Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Síða 18
18 EYJAN N áttúruvernd er kjör-orð dagsins og undan-farin ár hafa flokkar Græningja sótt í sig veðrið hvarvetna í álfunni. Pólitískar hreyfingar umhverfisvernd- arsinna eiga sér langa sögu og meira en fjörutíu ár eru frá því að fyrsti fulltrúi slíkrar hreyfingar náði kjöri á þjóð- þing en það var í Sviss. Græningjar mynda með sér bandalag á Evrópuþinginu (Europäische Grüne Partei) og eiga þar samtals 52 þing- menn. Athygli vekur að flokk- ar frá öllum ríkjum Vestur- og Mið-Evrópu eiga aðild að sam- tökunum að Íslandi undan- skildu. Einn íslenskur flokkur hefur sem kunnugt er tengt sig við „grænar“ áherslur en VG er þó fremur nær sósíalískum upp- runa sínum og hefur ekki tekið jafn eindregna afstöðu í nátt- úruvernd og flokkar Græn- ingja í nágrannalöndunum. Græningjar í lykilstöðu Sé tekið mið af könnunum undanfarið stefnir í að Græn- ingjar verði næststærsti flokkurinn á þýska Sambands- þinginu (Bundestag) í Berlín að loknum kosningum næsta haust en í þeim könnunum sem birtar hafa verið í þessum mánuði mælist fylgi þeirra á bilinu 18 til 21 af hundraði. Þetta er verulegur viðsnún- ingur frá kosningunum 2017 þegar flokkurinn hlaut aðeins 9% atkvæða. Sjálfir skilgreina þýskir Græningjar sig á miðju stjórnmálanna þó svo að mál- efnalega hafi þeir lengst af átt meiri samleið með flokkum lengra til vinstri og við blasi að þeir sækja einkum fylgi til óánægðra fyrrum kjósenda Sósíaldemókrataflokksins. Alexander Van der Bellen, forseti Austurríkis, var um langt árabil talsmaður Græn- ingja þar í landi og fyrir rétt rúmu ári mynduðu austur- rískir Græningjar samsteypu- stjórn með Þjóðarflokknum, sem er flokkur kristilegra demókrata (áþekkur Sjálf- stæðisflokknum). Núverandi talsmaður Græningja í Aust- urríki er Werner Kogler sem jafnframt er varakanslari landsins og ráðherra lista-, menningar- og íþróttamála. Flokkar Græningja verða því ekki eingöngu skilgreindir til vinstri á pólitíska litrófinu enda náttúruvernd ekki einka- mál neinnar ákveðinnar hug- myndafræði. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, kemur úr flokki Kristilegra demókrata (áður systurflokkur Sjálf- stæðisflokks), en hún gerði eitt helsta baráttumál Græningja að stefnu síns flokks þegar hún beitti sér fyrir lokun þýskra kjarnorkuvera í kjölfar slyss- ins í Fukushima í Japan. Þáttur Birgis Kjaran Einn helsti brautryðjandi náttúruverndar hér á landi var þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, Birgir Kjaran hag- fræðingur. Hann var fyrsti flutningsmaður frumvarps til náttúruverndarlaga árið 1970 og í framsöguræðu sinni komst hann meðal annars svo að orði að maðurinn mætti „ekki eyðileggja náttúruna sér til tortímingar, því að náttúru- vernd er í sjálfu sér fyrst og fremst mannvernd, lífsvernd manneskjunnar sjálfrar“. Og Birgir sagði enn fremur að náttúruvernd væri „engin spjátrungsleg sérviska búin til á skrifpúltum lífsfirrtra lærdómsofvita með aðstoð tölvunnar, né heldur róman- tískt hugsjónaskvaldur, heldur bláköld hagsmunastaðreynd veruleikans“. Óhætt er að segja að þessi ummæli stand- ist tímans tönn. Styrmir Gunnarsson, fyrrv. ritstjóri Morgunblaðsins, rifjaði upp brautryðjenda- starf Birgis í náttúruverndar- málum á vefsvæði sínu árið 2018 