórnmálum. Arnmundur: Allir hafa verið mjög almennilegir við okkur. Stálust í snúð Hvern hefur verið skemmti­ legast að hitta? Snorri: Ég man ekki alveg hvern við vorum að taka við­ tal við en ég man að það voru kleinuhringir. Úlfur: Það var Þórdís Kol­ brún… Magnús: … Reykfjörð Gylfa­ dóttir. Úlfur: Arnmundur minnir mig oft á þessa sögu. Ég og Snorri vorum þá á bak við tjöldin að fá okkur sætindi þegar það var verið að taka upp viðtalið. Arnmundur var að taka upp og hann var allt­ af að kíkja til okkar því við vorum laumulega að reyna að ná í snúð. Magnús: Það væri hægt að gera skemmtilega þætti um hvað Úlfur og Snorri eru að gera á bak við tjöldin þegar við erum að taka upp. Úlfur: Þegar við tókum við­ tal við Steingrím J. heyrðist í okkur smjatta á súkkulaði. Strákarnir springa allir úr hlátri. Matthías: Og einu sinni þegar við vorum að bíða eftir utanríkisráðherra var okkur boðið upp á nammi og við kláruðum það allt. Fylgdust þið með forseta­ kosningunum í Bandaríkj­ unum? Matthías: Ég fylgdist frek­ ar vel með. Ég var sérstak­ lega stressaður út af síðustu tveimur sætunum í öldunga­ deildinni. Ég er ánægður með að demókratar fengu þau. Magnús: Ég hélt fyrst að þú værir að fara að tala um Nev­ ada og Wisconsin. Eigið þið einhverja upp­ áhalds fréttamenn? Allir í kór: Bogi Ágústsson! Arnmundur: Helga Arnar­ dóttir sem var einu sinni á Stöð 2 er mjög góð fréttakona. Magnús: Já, mér finnst Birta Björnsdóttir líka mjög góð. Munið þið eftir því þegar það kom í fréttum að sex ára stelpa hafi fengið afmælis­ köku með mynd af Boga Ágústssyni? Úlfur: Var það ekki bara eitthvað grín? Magnús: Ég veit núna hvaða mynd ég ætla að fá mér á kök­ una næst þegar ég á afmæli! Matthías: Ég ætla að fá mynd af Guðjóni Samúelssyni. Úlfur: Hann er sjúkur í Guðjón Samúelsson og minnir okkur á það svona hundrað sinnum á dag að hann hafi teiknað Hallgrímskirkju. En núna langar mig mjög mikið að fara í RÚV­húsið, fá leyfi til að leika fréttamann í smá stund og svo kemur Bogi Ágústsson og rekur mig í burtu. n Þau eru auð- vitað aðeins skemmtilegri við okkur en þau eru venju- lega í stjórn- málum. Úlfur DV 19. FEBRÚAR 2021 EYJAN 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.