og benti þar á að Sjálf- stæðisflokkurinn hefði um skeið skapað sér sérstöðu í umhverfisverndarmálum og byggt þar á arfleifð Birgis Kjaran öðrum fremur. Styrm- ir telur aftur á móti að nýjar kynslóðir hafi sýnt umhverfis- málum minni áhuga. Dýravernd fær litla athygli Í umræðum um umhverfis- mál vega loftslagsmálin að vonum þyngst en nefna má ýmis önnur vandasöm álita- efni. Ole Anton Bieltvedt, stofnandi og formaður dýra- og náttúruverndarsamtak- anna Jarðarvina, hefur látið mjög til sín taka í opinberri umræðu undanfarin ár. Sam- tökin hafa meðal annars kært Hval hf. til lögreglu vegna meintra brota á reglugerðum um veiðar og verkun hvals. Dauðastríð hvala er langt og að sögn Ole Antons sleppa mörg dýranna helsærð til þess eins að kveljast til dauða í lengri eða skemmri tíma. Ole hefur einnig bent á ómannúðlegar aðferðir við minkahald og slátrun minka. Hér á landi séu aðeins níu loðdýrabændur starfandi og til rekstrarins fái þeir úr sjóðum skattgreiðenda 160 milljónir króna á ári, en flestar aðrar vestrænar þjóðir hafa bannað loðdýra- rækt. Ole Anton hefur enn fremur gagnrýnt að leyfðar séu veiðar á rjúpu sem Nátt- úrufræðistofnun flokkar sem „tegund í yfirvofandi hættu“. Almenningur hér á landi sýnir dýra- og náttúruvernd stóraukinn skilning en í þessu efni – eins og svo mörgum öðrum – hafa stjórnmálin setið eftir. Líkt og Ole Anton hefur bent á skella ráðamenn við skollaeyrum enda hags- munir einstakra atvinnu- greina látnir vega þyngra á metunum en velferð dýra og verndun náttúru. Þannig er kíkirinn settur fyrir blinda augað þegar sauðfé er beitt á örfoka land svo dæmi sé tekið. Villtir laxastofnar í hættu? Annað stórt umhverfisvernd- armál tengist uppbyggingu sjókvíaeldis á laxi hér við land en Norsk institutt for natur- forskning hefur sýnt fram á mjög mikla erfðablöndun eldislax við villta laxastofna en aðeins þriðjungur villtra laxa í Noregi mun vera án erfðamengunar frá eldislaxi. Auk erfðablöndunar stafar villtum íslenskum laxi hætta af sníkjudýrum og sjúk- dómum sem kunna að berast með eldislaxi. Gagnrýnendur laxeldis benda á þetta og að sjókvíaeldi kunni jafnvel að hafa í för með sér útrýmingu villtra laxastofna hér við land. Hér er ótalin sú mengun sem eldinu fylgir. Almenningur hefur vaknað til vitundar um að framtíðar- tilvera okkar er komin undir bættri umgengni við nátt- úruna og að henni verði ekki fórnað fyrir stundarágóða. Stjórnmálin eru þó sem fyrr fremur föst í hagsmunabar- áttu fyrir einstakar atvinnu- greinar þrátt fyrir að náttúru- verndin megi í reynd teljast hin „blákalda hagsmunastað- reynd veruleikans“ þegar öllu er á botninn hvolft. n Gagnrýnendur sjókvíaeldis telja að það muni jafnvel hafa í för með sér útrýmingu villtra laxastofna hér við land. MYND/ÚR SAFNI Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is SKOÐANAPISTILL GRÆNINGJAFLOKKUR ÍSLANDS Enginn íslenskur flokkur á aðild að evrópusamtökum Græningja. Stjórnmálamenn forðast að ræða eldfim deiluefni er varða náttúruvernd. Hagsmunir atvinnuvega látnir ráða för. 19. FEBRÚAR 2021 DV Ole Anton Bieltvedt stofnandi og for- maður dýra- og náttúruverndar- samt. Jarðarvina Birgir Kjaran fyrsti flutnings- maður frumvarps til náttúruverndar- laga árið 1970

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.